Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Síða 51

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Síða 51
kunngjört fagnaðarerindið. Tívólístjórinn sýnir fegurstu konur íslands. Meyjablómi Frónsins er metinn og veg- inn. Mjaðmir og mitti, brjóst og hnésbæt- ur. leggir og Iær. ísland fær drottning. Svo er ballið búið. Vatnsmýrin naum- ast töfrandi lengur. Fegurð islenzkra kvenna Iiggur í láginni til næstu útmán- aða. Þá pússar Tívólistjórinn mottóið sitt: — Aldrei fegurri en í ár. Fjarri sé það mér að agnúast við kven- legri fegurð, enda hafa það sagt mér vitrir menn, að fátt hafi skaparanum tekizt hönduglegar við en fallegar konur. hað er líka langt frá í sjálfu sér, að ég sé andvígur því, að Tivólístjórinn (eða hvaða hugsjónamenn það nú eru, sem standa fyrir öliu galskapinu) fái að græða svolítið á því að sýna kvenlíkami. Og meykörlum er hreint ekki ofgóð sín ævi, þótt þessi tilbreyting verði á kven- mannleysi þeirra undir Jónsmessuna. Og sízt er ég því mótfallinn, að fallegar og elskulegar stúlkur fái að skoða sig um í veröl-iinni og sýna heiminum meyja- blóma íslands. En samt finnst mér eitthvað andhælis- legt við allt þetta umstang. Hvert er mat okkar á fegurð? Hvar skilur miili efnis og anda? Hverju vilja menn fórna fyrir fegurð á íslandi? Við eigum nokkra unga og efnilega málara. Hvenær þyrpumst við suður í Vatnsmýri til þess að borga fargjald þeirra og uppihald í f jörrum löndum? Eru þeir þeim mun ólíklegri til að efla fegurð á íslandi en meyjarnar mittisgrönnu? Við eigum unga leikara, sem elga enga ósk heitari en geta siglt og numið listir sinar við fótskör Þalíu. Hví þjótum við ekki suður í Vatnsmýri og greiðum náms- kostnað þeirra? Við eigum fjölda ungra skálda, sem er fátæktin sárastur fjötur. Hví ekki að hlaupa suður undir flugvöll og gefa þeim með því færi á að sigla og auðga anda sinn með menningarþjóðum heimsins? Er góður skáldskapur sneyddari fegurð en meyjarmitti? í háskóla okkar eru fáeinir sjóðir ætl- aðir til styrktar efnilegum stúdentum. Enginn er þess megandi að greiða svo mikið sem fargjald eins manns vestur á Löngufjöru. Eru íslenzkir menntamenn óliklegri til þess að auka menning á ís- landi en meyjarnar mittisgrönnu? Við eigum nokkra efnilega vísindamenn, sem ekkert vildu fremur gera en leggja nótt við dag til að sinna hugðarefnum sínum. Fæstir þessara manna hafa hin minnstu skilyrði til þess að vinna að rannsóknum sínum, þvi að timi þeirra fer í brauðstrit. Hvi borgum við ekki í rannsóknar- og útgáfusjóði suður í Vatns mýri? Eru visindi svona miklu ófagur- fræðilegri en kroppakeppni Tívólistjór- ans? —0— Því vek ég máls á þessu, að mér of- býður stundum það mat, sem min ást- kæra menningarþjóð leggur á verðmætL Auðvitað er öllum frjálst að þyrpast á samkomur hugsjónamanna eins og t. d. Tívólístjórans og brúðkaupsferðarstjór- ans. Þeir kosta ungt fólk í siglingar, og sjálfsagt er menningunni á íslandi greiði ger með því að kynna heiminum það. En mér finnst tómlætið gagnvart sum- um öðrum ungum mönnum á íslandi, t. d. listamönnum og skáldum, svo seig- drepandi, að naumast séu sprottnar af fagurfræðilegum áhuga þær ógnar fjár- hæðir, sem velnefndir keppnisstjórar fá handa á milli til þess að kynna heimin- um æsku íslands. Meyjarnar mittisgrönnu hafa verið krýndar. íslandi hefur hlotnazt drottn- ing. Brátt verður heiminum kunngjörður meyjablómi íslands. Sögueyjan við pól- bauginn, hlýtur sinn verðuga sess í menn- ingu heimsins. Fegurðin á íslandi á sinn þénara suður í Vatnsmýri. Senn lækkar sólin göngu sína. Meyjar íslands bíða næsta vors. Enn mun kall hugsjónamannsins hljóma um byggðir: — Aldrei fegurri en í ár! S.S. dagskrá 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.