Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Síða 37
Líkamsrækt ekki
síður fyrir sálina
Og beið íslenska þjóðin eftir þér?
„Já, já, og er enn að taka við því
sem ég hef fram að færa,“ svarar hún
brosandi. „Það sem mér finnst svo
kostulegt að eftir að hafa rekið skóla
í yfir fjörutíu ár segir fólk ennþá við
mig: „Ertu ENNÞÁ að þessu?“ Svona
væri karlmaður með fyrirtæki aldrei
spurður, ég get eiginlega lofað þér
því. Þegar ég kom heim, á nítjánda
ári, kenndi ég einn vetur hjá Sigríði
Ármann og leigði svo sal hjá henni
að vori. Þar vildi ég prófa minn eigin
stíl og sjá hvort þetta virkaði. Ég fékk
strax sextíu nemendur og tók svo á
leigu efstu hæðina í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu. Þá tók alvaran við, því á
þessum tíma var eins og lífið færi bara
fram frá því í október fram í apríl og
þá hættu allir að gera það sem þeir
gerðu yfir vetrartímann. En ég þurfti
að borga húsaleiguna allt árið svo
mér datt í hug að herma eftir Bretun-
um. Þar hafði ég nefnilega séð dans-
ara vinna fyrir salti í grautinn með
því að vera með líkamsræktaræfing-
ar fyrir konur. Þessar æfingar voru svo
ólíkar þeim sem við þekktum úr leik-
fimitímum í skólum, enda leikfimi
hönnuð af karlmönnum og miðað-
ist við áhugasvið karlmanna: Hanga í
köðlum, hoppa yfir „hestinn“. Hvaða
stelpur hafa áhuga á þessu? Í Art´s
hafði ég hins vegar séð fallegar æfing-
ar við tónlist og það varð upphafið að
líkamsrækt JSB sem er enn við lýði.
Samt var ég ákveðin á þessum upp-
hafspunkti að festast ekki í hlutverki
kennarans. Ég var að semja dansa og
sýna á árshátíðum og öðrum hátíðum
og fannst upplagt að hafa einhverja
dansara með mér og sýna þetta nýja
listform. Ég ætlaði bara að vera tíma-
bundið í hlutverki kennara. Ég er ekki
viss um að fólk átti sig almennt á því
að líkamsrækt eins og hún var upp-
haflega er komin frá dansiðnaðinum.
Líkamsrækt er líka annað og meira en
að gera æfingar; hún er svo góð fyrir
sálina. Þannig varð kennslusalurinn
minn að nokkurs konar félagsmið-
stöð fyrir konur, sem höfðu helgað
heimilinu allan sinn tíma.“
Henti heimildaskrá um holdafar
20.000 kvenna!
Í fyrra var húsnæði starfsemi skóla
Báru í Lágmúla 9 stækkað um meira
en helming, en þar höfðu aðalstöðv-
ar verið í fjórtán ár eða frá því skólinn
fluttist úr Suðurveri eftir 28 ára veru
þar. Þá tók Bára ákvörðun um að
fleygja nokkrum gömlum hlutum sem
höfðu fylgt henni gegnum tíðina.
„Meðal þess voru spjaldskrár
með nöfnum allra þeirra kvenna sem
höfðu komið í æfingar til okkar í Suð-
urveri. Á þessum spjöldum voru nöfn
yfir tuttugu þúsund kvenna, þannig
að í rauninni var ég að henda afar
mikilvægum heimildum yfir holdafar
íslenskra kvenna í tæpa þrjá áratugi.“
Djassballet átti ekki beint upp á
pallborðið hjá dansarastéttinni á Ís-
landi þegar Bára kom heim úr nám-
inu og hún þurfti að berjast fyrir til-
veru sinni.
„Eitt dæmi um það er að ég fékk
ekki sæti í Danskennarasambandi Ís-
lands,“ segir hún.„Ég átti annaðhvort
að kenna klassískan ballett eða sam-
kvæmisdansa, því annað var ekki
marktækt til inngöngu. Sautján árum
seinna var ég orðin meðlimur í sam-
bandinu sem þá hét Dansráð Íslands.
