Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 79
Ég er sjónvarpsfíkill mikill. Horfi á
nokkurn veginn hvað sem er, nema
kannski fréttir og skandinavískt
menningarefni. Ég nenni engum
leiðindum.
Í gamla daga – níutíu og eitthvað –
fyrir tíma aukarásanna þegar í imba-
kassanum voru bara RÚV, Stöð 2 og
Ómega var til nokkuð sem hét Sjón-
varpsmarkaðurinn. Markaðurinn
sá var mikil búbót. Enda sendur út
um hábjartan dag á tíma þegar enn
þótti ósæmilegt að hanga inni meðan
sólin hékk uppi. Ekki að ég, á mínum
unglingsárum, hefði mikið við vör-
urnar sem þarna voru
auglýstar að gera.
En þó langaði mig
sérstaklega í gúmmí-
kústinn Sweepa og
grjótharðan Sobakawa
púðann. Haltu svo á
ketti hvað mig langaði í
Abflexinn! Grjótharðir magavöðvar
á svo litlu sem þremur mínútum á
dag. Býður einhver betur? Nei, ég
hélt ekki.
Ég lagði þó aldrei í að panta neitt.
Átti enda ekkert kreditkort og
þorði ekki fyrir mitt litla líf að stel-
ast í kortið hjá múttu.
Þess vegna var ég svo
spenntur að kveikja á
Miklagarðinum. Þegar
ég kveikti í fyrsta sinn
fann ég þó fyrir von-
brigðum. Þarna var eng-
inn að reyna selja skrítna
hluti. Gúmmíkústar og harðir kodd-
ar hvergi sjáanlegir. Þarna var bara
fólk að reyna að gera kósí sjónvarp.
Allt kostað upp í rjáfur en ekki nein-
ar „As seen on TV“ vörur í augsýn.
Nokkru síðar var þar kominn á
skjáinn sjálfur Vignir lottóstjóri að
kynna gjörsamlega óþarfar vörur
og með „infómersjal“ tilþrifum.
Minn maður lét sem hann vissi ekki
hvað snéri upp og niður þegar hann
fjallaði um ósköpin. Talaði bara um
heildarlausnir og ég veit ekki hvað
og hvað.
Nú, ég næ í kortið tilbúinn með
símann. En aldrei blikkaði símanúm-
erið á skjánum. Þeir kumpánar ætl-
uðust til þess að ég gúgglaði hitt og
þetta, sófakartaflan. Nei, vinir mínir.
Kortið fór aftur í vasann og ég bíð
eftir As seen on TV logóinu í hornið.
Haraldur Jónasson
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
STÖÐ 2
06:05 Fréttir
07:00 Barnatími Stöðvar 2
07:01 Strumparnir
07:25 Waybuloo
07:45 Ævintýraferðin
08:00 Algjör Sveppi
09:40 Ben 10
10:05 Victorious
10:30 Nágrannar
12:15 60 mínútur (27/52)
13:00 Mikael Torfason - mín skoðun
13:50 Spurningabomban
14:45 Heimsókn
15:15 Léttir sprettir
15:45 Modern Family (6/24)
16:15 Um land allt
16:45 Ísland Got Talent
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn (33/50)
19:10 Steindinn okkar
19:45 Ísland Got Talent
21:00 Mr. Selfridge (9/10)
21:45 The Following (12/15)
22:30 Shameless (4/12)
23:15 60 mínútur (28/52)
00:00 Mikael Torfason - mín skoðun
00:45 Daily Show: Global Edition
01:10 Suits (11/16)
01:55 Game Of Thrones (1/10)
02:50 The Americans (5/13)
03:35 American Horror Story: Asylum
04:20 Sherlock Holmes
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
08:00 Meistarad. - meistaramörk
08:30 Melsungen - Fuchse Berlin
09:50 Real Madrid - Almeria
11:30 RN Löwen - Hamburg
12:55 Þýski handboltinn Beint
14:30 Meistaradeild Evrópu
15:00 Hull - Sheffield Beint
17:00 Getafe - Atletico Madrid Beint
19:00 Americas Beint
20:00 Þýski handboltinn 2013/2014
21:20 Hull - Sheffield
23:00 Wigan - Arsenal
00:40 Granada - Barcelona
02:20 Americas
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
10:50 Southampton - Cardiff
12:30 Liverpool - Man. City Beint
15:00 Swansea - Chelsea Beint
17:10 WBA - Tottenham
18:50 Liverpool - Man. City
20:30 Swansea - Chelsea
22:10 Crystal Palace - Aston Villa
23:50 Sunderland - Everton
SkjárSport
06:00 & 20:35 Motors TV
10:35 FC B. Munchen - B. Dortmund
12:35 & 14:30 & 16:35 Ajax - Den Haag
18:35 Vitesse - AFC Ajax
13. apríl
sjónvarp 79Helgin 11.-13. apríl 2014
Í sjónvarpinu Mikligarður
Ó, þú guðdómlegi sjónvarpsmarkaður
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Súkkulaði-karamellusósa
75 g smjör
75 g ljós púðursykur
1 tsk. saltflögur (Maldonsalt), fínmuldar
150 g rjómi
150 g Pipp með karamellufyllingu
Bræðið smjörið í þykkbotna potti. Setjið
púðursykur saman við og hrærið í þar til
hann er bráðinn. Blandið salti og rjóma
saman við. Hrærið að lokum súkkulaðið
í litlum bitum saman við. Berið sósuna
fram heita eða kalda.
Gerðu vel við þig og þína um páskana með ljúffengri
Pipp ostaköku. Hún er gómsæt með ljúfum
piparmyntutónum sem koma þér í hæstu hæðir.
Til að gera hana enn girnilegri þá er gott að bera
hana fram með sætri súkkulaði-karamellusósu.