Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 21
Orkurík stórsveit
Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur á
sunnudaginn kl. 15. Stjórnandi og einleikari verður sænski trompet-
leikarinn Lasse Lindgren en flutt verður tónlist stórsveitar trompet-
leikarans Meynards Ferguson (1928-2006) en hann er frægur fyrir
gríðarlegt tónsvið og afar orkuríkan tónlistarflutning.
DV Menning föstudagur 26. október 2007 21
Píanósnill-
ingur í
Salnum
Rússnesk-ísraelski píanó-
snillingurinn Albert Mamriev
heldur tónleika í Tíbrá, tón-
leikaröð Salarins í Kópavogi, á
morgun kl. 17. Á efnisskránni
eru umritanir eftir Franz Lizst
á stefjum og þáttum úr óper-
um Richards Wagner, Rienzi,
Lohengrin, Niflungahringn-
um, Hollendingnum fljúgandi,
Tristan og Ísold, Meistarasöng-
vurunum frá Nürnberg og for-
leikurinn að Tannhäuser. Áður
en tónleikarnir hefjast flytur
Reynir Axelsson formálsorð
þar sem hann fjallar um tengsl
þeirra Wagners og Liszt.
Slettan og
símynstrið
Sýning á verkum JBK Ransu
verður opnuð í Listasafni ASÍ
á morgun kl. 15. Á sýningunni,
sem kallast Xgeo III, eru mál-
verk sem Ransu hefur verið
að þróa síðan árið 2000 og eru
tilraun til að setja athafnarmál-
verk og strangflatarmálverk
í eina skynheild út frá öfgum
hvors myndmáls fyrir sig. Það
er, slettan og símynstrið, gjörn-
ingurinn og mantran,„happen-
ing“ og „non-happening“. Sýn-
ingin stendur til 18. október og
er safnið opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 13 til 17.
Áhrifamikill
leikstjóri
Í tilefni gestaleiks End-
station Amerika frá Berlín í
Borgarleikhúsinu um helgina
býður leikhúsið áhorfendum
til stefnumóts við leikstjórann,
Frank Castorf, á morgun kl.18.
Castorf er án efa einn af áhrifa-
mestu leikstjórum og leikhús-
stjórum Evrópu. Sýningar hans
hafa bæði heillað og hneyksl-
að en láta sjaldnast áhorfend-
ur sína ósnortna. Endstation
Amerika verður sýnd í kvöld og
á morgun en hún hefur ferðast
víða og alltaf fengið frábærar
undirtektir.
Eldjárnssystkinin
Sýning á olíumálverkum sem Sigrún Eldjárn gerði við ljóð bróður síns
Þórarins fyrir bókina Gælur, fælur og þvælur verður opnuð á Torginu í
Þjóðminjasafni Íslands á morgun klukkan 14. Við sama tækifæri kemur
bókin út hjá Forlaginu ásamt geisladiski sem henni fylgir. Þórarinn ætlar
að lesa ljóð úr bókinni og að dagskrá lokinni árita hann og Sigrún bókina.
Menningarráðstefna á Bifröst á morgun:
Menning til höfuðs kapítalisma
Vangaveltur um hvort norrænt
samstarf sé sköpun eða skipbrot
og umfjöllun um menningu til höf-
uðs kapítalismanum eru á með-
al þess sem er á dagskrá ráðstefnu
í Háskólan-
um á Bifröst
á morgun.
Ráðstefnan ber yfirskriftina Menn-
ing sem atvinnugrein, ráðstefna um
tækifæri menningarstarfs fyrir sam-
félög utan höfuðborgarinnar. Menn-
ingarráð Vesturlands og námsbraut
í meistaranámi í menningarstjórn-
un á Bifröst standa að ráðstefnunni.
Dagskráin hefst á því að Helga
Halldórsdóttir, formaður menning-
arnefndar Vesturlands, setur ráð-
stefnuna og Elísabet Haraldsdótt-
ir, menningarfulltrúi á Vesturlandi,
kynnir nokkur verkefni sem menn-
ingarráðið styrkir. Ágúst Einarsson,
rektor Háskólans á Bifröst, flytur
erindi sem hann kallar Menning
sem atvinnugrein. Steinþór Birgis-
son sýnir stutt brot úr kvikmynd um
vesturfara sem nú er unnið að og
kynnir myndina. Jafnframt verður
sýnd stuttmyndin Eyja sem er inn-
legg Daggar Mósesdóttur í alþjóð-
lega stuttmyndahátíð sem hún stýr-
ir í Grundarfirði í febrúar á næsta
ári.