Þar var ég í stjórn í mörg ár og forseti
félagsins í þrjú kjörtímabil. Það liggja
nefnilega svo margar leiðir til Rómar!
Ég leit þó aldrei svo á að þetta væru
einhverjir erfiðleikar, heldur bara við-
fangsefni og meira að segja spenn-
andi viðfangsefni sem ég yrði að vinna
úr, því á þessum tímum var það bara
þannig að djassballett þótti tískubóla
af mörgum í greininni eða bara ein-
hver vitleysa en ekki eðlileg framþró-
un og viðbót við danslistina. Auðvit-
að þótti mér erfitt á tímabili að fá ekki
að vera með í félagsskap danskenn-
ara, en bar aldrei neinn kala til þessa
fólks og eftir inngöngu mína í félag-
ið höfum við unnið mjög vel saman
um árabil. Við verðum að vera opin
fyrir framþróun og eðlilegri „spírun“
í listinni. Nútímadans er mun meira
dansaður í heiminum í dag en klass-
ískur ballett og samkvæmisdansar.
Þetta var vel þegin nýjung á Íslandi
og reykvíska unglinga þyrsti í nýja list
og tómstundaiðkun. Ég fékk strax tvö
hundruð nemendur, enda djassballet
þess eðlis að hann er hægt að dansa
við hvaða tónlist sem er og auðvelt að
semja dansa sem tilheyra þeirri tón-
listarstefnu sem er ríkjandi hverju
sinni.“
Skömmu eftir heimkomuna tók
Bára þátt í keppninni Ungfrú Ísland.
Hún var kjörin Ungfrú Reykjavík árið
1965 og hélt til Flórída í alheimskeppni
fyrir hönd Sigrúnar Vignisdóttur sem
hlutskörpust hafði orðið. Tvítug var
hún gift og orðin móðir.
„Maðurinn minn var Haraldur Ól-
afsson, en hann lést þegar eldri sonur
okkar, Ólafur , var tólf ára og sá yngri,
Magnús, á öðru aldursári. Ég var því
orðin ekkja þrjátíu og eins árs og með
fangið fullt af lífsreynslu sem ég vissi
ekki alveg hvað ég átt að gera við.“
Faðir Báru, Magnús Ingimarsson,
hafði verið við störf sem smiður á
Hvanneyri en við breyttar aðstæður
dótturinnar skipti hann um gír.
„Pabbi kom suður, flutti inn á
heimilið, setti upp svuntu og tók við
rekstri heimilisins svo ég gæti séð okk-
ur farborða,“ segir Bára eins og ekkert
sé eðlilegra. „Hann reyndist mér ein-
staklega vel á þessum tímum. Síðar
kynntist ég núverandi manni mínum
Ágústi Schram og við eigum saman
dótturina Þórdísi, sem er dansari og
starfar líka sem kennari en hún lauk
framhaldsnámi í Bretlandi 2003. Að
verða fyrir lífsreynslu af þessu tagi
svona ung er í eðli sínu áfall,“ segir
hún. „Það er kannski eins og að eldast
í reynslu um mörg ár á einu bretti. Sú
reynsla gerði mig á vissan hátt ótta-
lausa og um leið auðmjúka gagnvart
því óumbreytanlega. Ég tel að mín
reynsla geri það að verkum að ég get
mun betur sett mig í annarra spor
og oft er mikil þörf á því hér í skólan-
um. Hingað koma konur sem eru að
ganga í gegnum sára lífsreynslu og ég
á auðvelt með að vera huggari; þori
að ganga að fólki sem ég skynja að
líður illa og þori að ræða málin. Ég er
mikil tilfinningavera og geri allt á til-
finningunum. Ég hef neyðst til að vera
svolítið raunsæ og rökföst, þar sem ég
er líka að reka fyrirtæki, en í dansin-
um og líkamsræktinni er ég huglæg.
