Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Síða 21

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Síða 21
hvar ég stóð við stafnglugga í hermanna- bragganum okkar lengi vel, mændi í ská- hallan ömurlegan regnflauminn og kenndi ógreinilegs fiðrings í gikkfingrinum. Að baki mér heyrði ég þetta ófélagslega lindarpenna- skrjáfur á aragrúa af hermanna-bréfsefnum. Skyndilega, án nokkurs tilefnis, vék ég frá glugganum, brá mér í regnfrakkann minn og setti á mig geitullartrefilinn, skóhlífarnar, ull- arvettlingana og regnhettuna (sem mér er enn sagt að ég hafi borið á alveg sérstæðan hátt — slútandi niðuryfir eyrun). Þegar ég svo hafði stillt armbandsúrið mitt eftir klukkunni á salerninu, gekk ég niður háa og regnósa malarbrekkuna oní bæinn. Eg kærði mig koll- óttan um eldingarnar uppiyfir mér. Annað- hvort ætluðu þær sér að stefna á mann eða þær ætluðu sér það ekki. I miðbiki bæjarins, sem sennilega var blaut- astur allra bæjarhluta, nam ég staðar fyrir utan kirkju, til að lesa tímatöfluna, mest sök- um þess að áferðarfagrir tölustafirnir, hvítir á svörtum grunni, höfðu vakið athygli mína, en einnig vegna hins, að þriggja ára herþjón- usta hafði beinlínis vanið mig á að lesa jafn- an það sem stóð á slíkum töflum. Samkvæmt töflu þessari átti barnakór að hafa söngæfingu klukkan kortér yfir þrjú. Eg leit á armbands- úrið mitt, síðan aftur á töfluna. Heft hafði verið upp pappírsörk með nöfnum þeirra barna, sem mæta skyldu á æfinguna. Eg stóð þarna í rigningunni og las öll nöfnin; gekk svo inn í kirkjuna. Röskur tugur fullvaxinna sat á kirkjubekkj- unum; ýmsir þeirra með barnaskóhlífar á hnjám sér, og vissu sólarnir upp. Ég gekk innareftir og settist í innsta bekk. A kórpall- mum sátu á þrem þéttum stólaröðum áað- gizka tuttugu börn, flest stúlkur, á aldrinum sjö til þrettán ára. Söngstjóri þeirra, kona gild- vaxin í ullarkjól, var einmitt í þessum svifum að hvetja þau til að opna betur munninn þegar þau syngju. Hafði nokkur, spurði hún, nckkru sinni heyrt getið um þann smátittling sem þorað hefði að syngja sína fögru söngva án þess fyrst að gal-gal-gal-cpna sitt litla nef? Auðsjáanlega hafði enginn gert það. Börnin höfðu ekki af henni augun, en augnaráð þeirra var öldungis sviplaust. Hún hélt áfram og sagðist vilja, að öll börnin sín tileinkuðu sér þýðingu þeirra orða er þau syngju, en ekki aðeins hefðu þau yfir einsog heimskir páfa- gaukar. Síðan blés hún tóni úr raddpípu sinni, og börnin lyftu sálmabókunum hærra, líktog óharðnaðir aflraunamenn. Þau sungu án undirleiks — eða réttara sagt hvað þeim viðkom: án nokkurrar íhlutunar. Raddir þeirra voru lagvísar og væmnilausar, jafnvel svo, að guðhræddari manni en ég var hefði hætt til að verða uppnuminn. Tvær allrayngstu raddirnar fylgdust ekki sem ná- kvæmast með hljómfallinu, en þó það vel, að einungis móðir mannsins sem bjó til lagið hefði getað greint muninn. Ég hafði aldrei heyrt þennan sálm áður; en ég vonaði hann væri einn þessara tólferindalöngu, eða lengri. Á meðan ég sat þarna og hlustaði, virti ég fyrir mér andlit barnanna, en varð þó starsýnast á eitt þeirra, þess barnsins sem næst mér var, á endasætinu í fremstu röð. Það var stúlka áaðgizka þrettán ára, með sléttgreitt hár hör- gult, er náði niðurfyrir eyru, einkar fallegt enni og ívið kæruleysisleg augu, sem mér fannst líkleg til að hafa vegið og fundið létt- væga þá áheyrendur sem inni voru. Rödd hennar skar sig greinilega úr, frá röddum hinna barnanna, og það ekki einungis vegna þess að hún sat næst mér. Á hærri tónunum var röddin miklu betri en þeirra, hljómþýðari, ör- uggari; og það kom af sjálfu sér, að hún hafði forustuna í söngnum. Engu að síður virtist þessi unga fyrirkona ekki vera nema miðlungi ánægð með eigin sönghæfileika; nema það hafi verið staðurinn og stundin; tvisvar sá ég hana geispa milli versa. Það var yfirmáta siðmenntaður geispi, á kvenlega vísu, Iokuð- um munni; en hann fór ekki framhjá manni; nasavængirnir komu upp um hana. Ekki var sálmurinn fyrr á enda en söng- stýran hóf margorða yfirlýsingu varðandi fólk sem ekki gæti verið kyrrt með fæturna og haldið munninum lokuðum undir ræðu prests- ins. Mér skildist, að þeim hluta kennslunnar er að tónlist Iaut væri lokið; og fyrr heldur en OAGSKRÁ 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.