Fréttatíminn - 14.03.2014, Qupperneq 46
46 matur & vín Helgin 14.-16. mars 2014
vín vikunnar
Tukulu Fairtrade
Cabernet
Sauvignon
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Cabernet
sauvignon.
Uppruni: Suður-
Afríka, 2011.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.590 kr. (750 ml)
Umsögn: Fairtrade-
rauðvín frá Suður-
Afríku, líkt og vínið
hér að ofan. Hörku
Cabernet sauvignon
með dökkum berja-
tóni. Örlítið eikað.
Santa Digna
Chardonnay
Reserva
Gerð: Hvítvín.
Þrúgur: Chardonnay.
Uppruni: Chile, 2012.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.229 kr. (750 ml)
Umsögn: Þetta Fa-
irtrade vín kemur frá
Chile en er frá hinum
vel þekkta spænska
framleiðanda Torres.
Þetta er klassískt
óeikað Chardonnay,
ferskt með sítrus og
smá greipbragði.
Place in the Sun
Sauvignon Blanc
Fairtrade
Gerð: Hvítvín.
Þrúgur: Sauvignon
blanc.
Uppruni: Suður-
Afríka, 2011.
Styrkleiki: 12,5%
Verð í Vínbúðunum:
1.799 kr. (750 ml)
Umsögn: Þetta er
mjög létt vín, þurrt
með sítrus. Afbragðs
lystauki en passar
líka með mjög léttum
mat, einföldum fisk-
réttum og skelfiski.
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Fréttatíminn mælir með Fairtrade-vínum
Fairtrade-vörur
Fairtrade í matvörubúðum
Viltu taka þetta alla leið? Það
er ekki bara í Vínbúðunum sem
hægt er að verða sér úti um Fairt-
rade-vörur. Í matvöruverslunum
er hægt að finna eitt og annað
þó stundum þurfi að gramsa smá
stund. Fairtrade-vörur er oftast
að finna í heilsurekkum búðanna.
Fréttatíminn leit við í Lifandi
markaði, Krónunni og Melabúð-
inni og kannaði úrvalið.
Í mars er lögð áhersla á að kynna lífræn vín og Fairtrade-vín í Vínbúðunum.
Í kynningu Vínbúðanna á Fairtrade er það skýrt þannig út að smábændur í
fátækum löndum stofna með sér samvinnufélag. Verðið fyrir vörur þeirra er
fyrirfram ákveðið og allt að 60 prósent af áætlaðri uppskeru er greidd fyrirfram.
Fairtrade vínræktendur þurfa að greiða vinnufólki sanngjörn laun og tryggja
heilbrigt vinnuumhverfi. Alls eru 47 framleiðendur Fairtrade-víns í heiminum.
Þar af eru 26 í Suður-Afríku og 11 í Chile. Í Chile eru þeir sjö. Langstærsti markaðurinn fyrir þessi vín er
í Evrópu, í Bretlandi, Þýskalandi, Svíþjóð og Hollandi. Alls seldust 21,8 milljón flöskur af Fairtrade-vínum
árið 2012.
Kannski munu fæst okkar láta það ráða valinu í Vínbúðunum hvort vínin eru Fairtrade-vín en það er hins
vegar ágætt að vita hvaðan og hvernig vínin koma til okkar. Place in the Sun kemur frá Zonnebloem-
framleiðandanum. Við gerð þessa víns eru allar þrúgur keyptar á toppverði frá smábændum. Eins og
nafnið gefur til kynna kemur vínið frá sólríkum stað sem gefur því djúpan, rauðan lit. Það er vel þroskað
með smá berjakeim og eins og Shiraz-þrúgan á að sér þá er þetta vín eilítið kryddað. Vínið passar vel
með miklum mat, grilluðu kjöti, bragðmiklum ostum og jafnvel reyktri skinku.
2
1 Margar spennandi kókosvörur er að finna í Lifandi markaði . 2 Rískökur með
mjólkursúkkulaði úr Krónunni. 3 Villiblómahunang úr Melabúðinni. 4 Green & Black's
súkkulaðið fæst í góðu úrvali í Krónunni. Prófið Spiced Chilli, það er upplifun. 5 Quinoa-
kornið er tilvalið í grauta, salöt eða í staðinn fyrir hefðbundnar kornvörur með mat.
Nú er tækifæri til að henda út kúskúsinu. 6 Kókosmjöl í Lifandi markaði. 7 Fairtrade-
morgunkornið fæst í Lifandi markaði. 8 Hrásúkkulaði Goji-ber úr Melabúðinni.
1
3
4
5 6
8
7
tekk company og habitat
kauptún 3
sími 564 4400
vefverslun á www.tekk.is
þúsund króna
afmælisafsláttur
af öllum sófum
frá Habitat*
50
Habitat Er
ára
50
wilbo
tilboðsverð: 3ja sæta sófi 145.000 kr.
2ja sæta sófi 125.000 kr.
opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18
og sunnudaga kl. 13-18
clayton
tilboðsverð:
3ja sæta sófi
175.000 kr.
bach
tilboðsverð:
3ja sæta sófi
239.000 kr.
2ja sæta sófi
199.000 kr.
Drake
tilboðsverð:3ja sæta sófi 175.000 kr.
Place in the Sun Shiraz Fairtrade
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Shiraz.
Uppruni: Suður-Afríka, 2011.
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum: 1.899 kr. (750 ml)
Fairtrade-vín úr sólinni í Suður-Afríku