Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.03.2014, Side 82

Fréttatíminn - 14.03.2014, Side 82
Þ órarinn Ingólfsson, formaður Félags íslenskra heimilislækna, á sæti í inn-leiðingarhópi verkefnisins Betri heilbrigðisþjónusta 2013 til 2017. Hann segir áætlanir um heimilislækni fyrir alla íbúa landsins, styttri biðtíma eftir heim-ilislækni og frjálsara rekstrarform innan heilsugæslunnar langþráðar en að áframhaldandi niðurskurður hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafi dregið úr þeim eldmóðinn. „Það er mjög óheppilegt að skera eigi niður hjá Heilsugæslu höfuðborgar- svæðins um 100 milljónir og hækka komugjöldin um 20 prósent þegar verið er að fara í umfangsmiklar breytingar, svo ég taki milt til orða. Það er eins og önnur höndin viti ekki hvað hin er að gera og það veldur okkur áhyggjum. Til að innleiðing á svo stórum breytingum geti átt sér stað þurfa að koma til peningar,“ segir hann. Þórarinn segir þó jákvæð teikn á lofti því nú séu í fyrsta sinn gerðar breytingar á íslenska heilbrigðiskerfinu með framtíðarsýn í huga. „Þessar breytingar núna snúast ekki um að slökkva elda, heldur að skapa framtíðarsýn. Ég er fulltrúi lækna í þessu ferli og það er mikilvægt að við fáum að setja okkar sjónarmið fram því læknar á Íslandi hafa skoðanir á því hvernig heilbrigðiskerfið eigi að virka.“ Skortur á heimilislæknum Eigi þjónustustýring að verða að veruleika og takast að beina þeim 13.000 heimsóknum sem ekki eiga erindi á Bráðamóttökuna á heilsugæsluna þarf fyrst að leysa ýmis vandamál innan hennar, að sögn Þórarins. „Það vandasamasta er skortur á heimilis- læknum. Það er réttur fólks að hafa sinn heimilislækni sem það treystir og getur leitað til. Staðreyndin er sú að í dag leita margir til Bráðamóttöku með minniháttar áverka eða veikindi og bíða kannski í fjóra tíma á meðan þangað streymir einnig fólk í bráðri lífshættu sem auðvitað er í forgangi. Aðrir leita á Læknavaktina við Smáratorg og hitta aldrei sama lækninn. Fólk fær betri þjónustu ef það hefur sinn heimilislækni sem veitir toppþjónustu. Heilbrigðisráðherra er sömu skoðunar og því fögnum við en eigi þessar áætlanir að ganga upp þarf að fjölga heimilislæknum.“ Þórarinn bendir á að enn sé staðan sú að þegar auglýst sé eftir heimilislæknum séu hverfandi líkur á að sérfræðingur með þá menntun sæki um. „Yfirleitt eru sérnáms- læknar ráðnir. Þeir eru í námi og því ekki alltaf á staðn- um og þurfa á handleiðslu að halda . Á r ið 1996 var hver einasta staða heimilis- læknis á Ís- landi setin og erfitt að fá vinnu. Nú er alveg búið að snúa þessu við.“ Bæta þarf kjörin Stétt heimilislækna er að eldast og í dag eru aðeins fjórir yngri en 40 ára starfandi á Íslandi og telur Þórarinn að eftir fimm til sex ár verði staðan orðin mjög slæm. „Við verðum að vona að þeir eldri vilji vinna áfram til sjötugs en hætti ekki 67 ára. Til að fá ungu sérfræðingana til að vilja vinna hér á landi og þá eldri til að flytja heim aftur þarf að bæta kjörin hressilega. Árið 2009 voru launin lækkuð að jafnaði um 15 prósent. Læknar sem samþykktu það ekki fengu uppsögn. Mánuðina á eftir voru margir sem hættu vegna óánægju. Nú eru liðin fimm ár og á hverju ári fáum við bréf um að ekki sé hægt að leið- rétta þessa aðgerð.