Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 82
Græjaðu fermingargjafirnar!
Kláraðu
kaupin hér!
Hljómskærustu pakkarnir
Bose SoundLink Mini hljómtæki
Verð: 39.990 kr.
Bose SoundLink Mini hljómtæki
Verð: 39.990 kr.
Sony Bluetooth hljómtæki
Tilboð: 15.192 kr.
Plantronics RIG heyrnartól
Verð: 21.900 kr.
Þráðlaus og létt
græja. Tengist við
snjallsíma. Flott
hulstur fylgir.
Ótrúlega fínn
hljómur sem hægt
er að tengja við
snjallsíma.
Frábær heyrnatól fyrir
tölvuleikjasnillinginn.
Þráðlaus og létt græja. Tengist við snjallsíma. Flott hulstur
fylgir.
Ótrúlega fínn hljómur sem hægt
er að tengja við snjallsíma.
Frábær heyrnatól fyrir tölvuleikjasnillinginn.
Borgartúni 37 / Kaupangi Akureyri
nyherji.is/fermingar
N
M
62
01
80
V ið erum að notast við allt húsið, Tjarnarbíó eins og það leggur sig. Þetta verður ekki þessi klassíska sitjandi leiksýning sem fólk
er vant, heldur fer hún fram um allt húsið. Leiksýn-
ingin er ferðalag um nokkur rými og í hverju rými
eru mismunandi innsetningar. Þetta er í raun sam-
suða af mismunandi listformum, leiklist, myndlist,
vídeólist og tónlist,“ segir Sigurlaug Sara Gunnars-
dóttir, einn höfunda verksins.
Hámarksfjöldi gesta, sem eru í raun þátttakendur,
er þrjátíu manns og hópurinn er leiddur um húsið.
„Þetta verður ekki eins og á venjulegri listasýningu á
safni, þar sem fólk ráfar eitt og sér um rýmið, heldur
fer allur hópurinn saman um rýmið. Upplifunarferð
er eiginlega besta hugtakið yfir þetta verk og heild-
armyndina því það eru mismunandi þemu og tilfinn-
ingar í hverju rými,“ segir Sigurlaug Sara.
Speglun sjálfsins
Höfundar sýningarinnar eru meðlimir sviðs-
listahópsins Spegilbrots, sem var stofnaður fyrir
ári. Hópinn skipa, auk Sigurlaugar Söru, þau
Auður Friðriksdóttir, Guðmundur Felixson, Hall-
fríður Þóra Tryggvadóttir og Þorvaldur Sigurbjörn
Helgason en þau eru nemar í leiklist, sálfræði,
bókmenntafræði og skrifum. Þar að auki koma að
sýningunni Auðunn Lúthersson og hljómsveitin
Samaris, Ugla Stefanía Jónsdóttir og Hallveig
Kristín Eiríksdóttir sem sviðsmyndahönnuður.
„Við fengum styrk frá Evrópu unga fólksins til að
búa til leiksýningu með útgangspunktinn spegla.
Svo verkið fjallar um spegla í allri sinni mynd og
hvernig við speglum okkur í til dæmis hvort öðru, í
vefsjálfinu eða í samfélaginu. Speglar eru útgangs-
punkturinn í allri sýningunni en við höfum verið að
vinna að þessu frá því síðast sumar, við að kanna,
skoða og fara dýpra. Sýningin er í raun mjög pers-
ónuleg því sjálfsskoðun hefur verið óhjákvæmileg
með þetta þema.“
Drifkraftur í Tjarnarbíói
Tjarnarbíó er nýr vettvangur fyrir grasrótarstarf í
sviðslistum og segir Sigurlaug Sara framkvæmda-
stjórann, Guðmund Inga Þorvaldsson, hafa tekið
hópnum opnum örmum. „Það er ótrúlega góður drif-
kraftur í þessu húsi sem heldur okkur vel við efnið.
Guðmundur Ingi er mjög spenntur fyrir nýjungum
svo þegar við kynntum hugmyndina fyrir honum tók
hann strax vel í hana. Ég hef bara aldrei fengið jafn
jákvætt viðmót og hjá honum. Það er líka svo gaman
fyrir fólk eins og okkur, sem erum ekki útskrifuð, að
fá stað til að prófa okkur áfram.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Borgarleikhúsið frumsýnir á laugardaginn verkið Hamlet
litli, en þar er harmleikurinn mikli settur í nýjan búning, sér-
sniðinn fyrir börn eldri en ellefu ára.
Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir þeim Kristínu Þóru Har-
aldsdóttur, Sigurði Þór Óskarssyni og tónlistarkonunni Krist-
jönu Stefánsdóttur, en hann hefur áður leikstýrt einhverjum
vinsælustu barnaleiksýningum Borgarleikhússins, Mary
Poppins og Galdrakarlinum í Oz. Í uppfærslunni er sjónarhorni
ungs Hamlets, sem nýlega hefur misst föður sinn, beint að
áhorfendum. Hann er hryggur og ráðvilltur og ekki batnar
ástandið þegar mamma hans ætlar að giftast bróður pabba
hans stuttu eftir útförina. Þar að auki verður ástandið ekki
skárra þegar vinir hans er allt í einu farnir að njósna um hann.
Þrátt fyrir dramatíska sögu er þó leikið á als oddi í verkinu þar
sem hugarheimur barnsins, líkt og leikhúsið sjálft, býr yfir svo
ótalmörgum verkfærum til að takast á við sorgina. Þessi marg-
fræga harmsaga er sett í skiljanlegan en jafnframt skemmti-
legan búning, sem öll börn ættu að geta skilið og notið.
-hh
Að vera eða vera
ekki Hamlet litli
Leikhús sViðsListahópurinn spegiLbrot frumsýnir nýtt Verk
Upplifunarferðalag
í Tjarnarbíói
Viðfangsefni Spegilbrots, í nýju verki sem frumsýnt verður í næstu viku, er spegillinn og speglun
sjálfsins í umhverfinu. Verkið sjálft er ferðalag um rými Tjarnarbíós þar sem öll listform koma
saman til að mynda eina heild sem speglar ferðalangana sjálfa.
Hluti hópsins sem setur upp sýninguna Spegilbrot í Tjarnarbíói. Frá vinstri eru Máni, Þorvaldur, Hallveig Kristín og Ragnheiður
Freyja en þau rétt gáfu stokkið út af æfingu. Ljósmynd/Hari
Hamlet litli heillar unga leikhúsgesti í Borgarleikhúsinu.
82 menning Helgin 11.-13. apríl 2014