Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 22
É g las verkið og kolféll fyrir því um leið því það er svo vel skrifað. Það tekur á málefni sem stendur mér nærri en það var Tinna, Hrafnsdóttir, leikkona og leikstjóri, sem hringdi í mig og bauð mér að vera í leik- hópnum. Barnleysi er málefni sem hefur brunnið lengi á henni, en hún reyndi í mörg ár áður en hún eignaðist sín börn,“ segir Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona sem frumsýndi í gærkvöldi Útundan eftir breska leikskáldið Alison Farina McGlynn í Tjarnarbíói. Verkið fjallar um þrjú pör á fer- tugsaldri sem öll eiga í erfiðleikum með að eignast börn en af ólíkum ástæðum. Tengir við verkið „Ófrjósemi er mun algengari en fólk gerir sér almennt grein fyrir og ég þekki þó nokkra sem hafa staðið í þessum sporum. Svo er ég auðvitað sjálf nýbúin að eignast barn og tengi við mjög margt í verkinu,“ segir Elma Lísa. „Mér finnst sérstaklega áhugavert að verkið varpar ljósi á líðan karl- mannanna líka, en þeir eiga það til að gleymast í umræðunni þrátt fyr- ir að vera langoftast þáttakendur í öllu ferlinu. Ég veit ekki alveg út af hverju það er, kannski vegna þess hve viðkvæmt málefni þetta er, og kannski er erfiðara fyrir karlmenn að opna sig með það en konur. En sá hluti verksins, hvernig karlmað- urinn upplifir barnleysið, finnst mér sérstaklega vel skrifaður.“ Nú má ég ekki segja of mikið frá en ég leik Margréti sem hefur reynt að eignast barn í 10 ár. Hún er búin að fara í fjöldann allan af tæknifrjóvgunarmeðferðum en ekkert gengur. Hún þráir ekkert heitar en að eignast barn og allt hennar líf snýst um það. Maðurinn hennar er stjórnsamur, skilur ekki af hverju þetta gengur ekki og vill taka þetta á hörkunni. Þau eiga allt til alls og nóg af peningum en það er auðvitað ekki hægt að kaupa allt með peningum,“ segir Elma Lísa. Ófrjósemi er tabú Það fylgir því mikið álag að geta ekki eignast barn en barneignir eru venjulega tengdar við eitthvað rómantískt, innilegt og einlægt en þegar pör eru farin að leita sér hjálpar breytist óhjákvæmilega allt. „Verkið er alls ekki bara um barnleysi, heldur fyrst og fremst um sambönd og mannleg sam- skipti. Svo er það líka á köflum mjög fyndið enda eiga dramatískir hlutir sér oft spaugilegar hliðar. Til dæmis getur kona sem þarf stöð- ugt að sprauta sig með hormónum verið mjög sveiflukennd í skapinu og viðkvæm. En það er fullt af húmor í þessu verki þrátt fyrir að verið sé að varpa ljósi á tiltekna erfiðleika því tilveran hættir ekk- ert að vera stundum grátbrosleg, sama hvað á dynur. En þetta verk hefur svo sannarlega opnað augu mín fyrir því hvað þessar aðstæður geta verið gríðarlega erfiðar. Og mörg pör sem heyja þessa baráttu hætta hreinlega saman út af þessu,“ segir Elma Lísa. „Það er í raun ótrúlegt hvað lítið er talað um þetta í samfélaginu miðað við hvað það eru margir að kljást við þetta. Þetta er algjört tabú.“ „Hva, á ekki að fara að henda í eitt” Þrátt fyrir að vera tabú og mjög viðkvæmt málefni fyrir marga er mikill þrýstingur frá samfélaginu þegar kemur að barneignum og Elma Lísa kannast við það. „Öll pör sem hafa verið saman í einhvern tíma fá þessa spurningu frá sínum Alls ekki sjálfgefið að eignast barn Elma Lísa Gunnarsdóttir horfist í augu við barnleysi í hlut- verki Maríu í Útundan, nýlegu bresku verki eftir Alison Farina McGlynn sem sýnt er í Tjarnarbíói. Sjálf segist hún hafa fundið fyrir mikilli forvitni og samfélagslegri pressu áður en hún átti nýlega sitt fyrsta barn eftir margra ára samband. Elma Lísa Gunnarsdóttir leikur