Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Side 6
föstudagur 26. október 20076 Fréttir DV
Sandkorn
n DV hefur fjallað um sjóðinn sem
týndist, minningarsjóð auðkon-
unnar Sonju Zorilla til styrkt-
ar börn-
um. Frændi
hennar,
Guðmundur
Birgisson frá
Núpum, og
bandarískur
lögfræðingur
eru sjóðs-
stjórar og eru
báðir þöglir sem gröfin um úthlut-
anir úr sjóðnum. Íslensk líknar-
samtök hafa ekkert fengið og vinir
Sonju undrast kyrrþeyna. Hún
var mikill listunnandi og átti verð-
mætt safn málverka sem renna
átti í sjóðinn fyrir börnin. Guð-
mundur á glæsihús á Hofsvalla-
götu 1 sem hann hefur verið að
gera upp síðustu ár. Húsið keypti
hann skömmu eftir andlát frænku
sinnar og hafa vegfarendur veitt
athygli glæsilegu safni málverka
sem prýðir veggi hússins.
n Siv Friðleifsdóttir alþingiskona
Framsóknarflokksins og fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra ákvað
nýlega að skella sér á kvöldnám-
skeið í ljós-
myndun. Siv
heldur úti
skemmtilegri
heimasíðu
þar sem hún
fjallar um það
sem á daga
hennar dríf-
ur og hefur
hún verið dugleg að birta myndir
af sér og sínum vandamönnum.
Siv hefur meðal annars birt ófáar
myndir úr veiðiferðum sínum um
allt land.
n Enski landsliðsmarkvörður-
inn Paul Robinson er kominn til
Íslands með konu sinni. Hérna
ætlar hann að njóta lífsins milli
stórátaka í ensku úrvalsdeild-
inni meðan hann jafnar sig af
meiðslum. Þau ætluðu sér meðal
annars í Bláa lónið, á hestbak og
í jeppaferð upp á jökul. Paul og
frú komu til landsins í morgun og
voru tveir vinir landsliðsmanns-
ins væntanlegir með einkaþotu
í gær. Ekki var ljóst í gær hverjir
þeir væru en talið að þar væru
þekktir fótboltakappar á ferð.
Robinson hefur verið harðlega
gagnrýndur fyrir slaka frammi-
stöðu og hvíldin því væntanlega
velkomin.
n Nú styttist í útgáfu bókarinn-
ar Sex, Lies and Supermarkets,
sem blaðamennirnir Ian Griffiths
og Jonathan
Edwards
hafa ritað
um feril
Jóns Ásgeirs
Jóhannes-
sonar og
fyrirtæk-
is hans,
Baugs.
Þegar er
hægt að leggja inn pöntun fyrir
bókina í betri netverslunum. Nú
virðist sem nafni bókarinnar hafi
skyndilega verið breytt og er hún
markaðssett undir heitinu The
Iceman Cometh. Hvort um efnis-
lega breytingu á bókinni er einnig
að ræða er ekki vitað, en blaða-
mennirnir segja að Jóni Ásgeiri
sé lýst sem glaumgosa. Bókin er
gefin út í óþökk Jóns.
Ferðamenn í Ólafsvík reka upp stór augu þegar þeir sjá að hægt er að kaupa bjór og
barnasokka á sama stað. Þannig hefur þetta þó verið í tuttugu ár. Elsa Bergmunds-
dóttir segir fyrirkomulagið prýðilegt. Hún er þó mjög efins um að það sé til heilla að
bjóða áfengi til sölu í matvöruverslunum eins og nú hefur verið lagt til á Alþingi.
„Þetta gengur alveg upp. Það eru
helst ferðamenn sem reka upp stór
augu,“ segir Elsa Bergmundsdóttir,
útibússtjóri Vínbúðarinnar í Ólafs-
vík. Í sama húsnæði er Verslun Þóru
sem selur barnaföt og þarf Elsa oft að
hafa hraðar hendur þegar viðskipta-
vinir biðja um bjór og barnasokka.
Vínbúðin í Ólafsvík er fyrsta sam-
starfsverslunin sem Áfengis- og tób-
aksverslun ríkisins opnaði og eru nú
komin tuttugu ár síðan starfsem-
in hófst. Elsa hefur starfað þar frá
upphafi. „Ég þekki ekki annað. Fólki
finnst ekkert athugavert við þetta
fyrirkomulag en sumir verða hissa.
Mörgum finnst líka sniðugt að hér sé
hægt að kaupa brennivín og barna-
föt,“ segir hún hlæjandi.
