Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 43

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 43
— Ég var afskaplega hamingjusam- ur yfir henni, yfir því, hvern- ig hún tókst. Ég var framúrskarandi ánægður með alla leikarana, — en þó kom Þorsteinn mest við hjartað í mér. Hann verður ógleymanlegur í því hlutverki, held ég, að ég megi full- yrða. Mér hefur sjaldan verið meiri harmur kveðinn en að það leikrit skyldi falla. Ég held, að það hafi verið þannig unnið frá allra hálfu, að það hafi átt erindi til fólks. En auðvitað er þetta mál, sem ekki tjóar að fárast yfir. Hvernig er það, þegar þú hefur haft eitthvert hlutverk, sem hefur tekið þig föstum tökum, og sýningum lýkur? — Það er mikils misst, þegar hætt er sýningum, hvort heldur maður fer með hlutverk eða leikstjóm. Hlut- verkin hafa líka áreiðanlega mikil á- hrif á mann utan leiksviðsins. Og svo stendur maður dapur og tómur á eftir og þarf að finna sjálfan sig. Leiharinn og áhorjandinn. Nú standið þið á fjölunum með full- æft Ieikrit frammi fyrir sal fullum af fólki. Hver eru áhrifin frá áhorfend- unum? — Það er afskaplega misjafnt. Leik- ur frá kvöldi til kvölds getur verið ákaflega mismunandi eftir þeim áhrif- um, sem áhorfendurnir hafa á leikar- ann, meðan á sýningu stendur.Sízt vil ég kvarta yfir reykvískum áhorfend- Jón Sigurbjörnsson sem Mulvany liðsforingi, Gísli sem jarlinn af Harpenden og Baldvin Hall- dórsson sem Colbert liðsforingi t Meðan sólin skín eflir Terence Rattigan. DAGSKRÁ 41

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.