Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.03.2014, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 14.03.2014, Blaðsíða 10
 Rannsókn ÞolenduR hamfaRa fá ekki viðeigandi langvaRandi meðfeRð Margir eftirlifendur snjóflóðanna enn með áfallastreitu Í nýrri rannsókn kemur fram að eftirlifendur snjóflóðanna í Súðavík og á Flateyri sem féllu árið 1995 þjást frekar af almennum svefnvandamálum og streitutengdum sjúkdómum svo sem lang- vinnum bakverkjum, mígreni og magasárum en viðmiðunarhópurinn. Edda Björk Þórðardóttir, doktorsnemi í lýðheilsuvísindum, segir niðurstöðurnar benda til þess að þolendur hamfara fái ekki viðeigandi langvarandi meðferð. e ftirlifendur snjóflóðanna í Súðavík og á Flateyri, sem féllu árið 1995, þjást frekar af almennum svefnvandamálum og streitutengdum sjúkdómum svo sem langvinnum bakverkjum, mígreni og magasárum en við- miðunarhópurinn í rannsókn Eddu Bjarkar Þórðardóttur, doktors- nema í lýðheilsuvísindum við Há- skóla Íslands. Hátt hlutfall þolenda snjóflóð- anna þjáðist enn af einkennum áfalla- streitu 16 árum eftir hamfarirnar, samanborið við erlendar rannsókn- ir, eða um 15 prósent. Rannsóknir sem gerðar voru árið 1996 og 2007 sýndu nánast sömu niðurstöður, að sögn Eddu. „Í þeim rannsóknum var tíðni áfallastreitu mjög svipuð og gefur það vísbendingar um að fólk hafi ekki fengið viðeigandi meðferð við áfallastreitu á þessum tíma. Við stöndum okkur mjög vel í að veita sálræna skyndihjálp og aðstoð fljótlega eftir hamfarir, eins og eftir gosið í Eyjafjallajökli og jarðskjálftana á Suðurlandi, en til langs tíma þarf að setja fjármagn í að tryggja fólki aðgang að gagn- reyndri meðferð við áfallastreitu,“ segir Edda. Skortur á langtímameðferð Hún bendir á að rannsóknir sýni að sérhæfð hugræn atferlismeðferð við áfallastreitueinkennum skili góðum árangri. „Erlendar rannsóknir sýna að fólk sem þjáist af áfallastreitu notar meira af svefnlyfjum og kvíða- lyfjum en samanburðarhópar og sækir meira heilbrigðisþjónustu, en þar er oft ekki verið að ráðast að rót vandans. Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin, WHO, hefur til að mynda bent á að bæta þurfi þjónustu við þolendur hamfara til langs tíma. Niðurstöður úr rannsókn minni sýna að þær ábendingar eiga jafn- framt við hér á landi,“ segir Edda. Að sögn Eddu er áfallastreita eðlileg afleiðing áfalls fyrst eftir áfallið. Yfir 90 prósent þolenda nauðgunar upplifi til að mynda einkenni áfallastreitu fyrst eftir nauðgun. Hjá flestum, minnka þó einkennin talsvert á fyrstu mán- uðum eftir áfallið. Ef áfallaeinkenni eru enn til staðar ári eftir áfallið virðast þau ekki lagast nema fólk fái viðeigandi meðferð, að sögn Eddu. „Fólk sem þarf virkilega á aðstoð að halda eftir hamfarir og áföll sem valda sál- rænum erfið- leikum skortir oft aðgengi að sálfræðiþjónustu. Ég tel að vandinn sé fyrst og fremst sá að við niðurgreiðum ekki sálfræðiþjón- ustu. Hver tími hjá sálfræðingi kost- ar um og yfir 10 þúsund krónur og sérhæfð hugræn atferlismeðferð við áfallastreitu tekur að meðaltali tólf tíma hjá sálfræðingi. Þar að auki er aðgengi að sálfræðingum ábótavant víða um land. Við þyrftum að koma sálfræðiþjónustu inn í heilsugæsl- una svo aðgengi að sálfræðingum sé tryggt og þjónustan sé á við- ráðanlegu verði,” segir Edda. Börnin rannsökuð næst Fáar rannsóknir hafa kannað líðan þolenda hamfara til jafn langs tíma og rannsókn Eddu og eru niðurstöður hennar því mikilvæg viðbót við alþjóðlegar rannsóknir. Markmið rannsóknarinnar var að meta andlega og líkamlega heilsu þolenda snjóflóðanna í Súðavík og á Flateyri þar sem 34 létust árið 1995 en fáar rannsóknir hafa kannað langtímaáhrif hamfara á heilsu eft- irlifenda. Edda sendi spurningalista til þeirra sem bjuggu í Súðavík og á Flateyri árið 1995 og voru orðnir fjögurra ára þegar flóðin féllu. Til samanburðar sendi hún sambæri- legan spurningalista til íbúa sem bjuggu á Breiðdalsvík og í Raufar- höfn sama ár, svæða sem stafar engin hætta af snjóflóðum. Niðurstöðurnar birtast í fyrstu grein af fjórum í doktorsverkefni Eddu. Hún vinnur nú að næstu grein þar sem hún mun greina áhrif hamfaranna á þau sem voru börn á þeim tíma sem snjóflóðin féllu. Þá mun hún einnig skoða hvaða þættir spá fyrir um áfallastreitu hjá þolendum snjóflóðanna og í síðustu greininni mun hún skoða sérstak- lega tengsl áfallastreitu og svefns. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Snjóflóð féllu í Súðavík og á Flateyri árið 1995 þar sem 34 létu lífið. Áfallastreita er eðlileg afleiðing áfalls fyrst á eftir eftir. Hjá flestum, minnka þó einkennin tals- vert á fyrstu mánuðum sem líða. Ef áfallaeinkenni eru enn til staðar ári eftir áfallið virðast þau ekki lagast nema fólk fái viðeigandi meðferð. Rannsókn Eddu Bjarkar Þórðardóttur bendir til þess að eftirlifendur snjóflóðanna hafi ekki fengið hana. Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.is Hafið samband við sölumenn Rekstrarlands eða næsta útibú Olís og leitið tilboða. Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins Öflug fjáröflun fyrir hópinn PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 3 2 87 4 10 fréttaskýring Helgin 14.-16. mars 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.