Áfengi á hárgreiðslustofum
Góð reynsla hefur verið af sam-
starfsverslunum og má nú finna vín-
búðir á hárgreiðslustofum og bygg-
ingarvöruverslunum vítt og breitt
um landið. Elsa segir það mikið hag-
ræði fyrir vínbúðirnar að leigja pláss
hjá öðrum verslunum frekar en að
kaupa sitt eigið. Einnig er gott fyrir
litlar búðir að fá þarna aukakrónur.
Í Verslun Þóru er boðið upp á föt
fyrir börn frá fæðingu og til um sex
ára aldurs. Sú Þóra sem búðin er
kennd við er móðir Elsu. Hún segir
þó að jafnvel standi til að hætta með
barnafötin og einbeita sér að sölu
á garni meðfram áfengissölunni.
„Barnafötin seljast mun minna en
áður. Við höfum verið að selja garn
og það gengur mjög vel,“ segir hún.
Vodkinn flæddi út
Kaupvenjur Ólafsvíkinga hafa
breyst í gegnum tíðina. „Hér áður
fyrr rann sterka vínið bókstaflega út
þannig að nokkrum sinnum á dag
þurfti að sækja heilu kassana og fylla
á vodkann. Nú bæti ég bara einni og
einni vodkaflösku í hilluna,“ segir
Elsa. Síðustu ár hafa rauðvín, hvítvín
og bjór trónað á toppi vinsældalist-
ans. Hún segir mikla eftirspurn eftir
léttvíni frá Ástralíu og Chile, auk þess
sem íslenskur bjór er afar vinsæll.
Í Vínbúðinni er boðið upp á tvö
hundruð áfengistegundir. Elsa
segir að vínbúðum sé skipt í
fjórar stærðir þar sem boðið er
upp á frá hundrað tegundum
og upp í fjögur hundruð. Úti
á landi bjóða búðirnar flestar
upp á ýmist hundrað eða tvö
hundruð tegundir. Elsa er eini
starfsmaður Vínbúðarinnar
sem er opin alla virka daga frá
klukkan tvö til sex.
Engar vínbúðir á lands-
byggðinni
Hart hefur verið deilt
um hvort leyfa eigi sölu
á bjór og léttvíni í mat-
vöruverslunum. Elsa
hefur ekki farið varhluta
af því og hefur sterkar
skoðanir á málinu. „Það
er ástæða til að fyllast
áhyggjum ef þetta fer
í gegn. Ég get ekki séð
hvernig það á að ganga,“ segir hún.
Elsa segist þess fullviss að matvöru-
verslanir komist ekki í hálfkvisti við
vínbúðirnar hvað varðar þjónustu og
úrval. „Ein matvörubúð getur aldrei
boðið upp á tvö hundruð tegundir
af áfengi. Það er líka alveg ljóst að ef
léttvín og bjór fara úr vínbúðunum
verður ekki grundvöllur til að reka
þær. Allavega ekki úti á landi. Það
er ekki hægt að halda úti þessum
rekstri og selja bara sterkt vín. Það
yrði hreinlega að leggja niður vín-
búðir á landsbyggðinni,“ segir hún.
Hærra verð í matvörubúðunum
Elsa hefur einnig áhyggjur af því
að ekki fáist starfsfólk til að selja
áfengið, verði það á boðstól-
um innan um matvörur. Máli
sínu til staðfestingar bend-
ir hún á að mikill meirihluti
þeirra sem sinna afgreiðslu í
matvöruverslunum sé undir
átján ára aldri. „Yngri en
tvítugur máttu ekki af-
greiða vín,“ segir hún
og sér ekki hvernig eigi að manna
stöðurnar þegar þeir sem í þær sækja
eru helst unglingar og skólakrakk-
ar: „Mig grunar líka að eftirlit með
aldri þeirra sem kaupa vínið myndi
minnka ef þannig færi,“ segir Elsa.
Fyrr í vikunni kom sölumaður
vínbirgis að máli við hana og lýsti yfir
andúð sinni á frumvarpinu sem nú
er til umfjöllunar á Alþingi. „Hann
fullyrti að ef áfengissala færðist inn í
matvöruverslanir myndi verðið snar-
hækka því einkaaðilarnir myndu
leggja mun meira á áfengið en ríkið
gerir. Hann vonar að þetta nái ekki
fram að ganga enda sér hann þá fram
á að missa vinnuna,“ segir Elsa.
bús OG bARNAFÖT
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Það er líka alveg ljóst
að ef léttvín og bjór
fara úr vínbúðunum
verður ekki grundvöllur
til að reka þær.“
Bokkur hjá barnagöllum
Áfengið selst mun betur en
barnafötin í ólafsvík.
ræða nýjar söluleiðir frumvarp um sölu léttvíns
og bjórs í matvöruverslunum mælist illa fyrir.