Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.03.2014, Síða 34

Fréttatíminn - 14.03.2014, Síða 34
S keggi Ásbjarnarson var einn dáðasti barnakennari landsins, þjóðþekktur vegna útvarpsþátta sinna fyrir börn og óeigingjarnt starf sitt í þágu æskunnar. Hann var hlaðinn lofi í minningargreinum eftir að hann lést þann 6. ágúst 1981, þá sjötugur, og sögðu margir að það hefði verið blessun að kynnast Skeggja. Nú hefur komið í ljós að þó hann hafi verið mikið ljúfmenni í garð sumra þá níddist Skeggi kynferðislega á sumum nem- endum sínum, ungum drengjum, sem hann kenndi í Laugarnesskóla. Skeggi var einhleypur og barnlaus, og lengst af starfaði hann sem kennari við Laug- arnesskóla í Reykjavík, eða frá 1943 til 1977. Þar vakti hann fljótt athygli fyrir að helga kennarastarfinu alla sína krafta og rækta það af einstakri kostgæfni, ekki aðeins á skóla- tíma heldur einnig á kvöldin og um helgar, og var hann alltaf tilbúinn til að aðstoða nem- endur. Hann var sagður brautryðjandi á sviði leiklistar í Laugarnesskóla og reif upp leik- hússtarfið þar svo um munaði þegar hann hóf störf. Skeggi þýddi, staðfærði og jafnvel samdi leikrit fyrir börnin, teiknaði og málaði sjálfur leikmyndina, farðaði nemendurna fyrir verkin og ýmist valdi eða samdi sönglögin í leikrit- unum sem voru sett upp. „Skeggi Ásbjarnarson var vakinn og sofinn í hlutverki lærimeistarans og uppalanda. Kenn- arastarfið var honum köllun,“ segir Markús Örn Antonsson, fyrrverandi borgarstjóri og útvarpsstjóri, í minningargrein í Morgun- blaðinu. Skeggi kenndi bæði fyrirmyndar- nemendum sem síðar áttu eftir að láta til sín taka í samfélaginu, á borð við Styrmi Gunn- arsson, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra, Stein- unni Valdísi Óskarsdóttur, fyrrverandi borgar- stjóra, og Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóra í Reykjavík, en einnig kenndi hann lakari bekkj- um – börnum sem komu úr fátækrahverfunum í nágrenni Laugarnesskóla, höfðu laka félags- lega stöðu og ótraust bakland. Um margra ára skeið hafði Skeggi, meðfram kennarastarfinu, umsjón með barnatímum í Ríkisútvarpinu og varð brátt vinsæll útvarps- maður. Börn voru reglulega gestir í barnatím- anum og þótti það mikill vegsauki að koma fram í barnatímanum hjá Skeggja. Framboð af barnaefni á þessum tíma var af skornum skammti og þótti það því heilög stund á mörg- um heimilum þegar Skeggi hóf upp raust sína í útvarpinu. Hann starfi einnig um árabil sem flokksstjóri í vinnuskóla Reykjavíkur og lék undir á orgel í barnaguðþjónustum í Laugar- neskirkju, en afþakkaði vinsamlegast að fá greiðslu fyrir. Hann hafði sterka stöðu í sam- félaginu, mikil virðing var borin fyrir honum og því starfi sem hann sinnti með börnum. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Skuggahliðar barnakennarans Um miðbik síðustu aldar var Skeggi Ásbjarnarson átrúnaðar- goð íslenskra barna. Hann sá um barna- tímann í Ríkisútvarpinu og naut mikillar hylli sem kennari í Laugarnes- skóla og var það mál manna að hann hefði tileinkað líf sitt starfi með æsku landsins. Skeggi Ásbjarnarson undir- býr leiksýningu í Laugarnes- skóla um 1960 og sminkar einn af leikurunum. Ljós- mynd/Guðmundur Hannesson/ Ljósmyndasafn Reykjavíkur Úr minningar- greinum í Morgunblaðinu Ágúst 1981 Hann kom sér upp kerfi, sem var í því fólgið, að nemendur fengu sérstaka viðurkenningu fyrir að ná ákveðnum árangri í hverri grein. Þessi viðurkenning var fal- lega lituð stjarna á stóru spjaldi. Það var okkur mikið kappsmál að ná öllum stjörnunum eftir veturinn. Ef erfiðlega gekk að ná þessu árangri átti Skeggi það til að bjóða þeim, sem áttu við þann vanda að stríða heim til sín til þess að taka sérstakt próf í þessum stjörnuleik og bauð upp á appelsín og kex. Það þótti vegsemd og virðingarauki að vera boðinn heim til Skeggja. Styrmir Gunnarsson Ég tel það mikið lán fyrir Laugarnesskóla að leið Skeggja skyldi liggja þangað. Starf hans við skólann verður seint full- metið. Þorsteinn Ólafsson Hann lék undir við barnaguðs- þjónustur mínar í Laugarnes- kirkjunni, um áratugs skeið eða meir, en fékkst aldrei til að taka nokkra greiðslu fyrir. Þetta var honum líkt. Sú þjónusta var honum víst „guðsþjónusta”, sem hann hafði einskæra ánægju af að taka þátt í. Garðar Svavarsson Í ógleymanlegum „kaffitímum“ í löngu frímínútum las hann nýjar þýðingar sínar á sögunum um Karl Blomquist leynilögreglu- strák og kannaði viðbrögð rétta aldurshópsins áður en bækurnar voru gefnar út. Okkur var falið að lesa upp eða að farið var í spurningakeppni sem tekin var upp á segulbandið. Síðan komu skólaleikritin og barnatímar í útvarpinu. Markús örn Antonsson Ég tel að ég eigi það honum að þakka, að ég skuli eiga alveg flekklaust líf. Skeggi var nefnilega meira en kennari. Hann tamdi sér að vera faðir bekksins Steinar Benediktsson – fyrst og fre mst – fyrst og fre mst ódýr! 1499kr.pk. Verð áður 2 499 kr.pk. Neutral þv ottaefni, 7 ,3 kg DÚNDUR 40%afsláttur TILBOÐ! Framhald á næstu opnu 34 úttekt Helgin 14.-16. mars 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.