Margréti, sem glímir við ófrjósemi, í verkinu Útundan sem sýnt er í Tjarnarbíói. Leikhópurinn sem stendur á bak við uppfærsluna gefur alla sína vinnu en aðeins verða fjórar sýningar á verkinu. Ljósmynd/Hari nánustu, og líka frá fólki úti í bæ. „Hva, á ekki að fara að henda í eitt“ og þess háttar spurningar eru þær sem ég var sjálf orðin mjög vön að heyra. Það er ekkert auðvelt fyrir fólk sem getur ekki átt barn að fá þessar spurningar en sumir svara þá bara opinskátt og segja eins og er að jú, þau hafi mikið reynt en ekkert gangi, og þá áttar fólk sig á því hvað spurningin er í raun nærgöngul. Auðvitað myndi það hjálpa öllum ef umræðan væri opnari og fólk áttaði sig á því að það eru svo ótrúlega mörg pör sem eru að takast á við þessa hluti. En það er ekki bara fjölskyldan sem setur þessa pressu heldur má segja að samfélagið setji líka þá kröfu á mann að eignast barn.“ Barn eftir 13 ára hjónaband Elma Lísa og Reynir Lyngdal, eiginmaður hennar, áttu sitt fyrsta barn saman fyrir 10 mánuðum eftir 13 ára hjónaband. „Ég var oft að fá spurningar frá allskonar fólki hvort við værum að leita okkur hjálpar og hvort við værum búin að prófa glasafrjóvgun. Ég skil þessar spurningar svo sem, þar sem við vorum búin að vera saman í 13 ár þegar við tókum þá ákvörðun að eiga barn. En það var bara okkar ákvörðun, við bara vildum eiga barn seint. Reynir átti dóttur þegar við byrjuðum að vera saman, Unu Margréti, sem hefur alltaf verið partur af okkur,“ segir Elma Lísa en bætir því við að auðvitað sé samt ákveðin áhætta fólgin í því að byrja svona seint því eftir 35 ára aldurinn er mun erfiðara að verða þunguð. „Við byrjuðum að tala um barneignir þegar ég var 38 ára og hún kom bara um leið. Við vorum bara ótrúlega heppin, og ég sé það sérstaklega núna í gegnum leikrit- ið. Þetta hefur verið mjög lærdóms- ríkt ferli, að kynna sér öll þessi mál og allar þessar sögur og sjá að það er bara alls ekki sjálfgefið að eignast barn. Það er í raun algjört kraftaverk að þetta gangi miðað við allt sem getur komið fyrir. Auð- vitað var ég búin að leiða hugann að því hvort ég gæti eignast barn og hvort þetta ætti eftir að ganga hjá okkur. Og hvað ef það gengur ekki og maður orðinn þetta gamall. En sem betur fer þá gekk þetta vel og dóttir mín er auðvitað það besta sem hefur komið fyrir mig.“ Elskar nýja hlutverkið „Reyndar hafði allur þessi þrýst- ingur frá samfélaginu þveröfug áhrif á mig,“ segir Elma Lísa. „Ég var farin að velta því alvarlega fyrir mér að eignast bara ekki barn. En það er einmitt hlutur sem þarf að bera virðingu fyrir. Mér finnst fólk almennt vera gagnrýnið á þá sem ákveða að eiga ekki börn en auðvitað er til fullt af fólki sem ákveður að það vilji ekki eignast börn. Ég hef aldrei verið þessi týpa sem bara má ekki sjá lítið barn án þess að vilja eignast eitt sjálf.“ Þrátt fyrir að hugsa lítið um barneignir framan af er augljóst að Elmu Lísu líður vel í þessu nýja hlutverki sínu. „Kannski ertu að einhverju leyti tilbúnari ef þú ferð seinna af stað með barneignir. Ég var allavega mjög tilbúin þegar við tókum ákvörðunina og eftir að Nína fæddist spyr ég sjálfa mig oft að því hvað í ósköpunum ég hafi verið að gera áður. Maður lifir, held ég, aldrei meira í núinu en þegar maður er með lítið barn. Ég er svo miklu skipulagðari og vakna miklu fyrr, þetta á bara mjög vel við mig,“ segir Elma Lísa og hlær. „Ég er eiginlega bara að elska þetta.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is 22 viðtal Helgin 11.-13. apríl 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.