Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 18
föstudagur 26. október 200718 Umræða DV Þreytulegur meirihluti „Það sem vakið hefur athygli mína und- anfarna viku eru myndir. Eftir að hafa séð myndir af hinum nýja meirihluta í borgar- stjórn, þar sem þau stóðu á Tjarnarbakk- anum og lýstu yfir hollustu sinni við borg- arbúa. Þau voru öll svo dæmalaust falleg, með tindrandi augu yfir sinni nýfengnu upphefð og ábyrgð. En undanfarna viku hafa komið myndir af þessu sama fólki svo sorglega þreytulegu. Það er eins og ekkert þeirra hafi sofið heilan svefn undanfarna viku. En auðvitað gleður það mig líka að sjá þessi tuskulegu andlit, þau eru að vinna vinnuna sína hugsa ég og taka starf sitt og fyrirheit alvarlega sem er að öllu leyti mjög jákvætt. Svo er það nýja biblíuþýðingin sem vakið hefur óskipta athygli mína. Þessi bók bókanna sem hefur svo lengi mætt fálæti er allt í einu orðin að hitamáli í þjóðfélaginu. Ég segi bravó. Þessi bók og efni hennar á það skilið að vekja deilur og tilfinningaum- rót. Hún stenst allt, heldur áfram að hugga og gleðja þá sem verja tíma í að lesa hana.“ Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona Framhaldssagan um REI „Við erum náttúrulega í miðri framhalds- sögu um REI-málið. Núna virðist Svandís Svavarsdóttir vera komin með Vilhjálms- heilkennið að muna ekki eftir samningum. Ef samningar hafa ekki verið lagðir fyrir, það er hluthafasamningurinn milli Bjarna Ár- mannssonar og Orkuveitunnar, sýnist mér að þeir sem að þeim standa séu einhverjir í vandamálum. Ef samningarnir hafa verið lagðir fyrir sýnist mér hinir kjörnu fulltrú- ar vera í þeim sérstaka vanda að muna ekki hvað gerist á fundum. Ég veit ekki hvar á Norðurlöndunum mönnum hefði dottið það í hug að taka einn fjárfesti og semja við hann sérstaklega með ákveðnum hætti. Ég er ansi hræddur um að þeir stjórnmálamenn sem að því hefðu staðið hefðu þurft að taka pokann sinn. Síðan hefur Kirkjuþingið staðið yfir í vik- unni og það er erfitt fyrir kirkjuna að geta ekki tekið afstöðu í málefnum samkynhneigðra. Þeir eru að velta með þetta upp í sér eins og heita kartöflu. Það er það versta að menn geta ekki tekið afstöðu og tekið af skarið með málið. Þetta tefur að kirkjan geti haldið áfram og sinnt öðrum mikilvægum málum. Af er- lendum vettvangi eru það þessir gríðarlegu skógareldar sem hafa geisað í San Diego. Máttur náttúrunnar er ótrúlega mikill.“ Jón Magnússon, þingmaður Hugsað til vina sinna í San Diego „Mér verður nú fyrst og fremst hugsað til vina minna í San Diego í Bandaríkjunum. Þar eru þau Steinunn Ólína og Stefán Karl sem eru nýflutt þarna út. Það er oft á tíðum erfitt að meta hversu miklar hamfarirnar eru þegar fylgst er með þessu úr fjarlægð. Þetta virðist samt vera mjög umfangsmikið enda hefur um milljón manns flúið heimili sín. Ég sendi hlýjan hug til þeirra einstaklinga sem eru þarna úti. Svo fannst mér það vera stórfrétt að Eiður Smári fékk loksins tækifæri í byrjunarliði Bar- celona á móti Glasgow Rangers í vikunni. Það var virkilega gaman að sjá hann á vellinum á nýjan leik. Það skyldi þó aldrei fara svo að hann sannaði að hann væri maðurinn sem Barcelona hefur alltaf vantað. Það væri frá- bært fyrir hann og íslensku knattspyrnuna ef það gerðist. Hann hefur verið mikið gagn- rýndur þetta árið og mikið verið orðaður við lið á Englandi. Það er greinilegur karakter í honum sem hefur komið honum þangað sem hann er. Ég held líka að það teljist stórfrétt hvað Iceland Airwaves-hátíðin fór vel fram og heppnaðist vel. Menning skiptir samfélagið okkar miklu máli og stemningin í bænum var frábær.“ Felix Bergsson, leikari HVAÐ BAR HÆST í Vikunni? Blaða·maður KK • starfsmaður blaðs, sá sem hefur atvinnu af að skrifa í blöð - Íslensk orðabók „Ég heiti Sigurjón M. Egilsson og er ritstjóri DV. Mér er ekki sama hvernig fjölmiðlum er stjórnað eða hvernig fréttir þeirra eru unnar. Sjálfstæði, kjarkur og sanngirni skiptir öllu hjá fjölmiðli eins og DV. Fólk á skilið dagblað sem talar þeirra máli. Ég tala þínu máli.“ Talar þínu máli F í t o n / S Í A Ánægjuleg launahækkun „Mér dettur fyrst í hug hækkunin á laun- um leikskólakennara sem er einstaklega jákvæð og góð frétt. Það hefur gengið alveg afskaplega hægt að hækka laun þessara lægst launuðu stétta þó að margar þeirra séu mjög mikilvægar. Það er fátt sem felur í sér meiri ábyrgð heldur en að koma unga fólkinu á legg. Það þyrfti vissulega að hækka launin um meira en tíu prósent en það er engu að síður mjög ánægjulegt að sjá þessa hækkun. Svo var kvennafrídagurinn á miðviku- daginn og það er ánægjulegt að sjá hversu margir aðilar eru með skipulagða dagskrá í tengslum við þann atburð. Kirkjuþingið hefur verið mikið í umræð- unni og mér finnst það svekkjandi að það sé ekki hægt að stíga alla leið. Mér finnst að kirkjan eigi að vera í fararbroddi í mannrétt- indamálum. Hjónabandið á sér langa sögu sem er byggð á kynjamisrétti. Það er engin tilviljun að konur giftast og karlar kvænast, því konur eru gefnar körlum. Ég veit um fólk sem vill ekki ganga í hjónaband út af þessari sögu. Ég tel að það væri hægt að heimila gagnkynhneigðu fólki að ganga í staðfesta samvist. Ég myndi vilja að það yrði gengið alla leið þannig að samkynhneigðir gætu gengið í hjónaband og gagnkynheigðir í staðfesta samvist.“ Katrín Anna Guðmundsdóttir, nemi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.