Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Qupperneq 56
föstudagur 26. október 200756 Helgarblað DV TónlisT Það er sjaldgæft að hljómsveitir komi fram sem allir þjóðfélagshóp- ar geta samþykkt. Sprengjuhöllin virðist hafa ótrúlega breiða skír- skotun og síðasta árið hafa strák- arnir verið að hitta poppnaglann rækilega á höfuðið. Eftir mikla eftir- væntingu er frumburður Sprengju- hallarinnar loksins kominn út. Á köflum eru Tímarnir okkar vægast sagt frábær poppplata. Fyrstu tvö lögin, Keyrum yfir Ísland og Síðasta bloggfærsla ljóshærða drengsins, eru með bestu lögum plötunnar. Ég gæti trúað því að fyrrnefnda lag- ið yrði með tímanum einkennislag ungra Reykvíkinga með fullt skott af bjór á fleygiferð niður Kambana á leið í útilegu. Svolítið eins og lagið Tætum og tryllum með Stuðmönn- um er fyrir eldri kynslóðir. Vænting- arnar og vonin í laginu eru eitthvað svo falleg. Bergur Ebbi Benedikts- son er nefnilega þrælgóður texta- höfundur og ljúfsár söngur Snorra Helgasonar hentar sveitinni mjög vel. Íslensk dægurlagatónlist hef- ur að mestu verið rjúkandi auðn í allt of mörg ár, en Sprengjuhöllinni virðist takast að græða hana upp á nýtt. Allar útsetningar, raddanir og almenn popp-krúttheit eru afgreidd með glæsibrag. Það tekur því varla að minnast á poppundrin Verum í sambandi og Tímarnir okkar sem annar hver Íslendingur er búinn að raula allt þetta ár. En þó svo stærsti hluti plöt- unnar sé algjört gæðapopp, þá eru á henni aðeins of margar misdjúp- ar lægðir sem maður freistast til að spóla hratt yfir. Á lokasprettinum missir platan svo nokkuð dampinn, en ég fyrirgef henni það alveg. Það er nefnilega óraunhæft að gera þá kröfu til hljómsveitar að hún sendi frá sér tólf laga skotheldan frum- burð. En mikið lofar byrjunin góðu. Valgeir Örn Ragnarsson Nýárstónleikar í Höllinni bubbi Morthens ætlar að halda stórtónleika á nýárskvöld í Laugardals- höll. Ásamt bubba verður á tónleikun- um stórsveit reykjavíkur undir stjórn Þóris baldurssonar. Hugmyndin kviknaði þegar bubbi útsetti þrjú lög með stórsveit fyrir afmæli ólafs ólafssonar í janúar síðastliðnum en á tónleikunum á nýárskvöld verða hvorki meira né minna en 22 lög eftir bubba sett í hátíðarbúning. Þá verða tónleikarnir teknir upp og gefnir út bæði á dVd og geisladiski líkt og bubbi gerði á afmælistónleikum sínum á síðasta ári. Tónlistarakademía DV segir Hlustaðu á þessa! tímarnir okkar - sprengjuhöllin Hold er mold - Megas og senuþjófarnir Iceland airwaves 07 - Ýmsir síðasta vetrardag - síðan skein sól Mugiboogie - Mugison Ósáttir við Vanilla Sky Á tónlistarvefsíðunni NMe er sagt frá því að hljómsveitin sigur rós hafi ekki verið ánægð með myndina Vanilla sky sem skartaði tom Crusie í aðalhlut- verki. Lag frá hljómsveitinni var í mynd- inni og sagði kjartan sveinsson að Vanilla sky hafi verið „a crap film“ þegar hann var spurður. atvikið átti sér stað eftir tónleika sveitarinnar á miðviku- daginn í London þegar blaðamenn spurðu út í heimildarmyndina hér heima. Armin Van Buuren bestur Hollenski plötusnúðurinn armin Van buuren var í gær kjörinn besti plötusnúður heims af breska tónlistartímaritinu dJ Magazine. Hann skákaði þar með hinum heimsfræga landa sínum dj tiesto sem endaði í öðru sæti en hann hefur unnið titilinn oftast allra. kosningin fór fram á netinu og voru 345.000 atkvæði greidd frá 220 löndum. kjörið er einn stærsti viðburðurinn í plötusnúðaheiminum ár hvert og er talið það marktækasta sinn- ar tegundar. tiesto er á leiðinni til Íslands og spilar á broadway 9. nóvember næstkomandi. GRÆÐA UPP AUÐNINA „Það er bara eins og hver önnur staðreynd,“ segir Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, aðspurður hvers