Fréttatíminn - 14.03.2014, Blaðsíða 12
Í búðaverð á Siglufirði er ríflega fjórfalt lægra en í miðbæ Reykjavíkur, hvort sem um er að ræða 90 fermetra íbúð
eða 200 fermetra einbýlishús. Andvirði
fjögurra íbúða á Siglufirði duga því fyrir
einni íbúð í miðbæ Reykjavíkur, en þessir
tveir staðir á landinu voru með hæsta og
lægsta fermetraverð íbúðarhúsnæðis á
síðasta ári, samkvæmt upplýsingum frá
Fasteignaskrá. Þá er einungis miðað við
þá staði þar sem kaupsamningar voru
nægilega margir svo útreikningar væru
marktækir.
Samkvæmt upplýsingum frá Fasteigna-
skrá var meðalverð á 90 fermetra íbúð í
miðborg Reykjavíkur tæpar 30 milljónir í
fyrra. Jafnstór íbúð á Siglufirði kostar 7,8
milljónir. Sé það sett í samhengi við laun
í landinu má reikna það út að þriggja her-
bergja íbúð í 101 kostar jafngildi átta árs-
launum kennara fyrir skatt og launatengd
gjöld. Rúm tvenn árslaun kennara duga
hins vegar fyrir jafn stórri íbúð á Siglu-
firði.
Íbúð í ódýrasta hverfinu á höfuðborgar-
svæðinu, Vöngum í Hafnarfirði, er samt
sem áður dýrari en íbúð hvar sem er utan
höfuðborgarsvæðisins. Dýrasti staðurinn
á landsbyggðinni er Akureyri og munar
tæpum tveimur milljónum á meðalverði á
90 fermetra íbúð á Vöngunum og á Akur-
eyri. Hið sama gildir um einbýlishúsin,
ódýrasta hverfið á höfuðborgarsvæðinu er
samt sem áður dýrara en dýrasti staður-
inn á landsbyggðinni, Akureyri, og munar
um tveimur milljónum á einbýlinu.
Meðalverð á einbýlishúsi er hæst í mið-
borg Reykjavíkur þar sem það kostar
rúmar 68 milljónir. Ódýrast er að kaupa
einbýli á Siglufirði þar sem meðalverðið
á síðasta ári var rúmar 15 milljónir. Nít-
jánföld árslaun kennara þarf til að kaupa
einbýli í 101 en ríflega fjórföld til að kaupa
einbýli á Siglufirði.
Næst ódýrasti staður landsins er Ísa-
fjörður. Þar kostar einbýlishús rúmar 20
milljónir og 90 fermetra íbúð rétt undir tíu
en íbúð í Höfn er nánast á sama verði og
á Ísafirði en þar eru einbýlin hins vegar
þremur milljónum dýrari en á Ísafirði.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Fasteignakaup MisMunandi verð eFtir sveitarFélöguM
Fjórar íbúðir á Siglufirði fyrir eina í 101
Selja þarf
fjórar íbúðir
á Siglufirði
til að eiga
fyrir andvirði
einnar jafn
stórrar íbúðar
í miðborg
Reykjavíkur og
næstum fimm
einbýlishús til
að geta keypt
í 101. Lægsta
fermetraverð á
höfuðborgar-
svæðinu er
hærra en
hæsta verð
á lands-
byggðinni.
Kaupverð m.v. 90 m2 íbúð
Reykjavík Innan Hringbrautar og Snorrabrautar 29.857.000
Hafnarfjörður, Vangur 19.937.000
Akureyri 18.068.000
Akranes 17.030.000
Selfoss 15.550.000
Reykjanesbær 14.202.000
Egilsstaðir 14.125.000
Sauðárkrókur 13.047.000
Höfn 9.956.000
Ísafjörður 9.824.000
Siglufjörður* 7.814.000
*Lægsta verðið þar sem nógu margir samningur voru á fjölbýli.
Kaupverð m.v. 200 m2 einbýli
Reykjavík Innan Hringbrautar og Snorrabrautar 68.174.000
Hafnarfjörður, Vangur 41.318.000
Akureyri 38.271.000
Selfoss 30.702.000
Reykjanesbær 29.707.000
Egilsstaðir 28.847.000
Sauðárkrókur 28.658.000
Akranes 26.880.000
Höfn 23.625.000
Ísafjörður 20.143.000
Siglufjörður 15.215.000
SIEMENS - Þvottavél
WM 12B261DN
Vindur upp í 1200 sn./mín.
Tekur mest 6 kg.
Tækifærisverð:
89.900 kr. stgr.
Eva - Borðlampar
Hæð: 41 sm. Fáanlegir í hvítu,
gráu og svörtu.
Tækifærisverð:
6.900 kr. stgr.
SIEMENS - Þurrkari
WT 46E365DN
Tekur mest 8 kg.
Krumpuvörn í lok kerfis.
Tækifærisverð:
119.900 kr. stgr.
Orkuflokkur
c
SIEMENS - Ryksuga
VS 01E1801
1800 W. Sjálfinndregin snúra.
3 lítra poki. Vinnuradíus: 8 m.
Tækifærisverð:
13.500 kr. stgr.
SIEMENS - Uppþvottavél
SN 45D200SK
12 manna. Barnaöryggi.
„aquaStop“ flæðivörn.
Tækifærisverð:
94.900 kr. stgr.
Tækifæri
Mars 2014
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Orkuflokkur
6
Orkuflokkur
12 fréttaskýring Helgin 14.-16. mars 2014