Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Page 39

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Page 39
 bDÓIcmsnntin' 7 Um Metternich og fleira TILRAUNASTARFSEMI I BÓKMENNTUM er alla jafna vanþakklót atvinna. Ein meginástæðan til þess að höíundum helzt hún uppi er sú, að ýmsir andstæðingar hennar kunna illa við sig hver með öðrum Ég ætla að vona, bókmenntanna vegna, að Jónas Arnason rithöfund- ur kunni illa við sig í félagi við afturhaldssama einvalda, enda þótt greinar hans í Þjóðviljanum 1. og 3. sept. s.l. um „íslenzkar nútímabókmenntir og afstöðu ungra skálda og rithöfunda til al- mennings", minni dálítið á tortrygginn einræðisherra. Metter- nich, segir Stendhal einhvers staðar, var illa við að sjá rit- höfunda vera að stinga saman nefjum á kaffihúsum, en honum var jafnilla við að vita þá eina í herbergi, af því að hann bjóst við, að þeir væru að hugsa upp einhverja vizku, sem gæti komið valdhöfunum illa. (Tilvitnunin er eftir minni). J. Á. tortryggir á sömu lund þá unga höfunda, sem hafi „ekki annað samband við mannlífið en það að sitja við veitingaborð og vera gáfaðir hvor framan í annan", og honum er „engu minna áhyggjuefni" breytni hinna, sem sitja stöðugt við skrifborð. Munurinn er hins vegar sá, að J. Á. óttast ekki, að þeir séu að ráða valdhöfum launráð, heldur almenningi, snurfusa stíl sinn, eða undirbúa „skrípalæti" til að hrekkja alþýðu manna, eins og t. a. m. sögu þá um mannshausinn, sem fór til tunglsins, og Jónas vitnar til og fyrri grein hans dregur nafn af. Mér er ljóst, að þetta er ekki alls kostar sanngjarn samanburður. En grein J. Á. geldur þess að nokkru og þar með málstaður hans, að hann virðist ekki kunna að meta sem skyldi þá lífsnauðsyn rithöfundar að fara einförum og fá að vera í friði. Og víst er ekki aukandi a alþyðlega tor- tryggni gagnvart sérvizku og pukri rithöfunda.

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.