Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 40
Ættfræði DV ættfræði U m s j ó n : K j a r t a n G u n n a r K j a r t a n s s o n N e t f a n g k g k @ s i m n e t . i s Í fréttum var þetta helst... 26. október 1937 Ljós og orka frá Ljósafossvirkjun Áætlanir um Sogsvirkjanir Fyrstu hugmyndir um virkjun Sogsins fyrir Reykjavík komu fram 1906. Næstu árin þótti það álitamál hvort ætti fremur að virkja Elliðaárn- ar eða Sogið. En eftir lauslegar kostn- aðaráætlanir þótti sýnt að virkjun í Soginu yrði Reykvíkingum fjárhags- lega ofviða og var því ráðist í virkjun Elliðaánna sem færðu Reykvíkingum rafmagn árið 1921. En Reykvíkingar gleymdu ekki Soginu. Bæjarstjórnin fór að bera sig eftir vatnsréttindum þar árið 1917 enda ljóst að þangað myndi höfuð- borgin sækja sína framtíðarorku. Árið 1933 fékk Reykjavíkurbær einka- rétt á virkjun Sogsins með lögum frá Alþingi. Sogsvirkjun var þá stofnuð sem sérstakt fyrirtæki Reykjavíkur- bæjar, hafist var handa við virkjunar- framkvæmdirnar 1935 og þeim lokið árið 1937. Ljósafossvirkjun er fyrsta stóra vatnsaflsvirkjunin hér á landi þó þró- unin í virkjanamálum hafi fyrir löngu gert hugtökin „stór“ og „lítil“ afstæð. Ljósafossvirkjun var síðan stækkuð á næstu árum, Írafossvirkjun byggð á árunum 1950-53 og Steingrímsstöð vígð árið 1959. Framkvæmdir við Ljósafossvirkj- un fyrir sjötíu árum áttu fátt sameig- inlegt með virkjunarframkvæmdum nútímans enda var öll jarðvinna að mestu unnin með hökum og skófl- um en stórtækar vinnuvélar voru þá óþekktar hér á landi. Það dró samt ekki úr mikilvægi virkjunarinnar fyr- ir Reykvíkinga, heimili þeirra og at- vinnulíf. Höft gegn hagkvæmni Ljósafossvirkjun stórjók og gjör- breytti raforkunotkun á höfuðborg- arsvæðinu. Fram að þeim tíma hafði rafmagn nánast eingöngu verið nýtt til lýsingar og að nokkru til vélarekst- urs í iðnaði. Gas var hins vegar mik- ið notað til eldamennsku sem og kolavélar. Nú fjórfaldaðist hins vegar framleiðslan á rafmagni til Reykvík- inga og það varð mun ódýrara. Bæj- aryfirvöldum var bráðnauðsynlegt að stórauka rafmagnsnotkun til að standa í skilum með háar afborganir af framkvæmdalánum. Bæjarstjórn- in vildi einnig draga úr kolamengun en á þessum árum var það alvanalegt að kolaslæða yfir bænum byrgði fyrir sól. Auk þess var rafmagnið öruggara og það var deginum ljósara að það var miklu hagkvæmara fyrir þjóðina að nýta betur eigið rafmagn frem- ur en að flytja inn kol eða framleiða gas. En hér stóðu pólitískir fordóm- ar haftastefnunnar í vegi fyrir slík- um framförum. Allur innflutningur á rafmagnstækjum til heimilisnota var í höndum ríkisins, var meira og minna bannaður, en þar fyrir utan með mjög háum innflutningstollum. Sama dag og Morgunblaðið greindi frá því að hleypt hefði verið rafmagni á Rafmagnsveitu Reykjavík- ur frá Sogsvirkjun, þann 26. október 1937, greindi blaðið frá því í annarri frétt á sömu síðu að þrír alþingis- menn, með Pétur Halldórsson borg- arstjóra í broddi fylkingar, hefðu lagt fram frumvarp á Alþingi um að bæj- arstjórn Reykjavíkur yrði heimilað að flytja inn heimilistæki fyrir bæjar- búa og selja þau á kostnaðarverði, og að háir tollar og innflutningsgjöld af slíkum tækjum yrðu