Mínir bestu hæfileikar felast í mann-
legum þáttum og það liggur vel fyr-
ir mér að hvetja, skapa og kenna. Ég
skynja mjög vel umhverfi mitt og finn
ef einhverjum líður illa. Ég er mjög
næm og finn vel fyrir áru fólks. Þess
vegna á ég mjög létt með að setja mig
í tilfinningalegt samband, hvort sem
fólk er að ná árangri, líður illa eða er
að fara í gegnum erfiðleika eins og
skilnað. Fólk er misjafnlega gefið fyrir
að koma að einhverjum sem líður illa,
en það tengist starfinu mínu og ég á
auðvelt með það.“
Málar tilfinningar sínar
Hún fær útrás fyrir tilfinningar sín-
ar með því að yrkja og mála myndir,
nú þegar hún er ekki að semja dansa
eða kenna í dansinum lengur.
„Ég skrifa alltaf um tilfinning-
ar og alltaf í bundu máli. Þetta er allt
af sama meiði, dansverkið, ljóðið og
myndin; þörfin fyrir að skapa finnur
sér leið fram. Þegar ég mála, mála ég
ekki myndir af húsum eða trjám – ég
mála tilfinningar. Það er einhver dul-
úð í myndunum mínum sem nærir
mig og þær sýna mér inn í nýjar og
spennandi víddir.“
Hún má vera stolt af lífsstarfi sínu
og að hafa aldrei gefist upp þótt á móti
hafi blásið í upphafi. Jazzballettskóli
Báru heitir nú Danslistarskóli JSB og
við hann nema átta hundruð nem-
endur.
„Þótt við höfum bætt átta hundruð
fermetrum við þá fimm hundruð og
fimmtíu sem við höfðum fyrir næg-
ir það engan veginn,“ segir hún stolt.
„Við leigjum aðstöðu í Laugardals-
höll og í Kópavogi, tómstundamiðaði
skólinn er með 650 nemendur og svo
eru rúmlega hundrað nemendur á
nýju listdansbrautinni sem var stofn-
uð í fyrra. Nú geta nemendur fengið
dansnámið metið til eininga á stúd-
entsprófi og Listaháskólinn er kom-
inn með dansbraut. Margir skólar er-
lendis bjóða háskólatengt dansnám
og útskrift með BA gráðu, er það mjög
af því góða að listnámi sé gert jafnhátt
undir höfði og öðru námi Þegar ég var
að læra var það ekki svo en ég var svo
heppin að hafa lent á svo góðum og
þekktum skóla að í sjálfu sér voru það
meðmæli að hafa lært þar. Mér finnst
vera viss sigur að koma starfsemi skól-
ans í stærra húsnæði, eiga vissan þátt
í stofnun og starfsemi Dansleikhúss-
ins sem er vettvangur fyrir unga dans-
ara og danshöfunda til að koma verk-
um sínum á framfæri og allt það sem
dansflokkur JSB hefur gert í gegnum
tíðina. Það er sigur að búa ungu lista-
fólki viðunandi umhverfi. Fyrir mig
skiptir gríðarlega miklu máli að dans-
sköpunin sé atvinnubær; að ungt
listafólk geti fundið tilgang í því að
láta listamanninn í sér vaxa og bera
ávöxt. Það er svo stutt síðan list hér á
Íslandi þótti bara tilheyra auðnuleys-
ingjum og þeim sem nenntu ekki að
vinna. Þá gekk allt út á það að hafa í
sig og á. Listin er nauðsynleg í hverju
þjóðfélagi. Þjóð án listar verður metn-
aðarlaus þjóð. Persónulegir sigrar
mínir í lífinu eru án nokkurs vafa þeir
að eignast börnin mín... nei, annars...
