Fréttatíminn - 14.03.2014, Page 70
Rógburður dregur kraft úr reddaranum Róberti
Hjálparsamtök Íslendinga samkeppni á ekki erindi Í Hjálparstarfi
Bjarni Víðir
Pálmason hjá
Mjólkursam-
sölunni ber
hið óvenjulega
starfsheiti
spaceman
og felst
starfið meðal
annars í að
endurhanna
mjólkurkæla
með forritinu
Spaceman
Professional.
Bjarni reyndi
að skrá sig
sem spaceman
í símaskránni
en þar sem því
var hafnað er
hann þar nú
skráður sem
verslanaráð-
gjafi.
Róbert Guðmundsson stofnaði
formlega, ekki alls fyrir löngu,
Hjálparsamtök Íslendinga en hann
hefur lengi verið iðinn við að rétta
náunganum hjálparhönd. „Ég er bú
inn að vera í þessu síðan 2010 og
var í raun strax upp úr hruni farinn
að huga að þessum málum og láta
gott af mér leiða,“ segir Róbert sem
hefur til að mynda bakað af miklum
krafti og fært kirkjum á Suðurlandi
smákökur fyrir jólin í tuga kílóavís.
Neyðin er víða og Róbert vakti
fyrst verulega athygli fyrir áramót
þegar hann kom Litháanum Ricar
das Zazeckis sem bjó í bíl við Esju
rætur til hjálpar. „Ég setti allt á fulla
ferð núna um jólin og það er fyrst
núna sem ég hef skráð samtökin
formlega. Ástandið í þjóðfélaginu
er svo slæmt og miklu verra en það
þyrfti að vera og þótt við séum að
sinna mikilvægu hjálparstarfi úti í
heimi þá megum við ekki gleyma
því að fólk sveltur hérna á Íslandi.“
Róbert segir róg og kjaftasögur
stundum draga úr sér kraft. Ég skil
ekki hvað rekur fólk áfram í því að
níða af manni skóinn þegar maður
er að reyna að láta gott af sér leiða,“
segir Róbert og bendir á að stund
um líti út fyrir að bullandi sam
keppni sé í hjálparstarfi á Íslandi.
Hann kæri sig þó ekki um að taka
þátt í slíku stappi.
„Ég tek ekki þátt í neinni sam
keppni í hjálparstarfi en það mætti
halda að sumir séu í bullandi sam
keppni um styrki enda takmarkað
hvað fyrirtæki og stofnanir eru af
lögufær um. Það eru margir sem
leita eftir styrkjum til fyrirtækja.
Ekki aðeins hjálparsamtök heldur
líka einstaklingar og þá oft fyrir
hönd ættmenna sinna.
Neyðin er bara svo mikil og það
er ömurlegt að horfa upp á þetta
án þess að reyna að gera eitthvað
í málinu en það dregur óneitan
lega úr manni kraft þegar reynt
er að bregða fyrir mann fæti með
kjaftasögum og leiðindum,“ segir
Róbert sem ætlar þó ekki að gefast
upp. „Ég mun halda áfram að sinna
hjálparstarfi svo lengi sem ég dreg
andann.“ ÞÞ
Róbert Guðmundsson kemur víða við
á þeytingi sínum á vegum Hjálparsam-
taka Íslendinga. Í desember færði hann
áfangaheimilinu Draumasetrinu jólamat
handa átta manns sem áttu ekki í önnur
hús að venda á aðfangadag.
Bjarni hefur verið
spaceman í fjögur ár
atvinna starf „spaceman“ snýst um að teikna upp mjólkurkæla
Þ egar rennt er yfir starfsmannalista Mjólkursamsölunnar sést að þar starfa sölufulltrúar, rafvirkjar,
vinnslustjórar og bókarar, en eitt starfs
heitið sker sig úr. Bjarni Víðir Pálmason
ber titilinn „spaceman“ en þegar hann
sendir út tölvupóst í nafni fyrirtækisins
lætur hann einnig fylgja með að hann
sé verslanaráðgjafi, svo ekkert fari nú á
milli mála. „Ég veiti ráðgjöf vegna röð
unar í mjólkurkælana og hvernig sé best
að panta í þá. Markmiðið er að minnka
rýrnun og halda endursendingum í lág
marki,“ segir hann. Spaceman hefur verið
starfandi hjá Mjólkursamsölunni í tíu ár
þó Bjarni hafi aðeins borið titilinn í fjögur
ár. Nafnið er dregið af forritinu sem er
notað til að teikna upp kælana, Spaceman
Professional, en með því má greina vöru
val frá sölusögu, framlegð, rýrnun og
endursendingu.
Þrátt fyrir að vera titlaður spaceman í
vinnunni ber Bjarni titilinn verslanaráð
gjafi í símaskránni. „Ég skráði mig fyrst
sem spaceman en var sagt að það mætti
ekki, líklega því það er enska, og þá
breytti ég því í verslanaráðgjafi,“ segir
hann.
