Fréttatíminn - 14.03.2014, Síða 68
Á Nike Free í öllum litum
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir er 29 ára einkaþjálfari í World Class Laugum og
keppir í Bikini Fitness. Hún er nýkomin heim af Arnold Classic mótinu þar
sem hún komst á topp tíu í sínum flokki. Aðalheiður Ýr heldur úti síðunni
ifitness.is ásamt Konráð Val Gíslasyni. Hún elskar bæði lax og bleikju og
horfir á Biggest Loser.
Í takt við tÍmann aðalheiður Ýr ÓlafsdÓttir
Staðalbúnaður
Ég geng í Nike-fötum alla daga enda er ég
„sponsuð“ af Nike. Mér finnst líka alveg
gaman að hafa mig til, bæði að vera í fín-
um kjól en líka í leðurjakka og gallabux-
um og jafnvel Nike strigaskóm við. Ég á
mér enga uppáhaldsbúð hérna heima. Ég
reyni að vera dugleg að kaupa föt þegar
ég er í útlöndum. Eins og gefur að skilja
eru uppáhaldsskórnir mínir Nike, ég held
að ég eigi Nike Free í öllum litum.
Hugbúnaður
Áhugamálin mín eru fitness og heilsu-
rækt og allt sem því viðkemur. Svo er
ég mikill dýravinur og á tvo hunda. Mér
finnst líka mjög gaman að fara með fjöl-
skyldunni upp í bústað og hafa það kósí.
Ég hef frekar lítinn tíma til að horfa á
sjónvarp en hef þó aðeins dottið inn í Kim
Kardashian-þættina á brettinu í rækt-
inni. Svo hef hrifist af ýmsum íslenskum
þáttum, eins og nýja þættinum hennar
Rikku, Biggest Loser og ýmsum heilsu-
og matreiðsluþáttum. Svo fíla ég Modern
Family. Ég hef gaman af að fara í bíó eða
að horfa á góða bíómynd heima. Spennu-
myndir og gamanmyndir eru í uppáhaldi.
Vélbúnaður
Ég er með allt frá Apple en er samt alveg
tækniheft. Ég er með iPhone 5s, Macbo-
ok Air og iPad. Ég nota þetta auðvitað
mikið í tengslum við vinnuna, er með
Like-síðu, Instagram og allt þetta.
Aukabúnaður
Ég borða rosa mikið af fiski og upp-
áhaldið mitt er lax og bleikja. Svo
borða ég á Nings eiginlega alla daga.
Mér finnst líka voða gott að fá almenni-
lega steik svona einu sinni í viku. Ég
elda mikið sjálf og hef gaman af því
ef ég hef tíma. Mér finnst sérstaklega
gaman að finna uppskriftir og breyta
þeim og gera þær hollari. Ég birti
stundum uppskriftir á síðunum mínum
og stefni að því að gera meira af því.
Ég keyri um á tíu ára Yaris. Fyrir mér
er nóg að hann komist á milli staða og
eyði litlu. Uppáhaldsstaðurinn minn
er Patreksfjörður þar sem ég ólst upp.
Það er fallegasti staður á landinu. Ég
er nýkomin heim frá Bandaríkjunum
þar sem ég var að keppa. Ég er mjög
heilluð af Bandaríkjunum og væri til í
að fara oftar þangað. Svo væri ég líka
til í að skoða Asíu.
Ljósmyndir/Hari
Uppáhaldsskórnir mínir
eru Nike Free en ég á líka
nýjustu skóna, Nike Air
Max Thea. Ég tími ekki
einu sinni að æfa í þeim.
Smart Shake vatns-
brúsinn er alveg nauðsyn-
legur. Með honum get
ég haft með mér öll
vítamínin fyrir daginn og
skammtað mér prótein.
Þó ég sé tækniheft verð ég
samt alltaf að eiga nýjustu
græjurnar. Ég er með
iPhone 5s og öppin sem ég
nota mest eru Facebook,
Instagram og Snapchat.
Svo er ég nýkomin á
Twitter. Þetta er allt
saman mjög mikilvægt
vegna vinnunnar.
SILFUR
50% afsláttur
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 | SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660
Verslunin í
Spönginni
LOKAR
– allt á að seljast
GULL
30% afsláttur
ÚR
50% af
sláttur
DKNY
- Casio
- Fossi
l - Dies
el
68 dægurmál Helgin 14.-16. mars 2014