lögð af. RAFHA-eldavélar Stjórn hinna vinnandi stétta var hins vegar ekki á því að eyða dýr- mætum gjaldeyri í erlendar elda- vélar. Haftastjórninni var þó ekki alls varnað því hún tók þátt í því að stofna Raftækjaverkstæði Hafnar- fjarðar hf, árið 1936, ásamt tuttugu og tveimur einstaklingum. Árið 1937 hafði fyrirtækið hafið framleiðslu á eldavélum sem upphaflega voru eftir norskri fyrirmynd og um mán- aðamótin ágúst-september sá fyrsta RAFHA-eldavélin dagsins ljós. RAFHA-vélarnar komu því eins og kallaðar og þóttu fljótlega afbragð annarra eldavéla, vandaðar, öruggar og ótrúlega endingargóðar. Reykvísk eldamennska var því rafvædd, þrátt fyrir höftin, og nokkrar kynslóð- ir Íslendinga elduðu allan sinn mat á RAFHA-vélum án þess að verða meint af. Borgarskáld frá bökkum Sognsins Þó ríkið hafi með tímanum eign- ast sífellt stærri hlut í virkjununum þremur við Sogið og þær síðan geng- ið inn í Landsvirkjun, verður því ekki á móti mælt að Sogið hefur reynst Reykjavík hreinasta lífæð. En Sogið á sér fleiri og skáldlegri hliðar því það skáld tuttugustu ald- ar sem öðrum fremur hefur ver- ið nefndur skáld Reykjavíkur, kem- ur einmitt frá bökkum Sogsins, eða nánar tiltekið frá Efri-Brú í Gríms- nesi. Þegar önnur skáld fundu Reykjavík flest til foráttu varð Tómas Guðmundsson málsvari Reykjavíkur og mannlífsins þar með sinni angur- væru fegurðardýrkun. Eins og fljótið hans, Sogið, kveikti hann líka ljós í Reykjavík á kreppuárunum með vin- sælustu ljóðabók Íslandssögunnar, Fögru veröld. Bókin seldist upp á ör- fáum dögum er hún kom út árið 1933 og hún var tvisvar endurútgefin á einu ári. Fyrir vikið varð Tómas ástsælasta skáld Reykjavíkur. Fljótið helga Það vill stundum gleymast að Tómas er ekki síður skáld tregans en æsku og ástar. „Aldrei framar kemur neitt sem er liðið“ – seg- ir hann í Gömlu ljóði, sem og „Tíminn er dauður á þeirri stund, er hann fæðist“. Tómas gerir svo fljótið að tákni tímans, – tákni framvindunnar, fallvaltleikans og breytinganna, samanber til dæm- is Morgunljóð úr brekku. Eftir því sem hann glímir lengur við hinar áleitnu spurningar um tímann og dauðann verður fljótið að Fljótinu helga sem er auðvitað fljót æsku- slóða hans, Sogið. Síðasta ljóðið í ljóðabókinni Fljótinu helga heitir Fljótið helga. Það er tær snilld og ein af perlum íslenskra bókmennta. Síðasta er- indi þess er svona: Og geiglausum huga ég held til móts við haustið, sem allra bíður. Og sefandi harmljóð hins helga fljóts úr húminu til mín líður. Eins veit ég og finn að það fylgir mér um firð hinna bláu vega, er hníg ég eitt síðkvöld að hjarta þér, ó, haustfagra ættjörð míns trega. Kristján Valur Ingólfsson lektor og Þingvallaprestur Kristján Valur fæddist í Dal í Greni- vík og ólst þar upp og á Akureyri. Hann lauk stúdentsprófi frá ML 1968, embættisprófi í guðfræði frá HÍ 1974, stundaði framhaldsnám í kennimann- legri guðfræði við háskólann í Heidel- berg 1977-85 og aftur við sama skóla til doktorsverkefnis 1996-97 og 1998. Kristján Valur var prestur á Rauf- arhöfn 1974-77 og sumarið 1978, þjónaði Sauðanesprestakalli af og til 1975-77, var farprestur í Ísafjarðar- prestakalli 1985-86, sóknarprestur á Grenjaðarstað 1986-92, rektor í