Um forritið Spaceman Professional
segir á vef Mjólkursamsölunnar: „Þegar
teikning er gerð er vörunum raðað upp
með markaðsfræðilegri hugsun. Með
spaceman er hægt að hafa áhrif á kaup
hegðun viðskiptavina. Auka sölu og fram
legð og koma í veg fyrir háa rýrnun og
endursendingar. Spacemanninn kemur í
veg fyrir auðar hillur og er haft í huga að
kælirinn haldi sölu. Þetta kemur sér líka
vel fyrir starfsmann mjólkurkælisins þar
sem hann þarf ekki að fylla látlaust á vöru
sem selst hratt á meðan vara sem fer of
hægt er að taka of mikið pláss.“ Þá heldur
forritið heldur utan um sölusögu við
komandi verslunar, sem er mjög breyti
leg eftir árstíðum sem og breytingum á
markaði.
Bjarni sér um verslanaráðgjöfina um
allt land og allar búðir með mjólkurkæla
geta fengið ráðgjöf. Þegar verslanir óska
eftir breytingum býr hann til teikningar
út frá sölutölum, og vinnur náið með
verslunarstjórum, innkaupastjórum
og starfsfólki mjólkurkælanna, og er
teikningin vinnuplagg sem hangir uppi í
mjólkurkælinum. „Síðasti mjólkurkælir
inn sem við tókum í gegn var í Krónunni í
Lindum sem er einn sá stærsti á landinu.
Það var á öskudag og við vorum auðvitað
í búningum á meðan,“ segir Bjarni sem
fylgir breytingaferlinu eftir frá upphafi til
enda: „Ég fer ekki úr búðinni fyrr en allt
er tilbúið,“ segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Bjarni Víðir
Pálmason,
spaceman,
við mjólkur-
kælinn í
Krónunni í
Lindahverfi,
einn þann
stærsta á
landinu.
Ljósmynd/Hari
Bjarni Víðir Pálmason tók þátt í að endur-
hanna kælinn í Lindum á öskudag og var að
sjálfsögðu í búningi.
Ljósmynd/Úr einkasafni
myndir á greinarnúmeri
Íslensku tónlistarverðlaunin verða
afhent í dag, föstudag, í 20. sinn.
Verðlaunahátíðin verður að þessu sinni
tvískipt. Fyrri hlutinn fer fram í Norður-
ljósasal Hörpu frá klukkan 12.30. Þar er
Jóhanna Vigdís Arnardóttir kynnir og
bein útsending verður frá viðburðinum
á RÚV.is. Í þessum fyrri hluta verða
veitt verðlaun fyrir Tónlistarflytjendur
ársins, Tónlistarviðburð ársins, Upp-
tökustjóra ársins, Tónlistarmyndband
ársins, Plötuumslag ársins, Tónverk
ársins, Söngvara ársins og Söngkonu
ársins.
Önnur verðlaun verða afhent í Eldborg
um kvöldið og verður sú athöfn í beinni
útsendingu Sjónvarpsins og Rásar 2.
Verðlaunaafhendingin hefst klukkan
20.10. Kynnir er Villi Naglbítur og
fram koma Emilíana Torrini, Hjaltalín,
Skálmöld, Mezzoforte, Valdimar
Guðmundsson, Egill Ólafsson, Páll
Óskar, Rósa Birgitta Ísfeld og Ragnar
Bjarnason.
Íslensku tónlistarverðlaunin
afhent í dag
Sjónvarpskokkurinn Magnús Ingi
Magnússon hefur sent frá sér mat-
reiðslubókina Eldhúsið okkar – Íslensku
hversdagskræsingarnar. Magnús er
kunnur fyrir hina frábæru sjónvarps-
þætti Eldhús meistaranna á ÍNN og
færir nú þekkingu sína og sjarma á
prent. Í bókinni tekur Maggi saman
uppskriftir að sígildum heimilismat,
svo sem kjöt í karrí, fiskibollur,
kjötsúpu, plokkfisk, hakkabuff, vínars-
nitsel og brauðsúpu.
Bókinni fylgir Maggi eftir í þáttum
sínum á ÍNN og í þessari viku mátti
til að mynda sjá hann matreiða kjöt í
karrí, fiskibollur og sitthvað fleira. Og
vitanlega lék þetta allt saman í hönd-
unum á honum á meðan áhorfendur
heima hafa sjálfsagt slefað af hungri.
Bókin markar jafnframt upphafið af
samstarfi Magnúsar og skopmynda-
teiknarans Halldórs Baldurssonar sem
myndskreytir bókina af sinni alkunnu
snilld.
„Það er margt í íslenskri matarhefð
og -menningu sem er þess vert að
halda í og halda á lofti. Með þessu litla
matreiðslukveri langar mig að leggja
mitt á vogarskálarnar í þeirri viðleitni
og vona að uppskriftirnar komi sem
flestum að gagni, ekki síst ungu fólki
sem er að hefja sinn búskap,“ segir
Magnús. Bókin fæst í verslunum víða
um land en einnig á veitingastöðum
Magga, Sjávarbarnum og Texasborg-
urum.
Meistara-Maggi gefur út bók
70 dægurmál Helgin 14.-16. mars 2014
Reykvíkingar!
Ekki gleyma að
kjósa um betri
hverfi
kjosa.betrireykjavik.is
Virkjum íbúalýðræðið!
Opið er fyrir atkvæðagreiðslu
11.-18. mars