Signý Ormarsdóttir, menningar-
fulltrúi á Austurlandi, flytur erindi
sem hún kallar Norrænt samstarf -
sköpun eða skipbrot og Njörður Sig-
urjónsson, lektor við félagsvísinda-
deild Háskólans á Bifröst, kallar sitt
erindi Menning til höfuðs kapítal-
ismanum. Í lok ráðstefnunnar verða
almennar umræður undir stjórn
Njarðar Sigurjónssonar.
Ráðstefnan, sem stendur frá kl.
13 til 16, er öllum opin og aðstand-
endur hennar hvetja þá sem vinna
að menningarstarfi eða hafa áhuga
á að efla menningu á landsbyggð-
inni að taka þátt í henni.
ráðstefna
Unnið með Gus Gus og Steed
Lord
Eins og getið var í upphafi hef-
ur Sigrún meðal annars gert verk
sem notuð hafa verið á tónleikum
hljómsveita eins og Gus Gus og
Steed Lord. „Svo hef ég gert verk
fyrir Reykjavik Tropic og úti fyrir
listahátíð sem heitir Avid Festival
og er aðalhátíðin fyrir svona list.
Svo hef ég verið að gera verk fyr-
ir tónleika hér og þar og fyrir vini
mína, þannig að ég er ekki að fá
mikið borgað fyrir þetta, þannig
séð. Þetta er náttúrlega mjög lít-
ið samfélag, en mun stærra úti á
Englandi en hérna heima,“ segir
Sigrún og kveðst reyndar halda að
það séu einungis tveir aðrir í þessu
á Íslandi.
Tom segir að í Bretlandi séu
líka stórir klúbbar sem séu vett-
vangur fyrir vídeólist, og svokall-
aða „vj‘s“ eða video jockeys, sam-
anber „dj´s“ eða plötusnúða. „Svo
eru hljómsveitir sem halda risat-
ónleika, til dæmis Radiohead og
U2, með video jockeys með sér.
Það er ekki mikið um það í íslensku
tónlistarlífi auk þess sem það eru
ekki þessir stóru næturklúbbar á
Íslandi þannig að þetta samfélag
hérna hefur í raun ekki enn þróast.
Á Englandi er það bara talið eðli-
legt að hafa hljómsveit, plötusnúð
og/eða vj á klúbbunum,“ segir Tom
og bæði hann og Sigrún segjast
vona að það verði meira um þetta
á Íslandi í framtíðinni. „Ef þú ert
með eitthvað öðruvísi, hvort sem
það er á næturklúbbi, í galleríi eða
einhvers staðar annars staðar, þá
trekkir það líka fleira fólk að,“ seg-
ir Tom.
Hitti Paul McCartney
Sigrún lærði við The Liverpool
Institute for Performing Arts, LIPA,
- eða Paul McCartney-skólann
eins og hann er gjarnan kallaður
því Bítillinn endurreisti hann fyrir
rúmum áratug og situr í stjórninni
- þaðan sem hún útskrifaðist árið
2002. „Ég lærði sviðs-, ljósa- og
búningahönnun og fór út í það að
nota vídeó mikið í sviðshönnun-
inni. Þannig fór ég að hanna meira
og meira fyrir tónleika og dans-
sýningar sem endaði með því að
ég var eiginlega bara í vídeóunum
og myndbandslistinni, eða hvað ég
á að kallað það. Núna hef ég verið
að gera visuals fyrir tónleika í sex,
sjö ár og fór að hugsa hvernig ég
gæti gert meira fyrir almenning og
þannig að fólk geti átt verk heima
hjá sér,“ segir Sigrún og hefur af-
rakstur þeirra vangaveltna nú lit-
ið dagsins ljós í formi Eyelove Ice-
land-disksins.
Sigrún segir það hafa verið
rosalega upplifun að læra við LIPA.
