Fréttatíminn - 14.03.2014, Page 23
Rótsterkt kaffi hefur lítið í hina
svokölluðu orkudrykki að gera
og matvælayfirvöld í Bretlandi
og Bandaríkjunum hafa meiri
áhyggjur af þessari nýju kyn-
slóð koffíndrykkja en þeim
sígildu.
kaffi og kóladrykkir eru
annars vegar.
Sjálfsagt lenda allir, sem
neyta koffíns að stað-
aldri með kaffi- eða kók-
drykkju, einhvern tímann
í því að innbyrða of mikið
magn og finna þá fyrir
örari hjartslætti. Aðeins of
mikið koffín þykir þó ekki
líklegt til þess að skaða
hjartað. Læknum hefur til
að mynda ekki tekist, þrátt
fyrir fjölda rannsókna,
að sýna fram á samhengi
milli hóflegrar notkunar á
koffíni og hjartasjúkdóma.
Michael Taylor, hjá
FDA, segir í samtali við
The Guardian að þessir
nýju orkudrykkir hafi
farið langt út yfir öll
mörk sem áður þekktust
í koffínmagni og drykk-
irnir séu víðs fjarri kaffi,
tei og súkkulaði. Hann
segist hafa fengið fyrir-
spurnir um hvort eftirlitið
muni setja aldurstakmark
á neyslu kaffis þannig að
fólk þyrfti að sýna skilríki
þegar það kaupir sér kaffi
á kaffihúsum. Hann segist
telja þá hugmynd óraun-
hæfa en að fólk verði að
gera greinarmun á hefð-
bundnu koffíndrykkjunum
og nýrri kynslóð orku-
drykkja.
Yfirvöld í Bretlandi hafa
ákveðið að merkja þurfi
sérstaklega alla drykki
sem innihalda meira en
150mg af koffíni á hvern
lítra. Merkingin er eftir-
farandi: „Inniheldur mikið
koffín. Ekki ætlað börn-
um, barnshafandi konum
Orkudrykkirnir njóta vaxandi vinsælda, ekki síst hjá ungu fólki sem virðist sjaldnast gera
sér grein fyrir hversu mikið koffín er í hverri dós.
eða konum með barn á brjósti.“
Þetta viðbragð markar ákveðin
skil í neyslusögu koffíns enda
eiga orkudrykkirnir ekki
sögulega eða menningarlega
tengingu eins og kaffi og te. Þá
er koffínmagnið líka alla jafna
mun óhóflegra í orkudrykkj-
unum en kaffisvelgir mættu þó
vera meðvitaðari um hversu
mikið koffín þeir láta í sig dag-
lega þótt enn sé líklega langt
í að kaffipakkar verði merktir
með sérstökum varúðarorðum.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is BARCELONA
OG
ALICANTE
FRÁ 18.990 KR
FLUG TIL
wowair.is
SÓLAR
Netkórinn
SYNGJUM
STYRKINN INN
— TA K T U H R AU S T L E G A U N D I R —
SYNGDU „HRAUSTA MENN“
OG SENDU INN MYNDBAND
ARION BANKI STYRKIR HVERJA INNSENDINGU Í NETKÓRINN
Br
an
de
nb
ur
g
/ L
jó
sm
yn
d:
H
ör
ðu
r S
ve
ins
so
n
— S K R Á Ð U Þ I G —
WWW.MOTTUMARS.IS/NETKORINN
fréttaskýring 23 Helgin 14.-16. mars 2014