Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 41
Starfsferill
Guðmundur Rúnar Júlíusson
fæddist í Keflavík 13.4. 1945 og hef-
ur átt þar heima alla tíð. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Keflavíkur.
Rúnar er í hópi þekktustu popp-
tónlistarmanna landsins. Hann lék
m.a. með hljómsveitunum Hljóm-
um 1963-69 og svo af og til síðan frá
1974, Trúbroti 1969–73, ðe lónlí blú
bojs 1976, Geimsteini, Áhöfninni á
Halastjörnunni, GCD og Bubba og
Rúnari, og loks Rokksveit Rúnars
Júlíussonar.
Hann hefur gert fjölda hljóm-
platna með þessum hljómsveitum
og verið flytjandi og söngvari á fjölda
hljómplatna með öðrum tónlistar-
mönnum og samið mikinn fjölda
laga og texta sem komið hafa út á
ýmsum hljómplötum. Þá hefur Rún-
ar gefið út mikinn fjölda hljómplatna
sjálfur. Hann stofnaði útgáfufyrirtæk-
ið Geimstein 1976 og hefur starfrækt
það síðan sem fjölskyldufyrirtæki, en
það mun vera elsta tónlistarútgáfu-
fyrirtæki landsins sem enn starfar.
Rúnar æfði og lék knattspyrnu
með ÍBK um árabil, lék með meist-
araflokki liðsins og varð Íslands-
meistari með ÍBK 1959 og 1964.
Hann hefur setið í stjórn SFH og SHF
sl. þrjátíu og tvö ár, sat í stjórn FTT
í tíu ár, situr í fulltrúaráði STEF, var
formaður skólanefndar Tónlistar-
skóla Keflavíkur í tvö kjörtímabil og
er stjórnarformaður Geimsteins hf.
frá 1976.
Rúnar tók þátt í gerð fjölda sjón-
varpsþátta með Hljómum og Trú-
broti og ýmsum tónlistarsýningum
á Brodway, Hótel Íslandi og í Holly-
wood. Hann hefur fengið fjölda gull-
og platínuplatna með þeim hljóm-
sveitum sem hann hefur leikið með,
hefur verið sæmdur ýmsum verð-
launum og viðurkenningum og hef-
ur verið listamaður Reykjanesbæjar
frá 2005.
Fjölskylda
Eiginkona Rúnars er María
Baldursdóttir, f. 28.2. 1947, söng-
kona og hárgreiðslumeistari. Þau
hafa verið saman frá því á ungl-
ingsárunum en giftu sig þann
28.2. sl. er María varð sextug.
Hún er dóttir Baldurs Júlíusson-
ar, bifreiðaeftirlitsmanns í Kefla-
vík sem er látinn og Margrétar
Hannesdóttur húsmóður.
Börn Rúnars og Maríu eru
Baldur Þórir Guðmundsson, f.
27.7. 1964, viðskiptafræðingur,
kvæntur Þorbjörgu Guðnadótt-
ur kennara, og eru börn þeirra
Björgvin Ívar, f. 20.11. 1986,
María Rún, f. 24.7. 1990, og Ást-
þór Sindri, f. 20.6. 1995; Júlíus
Freyr Guðmundsson, f. 22.9. 1971,
tónlistarmaður og tölvufræðing-
ur, kvæntur Guðnýju Kristjánsdótt-
ur og eru börn þeirra Kristín Rán, f.
7.5. 1992, Brynja Ýr, f. 14.10. 1998 , og
Guðmundur Rúnar, f. 8.10. 2003.
Systkini Rúnars eru Guðlaug
Bergmann, f. 29.1. 1936, verslunar-
maður í Njarðvík; Ólafur Eggert, f.
11.7. 1952, málari í Keflavík.
Foreldrar Rúnars voru Júlíus Egg-
ertsson, f. 12.7. 1904, d. 23.11. 1985,
múrarameistari í Keflavík, og k.h.,
Guðrún Bergmann Stefánsdóttir, f.
27.10. 1908, d. 27.4. 1989, húsmóð-
ir. Móðir Rúnars hefði orðið 99 ára á
morgun er tónleikarnir verða haldn-
ir.