„Það er svo mikið af kreatífu fólki
í þessum skóla. Það eru til dæm-
is leikarar, tónlistarfólk, umboðs-
menn og bara allt sviðið þannig að
það er svo létt að búa til hluti þarna
og láta eitthvað gerast. Og maður
kynntist helling af frábæru fólki.“
Sigrún segir námið fyrst og fremst
hafa verið skemmtilegt frekar en
erfitt. „Þetta var nánast allt verklegt
fyrir utan nokkrar ritgerðir. Það var
kannski ein á hverri önn. Allt hitt
var verklegt sem er bara skemmti-
legt.“ Afar erfitt er að komast inn
í skólann og segir Sigrún að árið
sem hún komst inn hafi einungis
tíu prósent af þeim 2000 sem sóttu
um fengið inngöngu.
Og hún hitti sjálft goðið
McCartney og upplifði það sem
margir virðast gera þegar þeir
hitta frægt fólk: fannst hann miklu
minni en hún hélt. „Hann virkaði
mjög fínn en annars talaði ég bara
við hann í einhverja hálfa mínútu.
Mér tókst ekki alveg að brjóta kar-
akter hans til mergjar,“ segir Sigrún
og hlær dátt.
Örlagarík heimsreisa
Sigrún og Tom kynntust á náms-
árum hennar í Bítlaborginni og að
sögn Toms hafa þau nú verið sam-
an í sex ár. „Við byrjuðum samt ekki
að vinna saman fyrr en fyrir svona
einu til tveimur árum. Við vorum
bara hvort í okkar horni, ég í graff-
ítinu og hún í vídeóverkunum.“ Sig-
rún bætir við að hugmyndin að því
að þau myndu vinna saman hafi
eiginlega kviknað í árslöngu ferða-
lagi þeirra um heiminn sem lauk
á síðasta ári. „Í Brasilíu hittum við
gaura sem blönduðu saman graffíti
og vídeói og það var líklega í fyrsta
skipti sem við sáum það gert.“
Skötuhjúin fóru til fjögurra
heimsálfa á ferðalagi sínu og
dvöldu í um það bil þrjá mánuði í
hverri. Þau segjast hafa hitt tölu-
vert af fólki sem var að fást við svip-
aða listsköpun og þau en oft með
annars konar nálgun. Og þau eru
ekki frá því að ferðalagið hafi breytt
þeim að einhverju leyti sem lista-
menn. „Þetta varð mér mikill inn-
blástur,“ segir Tom. „Á Englandi er
mikil hefð og einstefna innan lista-
heimsins. Þarna sáum við fólk sem
var mjög opið í sköpuninni og var
ekkert með hugann allt of mikið
við afraksturinn. Það gerði mikið af
tilraunum og naut þess.“
Hringrás hátíða hættuleg
Sigrún og Tom búa á Seltjarn-
arnesinu og hafa einnig vinnuað-
stöðu þar í bæ, í sama húsi og Bón-
us. Þau hyggjast búa hér kannski
næsta árið eða svo og sjá svo til, en
draumur Sigrúnar er að geta búið
og starfað helminginn af árinu
hér á landi og hinn helminginn á
Englandi. Tom vinnur á frístunda-
heimili samfara vinnu sinni innan
listarinnar og lætur vel af. Aðspurð
um framtíðarplön segjast þau bara
ætla að halda áfram að búa til lista-
verk og sýna á fleiri sýningum, til
dæmis á Vetrarhátíð í Reykjavík
í febrúar og svo á listahátíð á Eg-
ilsstöðum í mars. „Maður verður
samt að passa sig á því að festast
ekki í einhverri hringrás hátíða,“
segir Tom. „Ef þú heldur þig bara
við þannig dagskrá, þá gefurðu þig
kannski ekki allan í þetta.“
SJÓNVARPINU
breytt í listaverk
Varpað á vegg Verk sigrúnar og toms sem vakti mikla athygli á sequences-
hátíðinni á dögunum. Eyelove Iceland dVd-diskur með
skjálistaverkum sigrúnar sem kom út
nýverið.
Gömul hús Þessi húsaþyrping er eitt viðfangsefna sigrúnar á eyelove Iceland.