vegna nýjasta platan hans ber nafnið Hold er mold. Platan er sam- starfsverkefni Megasar og Senuþjófanna en þetta er önnur platan sem þeir gefa frá sér á skömmum tíma. Fyrri platan sem kom út í sumar heitir Frá- gangur og fékk frábærar móttökur hjá gagnrýn- endum sem og almenningi. Tímabær kvenhylli Jónasar Plötuumslag Hold er mold hefur vakið töluverða athygli en þar sitja þrjár fáklæddar konur á leiði Jónasar Hallgrímssonar. „Mynd- in er listaverk eftir hann Ragnar Kjartansson,“ segir Megas en Ragnar, sem oft er kallað- ur Rassi prump, er einnig söngvari hljósm- veitarinnar Trabant. „Það vildi svo til að ég og Rassi vorum að sýna á sömu sýningu fyrr norðan árið 2005 og ég sá þessa mynd hjá honum og hreifst mikið af henni,“ en Megas segir að ákvörðunin um að nota hana sem plötuumslag hafi ekki komið fyrr en löngu seinna. „Þegar við vorum svo búnir að klára plötuna og hana vantaði umgjörð fóru Kiddi og Siggi Senuþjófar til Rassa að leita að mynd því þeir þekkja hann líka. Þeir komu svo með þessa mynd til baka og ég þekkti hana strax. Þá fannst mér þetta allt smella.“ Megas gefur lítið fyrir þær gagnrýnisraddir sem hafa heyrst út af myndinni. „Það var löngu kominn tími til að einhver kvenmaður kæmist á Jónas,“ segir Megas glettnislega og nefnir að það fari tvennum sögum af því hvort Jónas hvíli þarna í raun og veru. „Annars er þetta listaverk sem dekkaði allt sem dekka þurfti. Þarna eru konurnar ofan á leiði þar sem Jónas á að liggja eða það sem eftir af honum er, mold. Þær verða eins og hann og hann varð eins og þær. Bara ekki jafnfallegur.“ Megas segir að jafnframt liggi viss sannleikur í myndinni: „Hún segir manni vissan sannleik sem maður veit ekki alveg hver er nema að hann er sannur.“ Of gott til að sleppa Eins og áður segir byrjaði mikið af efni Hold er mold sem afgangslög af plötunni Frágangi en við nánari hlustun reyndust þau vera eitt- hvað miklu meira. „Þegar búið var að raða að- allögunum á eina plötu voru nokkur afgangs og þegar farið var að hlusta á þau aðeins betur komumst við að því að það voru eiginlega að- allögin,“ segir Megas um þróun Hold er mold. „Lögin eru kannski ekki eins miklir smellir eða jafngrípandi textar en mjög góð engu að síður. Þau þurfa bara aðeins meiri hlustun og aðeins meiri hugsun.“ Þegar í ljós kom að gæðaefni var þarna á ferð ákváðu Megas og Senuþjófarnir að koma saman aftur til að taka upp það sem upp á vant- aði. „Á endanum reyndust lögin svo vera fleiri en á fyrri plötunni,“ segir Megas sem er mjög ánægður með útkomuna. „Það tók mig reyndar smá tíma að venjast því að lag eitt á plötunni væri númer eitt en nú er það allt í lagi og það er frábært fyrsta lag,“ segir Megas og útskýrir að fyrsta lag hverrar plötu sé mikilvægt. „Það er gömul hjátrú að ef plata opnast vel hafi menn meiri áhuga á að hlusta á hana.“ Megas segir að hann ætli ekki að hafa jafn- stutt á milli í næsti plötu. „Nú gef ég aðeins andrými. Þetta er gott í bili,“ en við tekur spila- mennska að sögn Megasar. „Við ætlum til dæm- is að spila á Vatnasafninu í Stykkishólmi núna á föstudaginn,“ segir Megas að lokum. asgeir@dv.is, krista@dv.is Plötudómur SPReNGjUhöllIN TímARNIR okkAR Sena Niðurstaða: HHHHH Hold er mold með Megasi og Senuþjófunum kom út nýlega og er það önnur platan sem samstarf þeirra elur af sér. Mörg lög Hold er mold byrjuðu sem afgangslög af Frágangi sem kom út í sumar en reyndust svo vera burðarásinn í nýja plötu. BITASTÆÐIR AFGANGAR FRÁGANGSINS Megas segir um plötuumslagið að löngu tímabært hafi verið að kvenmaður kæmist á Jónas. Megas og Senuþjófarnir Hafa notið mikilla vinsælda með plötunum frágangur og Hold er mold.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.