Ætt
Júlíus var sonur Eggerts, b. á Há-
varsstöðum, Ólafssonar, b. á Kópa-
reykjum, Jónssonar. Móðir Eggerts
var Þuríður Þorsteinsdóttir.
Móðir Júlíusar var Halldóra Jóns-
dóttir, b. í Skáney, bróður Halldóru,
húsfreyju á Augastöðum, langömmu
aflaskipstjóranna Auðunssona frá
Vatnsleysu, langömmu Ingva Þor-
steinssonar náttúrfræðings og lang-
ömmu Þorsteins Gíslasonar, mál-
arameistara og kaupmanns. Jón var
sonur Hannesar, b. á Hofsstöðum,
Sigurðssonar, og k.h., Sigríðar Jóns-
dóttur.
Guðrún var systir Jóhanns Berg-
mann, föður Árna Bergmann rit-
höfundar. Guðrún er dóttir Stefáns
Bergmann, ljósmyndara í Kefla-
vík, bróður Jónínu, ömmu Guð-
laugs Bergmann, forstjóra í Karna-
bæ. Stefán var sonur Magnúsar
Bergmann, hreppstjóra í Fuglavík,
sonar Jóns Bergmann, b. í Hópi,
og Neríðar Hafliðadóttur. Móðir
Stefáns var Jóhanna Sigurðardótt-
ir, bókb. í Tjarnarkoti, Sigurðsson-
ar, og Helgu Guðmundsdóttur frá
Miðhúsum.
Móðir Guðrúnar Bergmann
var Guðlaug Bergmann, dótt-
ir Bergsteins, b. á Þinghóli, Jóns-
sonar, b. í Tungu, Magnússonar.
Móðir Bergsteins var Ragnheið-
ur Bergsteinsdóttir frá Árgilsstöð-
um, systir Jóhannesar, afa Gunn-
ars Bergsteinssonar, fyrrv. forstjóra
Landhelgisgæslunnar. Ragnheið-
ur var einnig systir Þuríðar, lang-
ömmu Ólafs G. Einarssonar, fyrrv.
menntamálaráðherra og Boga Nils-
sonar ríkissaksóknara.
DV Ættfræði föstudagur 26. október 2007 41
MAÐUR VIKUNNAR
Rúnar Júlíusson
hljómlistarmaður og útgefandi
Guðmundur Eiríksson
sendiherra
Guðmundur fæddist í Winni-
peg í Kanada 26.10. 1947. Hann
lauk BA-prófi frá Rutgers-há-
skóla í Bandaríkjunum 1970, BS-
prófi í byggingaverkfræði þaðan
1970, lagaprófi frá King‘s Coll-
ege, Lundúnaháskóla 1973, LLM-
prófi í lögfræði frá Columbia-
háskóla í New York 1974, prófi í
kerfisfræði frá RCA Training Inst-
itute í Bandaríkjunum 1970 og
var gistifræðimaður við háskól-
ann í Virginíu 1984 og 1985.
Guðmundur var bygginga-
verkfræðingur hjá Parsons, Brink-
erhott, Quade and Douglas í New
York, hjá Turner Construction í
New York og hjá borgarverkfræð-
ingi í Reykjavík 1969-74, kerfis-
fræðingur hjá RCA Corporation
í New York og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur 1970-74, lögfræðing-
ur hjá Chadbourne, Parke, Whit-
esede and Wolfe í New York 1973,
lögfræðingur í hafréttardeild á
skrifstofu Aðalframkvæmdastjóra
SÞ í New York 1974-76, þjóðrétt-
arfræðingur í utanríkisráðuneyt-
inu frá 1977-96 og sendiherra
frá 1988. Hann var prófessor við
lagadeild háskólans í Nýju-Mex-
íkó í Bandaríkjunum 1994-95
og var stundakennari við HÍ frá
1987-96. Guðmundur var kjörinn
í alþjóðalaganefnd SÞ 1987 þar
sem hann sat til 1996. Hann var
kjörinn dómari við Alþjóðahaf-
réttardómstólinn 1997 og sat þar
til ársins 2002. Hann var forseti
sérdeildar dómsins um fiskveiði-
deilur 1999-2002. Guðmund-
ur skrifaði bók um dómstólinn,
The International Tribunal for
the Law of the Sea, sem gefin var
út af Kluwer-forlaginu í Hollandi
árið 2000 en hann hefur skrifað
fjölda greina um þjóðarrétt og
haldið fyrirlestra í háskólum víða
um heim um alþjóðastofnanir,
hafrétt, alþjóðlegan refsirétt, af-
vopnunarmál og mannréttindi,
svo dæmi séu nefnd.
