Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 48
Á morgun, laugardag, ætlar einn mesti rokk- reynslubolti lands- ins, Rúnar Júlíusson að halda stórtónleika í Laugardalshöllinni ásamt góðum gestum en Rúnar á fjörutíu og fjögurra ára tónlistarferil að baki svo af nógu er að taka. „Móðir mín hefði orðið níutíu og níu ára á morg- un hefði hún lifað og það hittist bara þannig á að tónleikarnir verða þann dag,“ segir Rúnar spurður um til- efni þess að halda þessa stórtónleika núna. Þrjár músíkkynslóðir á sviði Rúnar hefur sent frá sér plötu á hverju einasta ári síðan hann hóf tónlistarferil sinn en nýjasta afurð hans, Snákar í garðinum, kom út í haust sama dag og ljósanóttin var haldin í Reykjanesbæ. Platan hefur víðast hvar fengið góða dóma og fékk meðal annars fjórar stjörnur í tónlist- argagnrýni Morgunblaðsins. „Snákar í garðinum er samvinnuverkefni mín og vina minna. Ég samdi sjálfur slatta af lögunum og alla textana en band- ið sem ætlar að spila með mér á tón- leikunum spilar undir á plötunni,“ segir Rúnar. Bandið sem um ræðir er ekki af verri endanum en það samanstend- ur af Baldri Þóri og Júlíusi Frey, son- um Rúnars, Tryggva Hübner, Birni Árnasyni, Þóri Baldurssyni, Jóhanni Helgasyni og Magnúsi Kjartanssyni. „Svo er nú gaman að segja frá því að barnabarnið mitt, hann Björgvin Ívar Baldursson, spilar með mér í síðustu lögunum en þá höfum við þrjár mús- íkkynslóðir saman á sviðinu. Auk þess syngur konan mín, hún María Baldursdóttir, með mér lagið Að ei- lífu og svo er Þórir Baldursson hljóm- sveitarstjóri mágur minn svo það má segja að þetta sé mjög fjölskyldu- vænt,“ segir Rúnar en greinilegt er að það rennur músíkalskt blóð í æðum fjölskyldunnar. Margir góðir gestir Að vonum er það mikil vinna og skipulagning sem liggur að baki slík- um stórtónleikum en hugmyndin að þeim vaknaði í vor. „Hann Guðbjart- ur tónleikahaldari talaði við mig í vor og vildi þá bara drífa í þessu og halda þetta í júní en ég bað um lengri frest til að undirbúa mig og gera þetta vel. Það þurfti náttúrulega að velja lög- in og hóa í alla gestina og sjá hverj- ir ættu heimangengt,“ segir Rúnar en það verða margir gamlir og góðir gestir sem ætla að heiðra hann með nærveru sinni. Á tónleikunum koma fram Bubbi Morthens, Björgvin Halldórsson, Magnús Kjartansson, Baggalúts- menn, Shady Owens, Doktor Gunni, Jóhann Helgason og María Baldurs- dóttir og munu lög Hljóma, Trúbrots, Lónlí Blú Bojs, GCD, Áhafnarinnar á Halastjörnunni, Baggalúts og af sóló- ferli Rúnars hljóma í mestu mögu- legu hljómgæðum í hölllinni. Hápunkturinn að fara yfir ferilinn Rúnar segir tónleikana verða byggða upp í tímaröð og kemur einn góður gestur úr öllum þeim sveitum sem hann hefur spilað með í gegnum tíðina. „Það er erfiðara að hóa saman heilu hljómsveitunum svo það kem- ur bara einn góður gestur úr hverri sveit. Enda eru líka menn úr sum- um hljómsveitunum látnir svo það gæti reynst erfitt að hóa í þá svo við fengum bara þá sem áttu heiman- gengt til að vera gestir. Þannig kem- ur Shady fyrir hönd Hljóma og Trú- brots, Maggi Kjartans kemur fyrir hönd Trúbrots, Björgvin fyrir Hljóma og Lónlí blú bojs, Bubbi fyrir GCD og Gylfi Ægis fyrir Áhöfnina á Hala- stjörnunni og svo koll af kolli.“ Spurður um skemmtilegasta tímabil ferils síns segist Rúnar ekki gera upp á milli hljómsveitanna sem hann hafi spilað með enda sé tíma- bilið sem tónlistarferill hans spannar mjög vítt og breitt. „Það er alltaf eitthvað mjög sterkt augnablik í hverri hljómsveit og ég geri ekki upp á milli þeirra. Mér finnst reyndar tímabilið sem ég er að ganga í gegnum núna alveg stór- föstudagur 26. október 200748 Helgarblað DV ALLTAF SÖMU LÖGMÁLIN Tónlistarmaðurinn Rúnar Júlíusson gerir upp fjörutíu og fjögurra ára feril sinn á stórtónleik- um í Laugardalshöllinni á morgun, laugardag. Rúnar hefur valið um þrjátíu og fimm lög til að flytja á tónleikunum. Með Rúnari verður fjöld- inn allur af góðum gestum og verða þrjár mús- íkkynslóðir á sviðinu, synir Rúnars og barna- barn. Eftir öll þessi ár í tónlistarbransanum segir hann lítið hafa breyst. RúnaR Júlíusson Á fjörutíu og fjögurra ára tónlistarferil að baki. ÓttaR Felix Hauksson Fór í pílagrímsFerðir til KeFlavíKur „Ég er búinn að eiga Rúnar að vini síðan 1964 og hann er algjört gull af manni. Ég man þegar við strákarnir, ég og Björgvin Halldórs, fórum sko í sérstakar pílagríms- ferðir suður í Keflavík til að fá að vera samvistum við Rúnar, skoða með honum plötusafnið hans og fá að fara með honum upp á völl og sjá hann spila fyrir Kanana og taka alla stælana. Í gegnum áratugina hefur Rúnar reynst mér afskaplega vel og hann er bara mjög vinfastur og góður drengur. Ég kemst því miður ekki á tónleikana því ég er á Spáni á kaupstefnu um heimstónlist þar sem ég er að kynna íslenska tónlist en ég ber bara Rúnari og félögum bestu kveðjur og ég veit að þetta verður alveg svakalega flott kvöld hjá honum Rúnari.“ BJöRgvin BalduRsson Halastjarnan best „Ég hef spilað með afa svona af og til en ég spila á gítar. Ég hef þurft að hlusta á tónlist- ina hans afa síðan ég var lítill. Þó að flestir haldi mest upp á Trúbrot af þeim hljómsveit- um sem afi hefur verið í held ég mest upp á Áhöfnina á Halastjörnunni,“ segir Björg- vin Ívar, sonarsonur Rúnars Júlíussonar, og bætir því við að honum lítist bara mjög vel á að afi hans sé að fara að halda þessa stórtón- leika. „Ég var á æfingu í gær og þetta verður rosapartí. Í einhverjum lögum verðum við þrír ættliðir á sviðinu en ég glamra með afa í ein- hverjum nokkrum lögum og svo spilar pabbi á píanó í hljómsveitinni.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.