Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Síða 37

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Síða 37
leikálck Þegar máninn hvarf tók dauðinn kurteislega ofan og glotti fram í salinn ... Meira þurfti ekki: við fórum tveir saman um ókunna staði, og hann talaði með söknuði um látna vini sína. Þeir elskuðu mig allir, sagði hann liógvær- lega, og augu hans glóðu í myrkinu ... Þegar hér var komið þóttist ég greina ljós einhversstaðar framundan: eldaði þar af haugi? skein okkur þar stjarna? Ég veit það ekki, en við biðum þess mörg saman á sléttunni að dagur rynni. Okkur var mjög kalt, og við hrópuðum hver til annarra í myrkrinu, en eyru okkar námu aldrei svar ... Og nóttin virtist engan endi ætla að taka, jafnvel dauðinn hafði brugðizt okkur, og stjarnan var alltaf jafnfjarlæg — ef það hefur þá verið nokkur stjarna. kcha tttei kctt Ég elska ketti, sagði ég við konuna. Hún gekk flumósa fram og aftur um stofuna og fór höndum um hár sitt, þykkt og mikið. 1 handarkrika hennar lá svartur köttur og malaði værðar- lega, hann nísti klónum í hvítan handlegg hennar og malaði eins og bifreið. En konan gerði hvorki að æmta né skræmta, hún lyfti glasi með rauðu víni og heilsaði á mig. Ég gat ekki látið hjá líða að gefa gaum gróskumiklum lík- ama hennar undir slöngugrænum kjólnum, brjóst hennar biðu mín eins og ofþroskaðir ávextir, og hún bar túlípana bak við eyrað. Guð, sagði konan, og augu hennar þöndust út. Við sátum í stofu hennar og ræddum hófsamlega um dag og veg, og hún sagði mér frá bernsku sinni þegar alltaf var sólskin. Þá komu stundum karl- menn í heimsókn, sagði hún dapurlega og brá fingri á hvarm sér. En köttur- inn bylti sér í knjám konunni og spennti út klærnar, flærðin sindraði úr gulum glyrnum. Seinna um kvöldið hallaðist hún í fang mér lokuðum augum og dró ört andann, skartgripir hennar voru sem fánýtt pjátur við heitt hör- undið. Elskarðu mig? spurði hún. Elskarðu mig? Hló einhver úti í homi? Ég nefndi konunni nafn hennar af innilegri blíðu, en hugur minn var ann- arsstaðar: Úti í horni sat kötturinn og horfði á okkur uppglenntum sjónum, titrandi veiðihámm. DAGSKRÁ 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.