Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Page 71
KRISTJAN BERSI OLAFSSON
há eff landleiði
Að aka sama veginn dag eftir dag,
í drunga morgunsársins, skarkala og ysi
vetrarkvölda, líta sífellt hin sömu
sviplausu andlit gamalkunnugra manna,
sjá út um gluggann einungis litdauft land,
leirflög og símastaura og hversu vegurinn
asfaltgrár og örfoka berangursmelar
umhverfis renna saman, fylla þá mynd
auðnar og feigðar sem blasir við oss og boðar
beiskan dauða vors innri manns að lokum.
r
Dagskrá beinir að endingu þeim tilmælum til
ungs fólks, er við ritstörf sýslar, að það sendi
ritinu til birtingar verk sín, ljóð, sögur og grein-
ir. Handrit má senda til tímaritsins Dagskrár,
Edduhúsinu, Lindargötu 9a, Reykjavík eða beint
til ritstjóranna.
Ritstj.
dagskrá
69