Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Síða 28

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Síða 28
„Já,“ sagði hún, stutt í spuna. Hún sleppti ermi Charles og hrinti við honum, nokkuð hraustlega, í áttina til mín. Hann gekk nær, fölur í framan, og rak mér hvellan blautan rembingskoss rétt neðanvið hægra eyrað. Að lokinni þeirri eldraun ætlaði hann að rjúka beint á dyr cg snúa sér aftur frá hverskyns væmni-framkomu, en þá tókst mér að grípa í jakkann hans, halda honum kyrrum og spyrja: „Hvað sagði veggurinn við hinn vegg- inn?“ Andlit hans ljómaði. „Hittumst útí horni!“ hrópaði hann upp, tók á sprett útúr stofunni og var eftir öllu að dæma búinn að fá kast. Aftur stóð Esmé þarna með krosslagða fæt- ur. „Eruð þér nú viss um að þér gleymið ekki að skrifa söguna fyrir mig?“ spurði hún. „Hún þarf ekki að vera ímvörðungu skrifuð fyrir mig. Hún má — “ Ég sagði að engin hætta væri á því, að ég myndi gleyma henni. Ég kvaðst aldrei hafa skrifað sögu handa neinum sérstökum, en nú væri víst sannarlega tækifæri og tími til kom- inn ég snéri mér að því. Hún kinkaði kolli. „Látið hana verða með afbrigðum óþrifalega og hrífandi,“ sagði hún. „Eruð þér annars nokkuð kunnugur því sem er óþrifalegt?" Ég kvaðst ekki vera það, neitt sérstaklega, en sagðist smámsaman vera að komast í kynni við slíkt, í ýmsum myndum, og ég skyldi gera mitt bezta til að verða við óskum henn- ar. Svo tókumst við í hendur. „Er það ekki dapurlegt, að við skyldum ekki hittast undir öðruvísi kringumstæðum en þessum — ekki eins auðmýkjandi kringum- stæðum?“ Ég kvað það vera, svo sannarlega. „Verið þér þá sælir,“ sagði Esmé. „Og ég vona þér snúið heim úr stríðinu með fullkom- lega óskerta sansa." Ég þakkaði henni fyrir, bætti við örfáum kveðjuorðum, og horfði á eftir henni hvar hún gekk útúr testofunni. Hún gekk hægt, mjög hugsi; og fór uppí hárið, til að vita hvort það væri ekki farið að þorna. Hér kemur svo hinn óþrifalegi — eða hríf- andi — þáttur sögunnar, og sögusviðið breytist. Fólkið breytist sömuleiðis. Enn er ég á svið- inu; en af ástæðum sem mér er óheimilt að tilgreina, hef ég nú dulbúið mig svo kænlega, að jafnvel hinum snjallasta Iesanda mun ekki takast að koma mér fyrir sig aftur. Það var um hálfellefuleytið að kvöldi til, í Gaufort í Bayern, nokkrum vikum eftir vopnahlésdaginn í Evrópu. X liðsforingi sat í herbergi sínu á efrihæð, í íbúðarhúsi þarsem honum og níu öðrum amerískum hermönnum hafði verið komið fyrir þegar áðuren vopna- hléið komst á. Hann sat á einskonar kjaftastól með baki, við lítið og hirðuleysislegt skrif- borð, hafði óbundna skáldsögu úr hermanna- bókasafni fyrir framan sig, en átti í sáru stríði við að komast fram úr henni. Þau vandræði voru honum sjálfum að kenna, ekki skáldsögunni. Endaþótt þeir sem bjuggu á neðrihæðinni hefðu venjulegast forskot við að krækja í þær skræður er sendar voru mánað- arlega á vegum Fræðslumáladeildarinnar, virt- ist X yfirleitt Ienda á þeim bókum sem hann sjálfur myndi hafa valið hvorteð var. En hann var ungur maður, sem ekki hafði kom- izt gegnum stríðið með fullkomlega óskerta sansa, og í rúma klukkustund var hann búinn að sitja við að Iesa hverja málsgrein tvisvar- þrisvar sinnum, nemahvað nú var hann far- inn að gera slíkt við hverja setningu. Andar- tak skyggði hann hendi fyrir augun, í andófi gegn skerandi rafmagnaðri birtunni frá hlíf- arlausri peru rétt ofanvið borðið. Með fingrum sem hægt en óaflátanlega sperrtust sundur og drógust saman á víxl, greip hann sígarettu úr pakka á bcrðinu og kveikti í henni. Hann Iét hallast eilítið afturá- bak í stólnum og reykti, án þess þó að finna fyrir nokkru bragði að heitið gæti. Hann hafði keðjureykt um margra vikna skeið. Tann- holdi hans blæddi við minnsta þrýsting frá tungubroddinum, en hinsvegar átti hann bágt með að hætta að gera tilraunir í þá átt; það var einskonar dægradvöl, sem hann stundum gat dundað við tfmum saman. Andartak sat hann nú þannig og reykti; og gerði tilraunina 26 DAGSKRÁ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.