það er nú frekar gæfa en sigrar, er það
ekki? En hvað um það... Þau eru öll
orðin fullorðið fólk núna og auðvitað
alveg hreint frábærir einstaklingar og
mitt uppáhaldsfólk Við Ágúst eigum
saman tíu barnabörn sem ég nýt þess
að vera með í ævintýraleikjum, fara í
fjöruferðir og stunda útivist og ég held
ég sé bara nokkuð góð og skemmtileg
amma. En þegar þú spyrð hverjir séu
mestu erfiðleikar lífs míns þarf ég að
hugsa mig um...“
Aldrei flýja öldurnar
Sem hún gerir og svarar svo:
„Ætli ég hafi nokkurn tíma lent í
erfiðleikum, ég held bara ekki. Nema
þetta sé kannski bara allt erfiðleikar!“
Og þrátt fyrir að telja sig Reykvík-
ing, eftir tuttugu ára búsetu í Garða-
bænum, og þrátt fyrir að hún segi að
rætur sínar séu á Akranesi, er það
enginn þessara staða sem er eftirlætis-
staður hennar á landinu. Netta ball-
erínan á stað í sálinni sem hún tekur
öðrum fremur.
„Flateyri er eftirlætisstaðurinn,”
segir hún án umhugsunar. „Þar
dvaldi ég þrjú sumur á æskuárunum
og síðan þá hefur Flateyri átt mjög
stóran þátt í sál minni. Ég man eins
og það hafi gerst í gær þegar ég stóð
á Kambinum og horfði á bátana sigla
inn fjörðinn; ég man eftir húsinu sem
við fórum í til að fara í sturtu, þegar ég
fór til berja inn á Grafning og þegar ég
fylgdist með körlunum í beitiskúrun-
um. Ég held að Vestfirðir hafi áhrif á
alla sem þeim kynnast.“
Fjörutíu ára starfsferill að baki og
fjörutíu ár fram undan?
„Já, ég er enn að og það er enn-
þá mikið verk að vinna. Ég á marga
drauma. Einn þeirra er að sjá fleiri
dansflokka og enn fleiri dansara og
danshöfunda. Ég hlakka til hvers
dags. Hver dagur er svo spennandi og
dýrmætur og felur í sér svo margt sem
hægt er að njóta.“
En er eitthvað sem hún hefði viljað
sleppa við að upplifa? Svarið kemur
umhugsunarlaust:
„Nei, þannig hugsa ég aldrei, ein-
faldlega vegna þess að það hefur eng-
an tilgang. Það eina sem okkur stend-
ur til boða er að upplifa það sem lífið
færir okkur. Við eigum ekki að flýja til-
finningarnar og ekki reyna að kom-
ast frá þeim öldum sem koma upp að
okkur. Með því að vera einlæg í verki
og hugsun lifum við lífinu best. Það
felst svo mikill sigur í því að takast á
við lífið í þeirri mynd sem það bank-
ar upp á hverju sinni. Um leið og við
sigrumst á hlutunum, lærum við af
þeim og verðum fyrir vikið sterkari
manneskjur.“ annakristine@dv.is
DV Helgarblað föstudagur 26. október 2007 37
Draumar dansdrottningar
1978 bára ásamt Jack gunn, vel þekktum dansara og danshöfundi. tók þátt í flestum danssýningum í West end í London á sínum yngri árum og síðar sem danshöfundur og kennari. kom sem gestakennari 1978 og tókst með þeim góð vinátta. Var sæmdur heiðursorðu enska danskennarasambands-ins árið 2000 og bauð þá báru ásamt önnu Norðdahl að vera viðstaddar,
sem einnig er á myndinni, samstarfskona báru til marga ára, yfirkennari
skólans frá 1983 og starfar nú einnig sem starfsmannastjóri.
1983 eftir frumsýningu á
verkinu take it from the
topp hjá dansflokki Jsb.
1965 frá New
York áður en
haldið er til
Langasands.
1982 Á æfingu í
bolholti fyrir
sýninguna Jazz
Inn.
„Það eina sem okkur stendur til boða er
að upplifa það sem lífið færir okkur. Við
eigum ekki að flýja tilfinningarnar og
ekki reyna að komast frá þeim öldum
sem koma upp að okkur. Með því að vera
einlæg í verki og hugsun lifum við lífinu
best. Það felst svo mikill sigur í því að tak-
ast á við lífið í þeirri mynd sem það bank-
ar upp á hverju sinni. Um leið og við sigr-
umst á hlutunum, lærum við af þeim og
verðum fyrir vikið sterkari manneskjur.“
DV MynD Stefán