Fréttatíminn - 14.03.2014, Blaðsíða 32
H
in gamalgróna kapalsjónvarps-
stöð HBO hefur verið braut-
ryðjandi í framleiðslu hágæða
sjónvarpsefnis á síðustu árum.
Fleiri slíkar stöðvar hafa farið
að fordæmi HBO og netveitan Netflix hefur
haslað sér völl í framleiðslu sjónvarpsefnis og
heldur betur slegið í gegn með stjórnmála-
spennuþáttunum House of Cards.
Á meðan bandarískir framleiðendur sjón-
varpsefnis hafa lagað sig að breyttri tækni og
tímum er kvikmyndagerð í Hollywood í sinni
sígildu andlegu kreppu og það er af sem áður
var þegar bíómyndirnar voru hágæða-
efnið og litið var niður á
sjónvarps-
þætti sem heldur kléna framleiðslu.
Nú keppast stór nöfn úr kvikmyndaheim-
inum við að setja mark sitt á sjónvarpsmenn-
inguna. Kevin Spacey hefur farið slíkum
hamförum sem spillti pólitíkusinn Frank
Underwood í House of Cards að annar eins
sjónvarpsskúrkur hefur ekki sést síðan J.R.
Ewing plottaði sig í gegnum fjórtán árganga
af Dalls. Þá hefur Steve Buschemi glansað í
mafíuþáttunum Boardwalk Empire en þeir
þættir eru meðal annars runnir undan rifjum
Martins Scorsese og leikstjórinn David
Fincher er einn af þeim sem standa að baki
House of Cards.
Segja má að þessi bylting hafi byrjað fyrir
fimmtán árum, 1999, þegar HBO kynnti The
Sopranos til sögunnar. Þættirnir voru sérlega
vel skrifaðir, frábærlega leiknir
og þegar kom að
kvikmyndatöku, tónlist og öllum smáatriðum
var hver þáttur í raun eins og hágæða bíó-
mynd. HBO kom síðar með bannáraþættina
Boardwalk Empire sem báru sömu einkenni,
sem og vestraþættina Deadwood.
Um glæpaþættina Breaking Bad þarf ekki
að fjölyrða. Þeir sverja sig í ætt við The Sopr-
anos þegar kemur að vönduðu hand-
riti, leik og snilldartil-
þrifum í
kvikmyndatöku og klippingum. Og hvergi
var gefið eftir í ofbeldinu í þessum þáttum
enda búa kapalstöðvar við meira frelsi en
hinar almennu þegar kemur að því að sýna
ofbeldi og nekt.
Við lifum á tímum þar sem allt er leyfilegt
í sjónvarpi og við blasir að flestir vinsælustu
þættirnir ganga fram á ystu nöf þegar ofbeldi
er annars vegar.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Vinsældir þessa
ævintýraþátta eru
yfirgengilegar og hér er á
ferðinni enn ein rósin í yfirfullt
hnappagat HBO. Ofbeldi og nekt eru
áberandi en þó í réttum hlutföllum þannig
að hvorki skyggir á spennandi söguna eða
frábæra frammistöðu helstu leikara. Einn
magnaðasti spennuvaldurinn í Game of
Thrones er svo vitaskuld að þar er enginn
öruggur og lykilpersónur eru drepnar hægri
vinstri á meðan áhorfendur fylgjast agndofa
með.
Hágæðaofbeldi heillar í sjónvarpi
Á meðan kvikmyndagerð í Hollywood er stöðnuð, hjakkar í sama farinu og
gerir endalaust út á sömu öruggu miðin til þess að draga áhorfendur í bíó
stendur gerð sjónvarpsþátta í Bandaríkjunum í meiri blóma en nokkru sinni
fyrr. Snilldarþættirnir Breaking Bad luku farsælli göngu sinni ekki alls fyrir
löngu, fólk heldur vart vatni af hrifningu yfir pólitísku spennuþáttunum House
of Cards og sjálfsagt eru margir enn að jafna sig og komast yfir hina drungalegu
glæpaþætti True Detective sem runnu sitt skeið í Bandaríkjunum síðastliðinn
sunnudag og á Stöð 2 strax kvöldið eftir.
Gæðabylting varð í framleiðslu sjónvarpsþátta í Bandaríkjunum með The Sopranos sem HBO byrjaði að
sýna fyrir fimmtán árum. Mafíósarnir þar ruddu uppvakningum, mannætum, barnaræningjum, miskunn-
arlausum miðaldaböðlum og krabbameinsveikum dópframleiðanda brautina í frábærum sjónvarpsþáttum
sem skyggja á kvikmyndaiðnaðinn sem aldrei fyrr.
The Walking Dead
Í dægurmenningunni hafa
uppvakningar, svokallaðar
zombíur, verið hálfgerð minnipokas-
rímsli og staðið í skugga vampíra og varúlfa.
Þessar heiladauðu og veikburða holdætur hafa þó
heldur betur náð vopnum sínum á síðustu árum og
njóta gríðarlegra vinsælda í sjónvarpsþáttunum
The Walking Dead sem byggja á samnefndum
myndasögum.
Hér er á ferðinni þvottekta hryllingur með til-
heyrandi spennu og djöfulgangi. Framleiðendur slá
hvergi af í subbuskap og uppskera samkvæmt því
feikilegar vinsældir.
True Detective
Woody Harrelson
og Matthew
McConaughey fara
á kostum í þessari
átta þáttaröð um
tvo rannsóknarlög-
reglumenn sem rann-
saka viðbjóðsleg rán
og morð á börnum.
Hvergi er slegið af í
óhugnaðinum en það
allra versta er skilið
eftir fyrir ímyndunar-
afl áhorfandans með
mögnuðum áhrifum
sem jafnast á við
öflugustu hryllings-
myndir.
Hannibal
Fyrstu þáttaröðinni
um þennan geðþekka
og vinsæla raðmorðingja
sem er gjarn á að leggja sér
fórnarlömb sín til munns var
vel tekið. Mads Mikkelsen leikur
ungan Hannibal í forleiknum
að því sem síðar gerist í mynd-
unum The Silence of the Lambs,
Red Dragon og Hannibal.
Hér er blóðinu slett í allar
áttir og lítið verið að hlífa
áhorfendum við voðaverkum
morðingjans. Svæsnustu
senurnar taka vissulega á en
gagnrýnendur hafa hrósað
þáttunum fyrir nánast listræna
útfærslu á ofbeldi.
Game
of Thrones
Við lifum á tímum þar sem
allt er leyfilegt í sjónvarpi ...
RV
0214
Tilboð
Verð frá 2.588 kr.
Úti- og innimottur á tilboði
– úrval af frábærum mottum í mörgum gerðum og stærðum
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
32 úttekt Helgin 14.-16. mars 2014