Skál- holti 1992-99, stundakennari í helgi- siða- og sálmafræðum við orgeldeild Tónlistarskólans á Akureyri 1989- 91, stundakennari í liturgiskri söng- fræði við guðfræðideild HÍ 1992-93 og haustið 1997, lektor í liturgiskum fræðum í hálfu starfi við sömu deild frá árinu 2000. Frá sama ári verkefnis- stjóri á Biskupsstofu og frá 2003 einn- ig Þingvallaprestur. Kristján Valur hef- ur ritað greinar í tímarit kirkjunnar um guðsþjónustur og helgisiðafræði og samið og þýtt yfir sextíu sálma og kirkjusöngva. Hann á sæti í Bygginga- og listanefnd Þjóðkirkjunnar, í nefnd- um um endurskoðun sálmabókar og handbókar Þjóðkirkjunnar, hefur átt sæti í helgisiðanefnd Þjóðkirkjunnar frá 1978 og verið formaður hennar frá 1997. Kristján kvæntist 12.6. 1972 Mar- gréti Bóasdóttur, f. 28.11. 1952, söng- konu og viðskiptafræðingi. Hún er dóttir Bóasar Gunnarssonar og Krist- ínar Sigfúsdóttur. Synir Kristjáns og Margrétar eru Bóas f. 16.2. 1982, við nám í fatahönn- un í Antwerpen, og Benedikt, f. 23.9. 1987, söngnemi við Tónlistarskólann í Reykjavík, og nemi í bókmenntum við HÍ. Systkini Kristjáns Vals eru Sigríður Inga, f. 5.12. 1934, húsfreyja að Hlíð- arholti í Reykjadal; Ernst Hermann, f. 12.1. 1936, verkamaður á Grenivík; Jóhann Brynjar, f. 6.8. 1940, rafvirkja- meistari á Akureyri; Ingólfur Steinar, f. 7.5. 1944, rafvélavirkjameistari á Ak- ureyri; Björn Andrés, f. 7.5. 1944, fyrr- verandi skólastjóri á Grenivík; Anna Steinlaug, f. 2.6. 1951, verslunarmaður á Akureyri; Haukur Már, f. 16.7. 1952, bifvélavirki og tónlistarmaður á Ak- ureyri, Guðbjörg Ásdís, f. 21.2. 1954, verslunarmaður í Reykjavík; Kristín Árný, 28.6. 1955, húskona á Grenivík. Foreldrar Kristjáns: Ingólfur Bene- diktsson, f. 25.9. 1908, d. 6.5. 1990, málarameistari í Dal í Höfðahverfi, og Hólmfríður Halldóra Björnsdóttir, f. 8.4. 1912, d. 22.7.2004 húsmóðir. Afmælisbarnið heldur upp á af- mælið með messu í Friðrikskapellu kl. 9.30 á afmælisdaginn og málþingi um kennimannlega guðfræði í suðursal Hallgrímskirkju laugardaginn 27.10. kl. 13-17. Ættfræði DV Kjartan Gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp frétt- næma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk�dv.is. Rafmagni frá Ljósafoss- virkjun í Soginu var hleypt á Reykjavík þann 25. október 1937. Þar með fjórfaldaðist raforku- framleiðsla til höfuðborg- arsvæðisins, rafmagn lækkaði í verði, kola- og gaseldavélar viku fyrir raf- magnsvélum og kolaský- in yfir Reykjavík þynnt- ust smám saman og hurfu með tímanum. Ljósið og orkan frá Ljósafossi í Sog- inu árið 1937 voru því í margvíslegum skilningi ljós í myrkri langvarandi kreppu, atvinnuleysis, mengunar og haftastefnu. föstudaGur 26. oKtóber 200740 60 ára á sunnudag Hornsteinn lagður að Ljósafossvirkjun 1936 fremst sitja Kristján X og alexandría drottning en Pétur Halldórsson borgar- stjóri heldur ræðu. baka til má greina Hermann Jónasson forsætisráðherra, dökkklæddan með svartan hatt. Kolamistur yfir Reykjavíkurhöfn á millistríðsárunum Húsin fyrir neðan arnarhól eru Nordalsíshús, Verkamannaskýlið við tryggvagötu og Varðarhúsið við Kalkofnsveg. Lengst til hægri sjást stórir kolabingir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.