Guðmundur var í sendinefnd
Íslands á þriðju hafréttarráð-
stefnu SÞ 1977-82, í sendinefnd
Íslands á ársfundum Alþjóða-
hvalveiðiráðsins frá 1986-96 og
fjölda annarra opinberra nefnda
frá 1977.
Guðmundur var deildarfor-
seti þjóðréttar- og mannréttinda-
deildar Friðarháskóla SÞ (UP-
EACE) í Kostaríka 2001-2003 og
aftur 2006. Hann gegndi stöðu
sendiherra Íslands í Kanada, Kól-
umbíu, Kostaríka, Ekvador, Ník-
aragva, Panama, Perú og Venes-
úela 2003-2005. Guðmundur var
í starfsleyfi frá utanríkisþjón-
ustunni 2005-2006 og stundaði
rannsóknir og kennslu við laga-
deild Friðarháskólans. Hann var
sérfræðingur hjá Mannréttinda-
stofnun SÞ 2006.
Hann var forseti NASCO 1984-
88, í alþjóðanefnd Rauða kross
Íslands frá 1985 og var í stjórn
körfuknattleiksdeildar KR 1982-
86, er mikill áhugamaður um iðk-
un tennisíþróttarinnar á Íslandi,
var formaður tennisnefndar ÍSÍ
1986-87 og í stjórn Tennissam-
bands Íslands 1987-90, kepp-
ir reglulega í tennis, síðast í Ís-
landsmóti utanhúss 2007. Hann
var stjórnarformaður Styrktar-
félags Íslensku óperunnar 1987-
88, stjórnarformaður stjórnar
Íslensku óperunnar 1988-96 og
hefur verið í kór Íslensku óper-
unnar frá 1987.
Guðmundur hefur verið
sæmdur stórriddarakrossi hinn-
ar íslensku fálkaorðu.
Kona Guðmundar er Þórey
Vigdís Ólafsdóttir, f. 30.12. 1949,
sálfræðingur og félagsráðgjafi.
Hún er dóttir Ólafs Björns Guð-
mundssonar lyfjafræðings og El-
ínar Maríusdóttur húsmóður.
Börn Guðmundar og Þóreyj-
ar eru Guðrún Dögg, f. 29.6.
1973, framkvæmdastjóri Mann-
réttindaskrifstofu Íslands en
maður hennar er Óttar Freyr
Gíslason umhverfissérfræð-
ingur hjá EFTA; Ólafur Björn,
f. 6.5. 1977, framkvæmdastjóri
en unnusta hans er Vigdís Pét-
ursdóttir, nemi; Elín Vigdís, f.
31.10. 1985, laganemi en unn-
usti hennar er Jóhann Meunier,
verslunareigandi; Helga, f. 22.7.
1988, nemi.
Systkini Guðmundar eru
Brynjólfur, f. 22.10. 1946, full-
trúi, og Guðný, f. 29.1. 1950, líf-
efnafræðingur.
Foreldrar Guðmundar: Ei-
ríkur Sverrir Brynjólfsson, f. 7.9.
1903, d. 21.10. 1962, prestur á
Útskálum og í Vancouver í Kan-
ada, og Guðrún Guðmunds-
dóttir, f. 15.11. 1909, húsfreyja.
Guðmundur er staddur er-
lendis á afmælidaginn.
Rúnar Júlíusson verður í bana-
stuði á stórtónleikum sínum í
Laugardalshöllinni á laugar-
dagskvöldið kl. 20. Þar koma
meðal annarra fram, ásamt
honum, Bubbi Morthens,
Björgvin Halldórsson, Shady
Owens, Magnús Kjartansson
og Jóhann Helgasson. Sem sagt
landsliðið í klassísku rokki og
poppi sem engu hefur gleymt,
en ýmsu bætt við sig frá því á
gullaldarárunum.
60 ára í dag