“ Þórarinn segir mikinn áhuga á sérnámi í heimilislækningum en ekki nógu margar stöður fyrir alla þá sem vilja. Þó sé það mikið áhyggjuefni hversu fáir stefni að því að vinna hjá stærsta vinnuveitandanum, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, að námi loknu. Í könnun sem gerð var meðal fólks í sérnámi í heimilislækningum kom í ljós að einungis 12 af 40 vilja vinna þar og þar af eru aðeins þrír sem myndu vilja fara í fulla stöðu. Einkarekstur öllum til góða Ólíkt öðrum sérgreinalæknum, er heimilislæknum ekki heimilt að opna sína eigin stofu en gangi fyrirhugaðar breytingar eftir verður það heimilt síðar á þessu ári. Þórarinn segir þetta brýnt réttlætismál hjá stéttinni. „Innan einkarekstrar skapast faglegur sjálfsákvörðunarréttur og læknar geta straumlínulagað starfsumhverfi sitt og haft áhrif á kjör og með hverjum þeir vinna. Verði frjálslegra rekstarform að veruleika tel ég að fleiri snúi til baka frá út- löndum. Slíkt myndi leiða til betri þjónustu við sjúklinga.“ Árið 2008 var gerður samningur um sjálfstæðan rekstur heilsugæslu- stöðva sem að mati heimilislækna markaði tímamót. „Svo kom hrunið og samningurinn var settur ofan í skúffu og hefur verið þar síðan en við vonum að úr rætist á þessu ári. Samkeppni í heilbrigðisgeiranum er öllum til góða, sérstaklega notendum þjónustunnar.“ — 10 — 14. mars 2014 Margir leita á Bráða- móttöku með minniháttar áverka eða veikindi og bíða kannski í fjóra tíma á meðan þangað streymir einnig fólk í bráðri lífshættu sem auðvitað er í forgangi. ilislækningum undir 50 ára aldri 93 talsins en eru í dag 47, þar af voru 14 þeirra yngri en 40 ára en eru í dag fjórir. Samkvæmt upplýs- ingum frá Félagi íslenskra heimilislækna eiga um 40 prósent af þeim ríflega 200 heimilislæknum sem starfa hérlendis eftir að hætta störfum á næstu tíu árum vegna aldurs. Þegar þjónustustýring kemur til framkvæmda munu notendur heilsu- gæslunnar eiga rétt á þjón- ustustjóra, sem í f lestum tilfellum verður heimilis- læknir, og verða þjónustu- teymi mynduð til að mæta þörfum sjúklingahópa. Þá er stefnt að því sjúkling- um verði sinnt innan skil- greindra tímamarka hjá heilsugæslunni. Fyrr í vikunni kynnti heilbrigðisráðherra breyt- ingarnar fyrir fulltrúum sjúklinga- og aðstandenda- félaga og sagði við það tilefni að þó íslensk heilbrigðis- þjónusta komi jafnan vel út í alþjóðlegum samanburði sýni greiningarvinna sér- fræðinga að margt megi bæta og að ýmsu þurfi að breyta til að samhæfa betur þjónustu við notendur, draga úr sóun og auka skilvirkni. Undirbúningur breyt- inga á heilbrigðiskerfinu hafa staðið yfir í nokkur ár og eins og fram kemur í við- tali við heilbrigðisráðherra á þessari opnu telur hann ekki verði erfitt að framkvæma þær á sama tíma og skorið er niður hjá Heilsugæslunni. Þvert á móti sé nauðsynlegt að ræða skipulagsbreyting- ar í þjónustu sem hefur verið skorið hart niður. Meðal annarra breytinga á heilbrigðiskerfinu á næstu þremur árum er einkarekst- ur innan heilsugæslunnar og eins og kemur fram í máli formanns Félags íslenskra heimilislækna er slíkt brýnt réttindamál meðal stéttar- innar og telur hann mögu- leika á slíku rekstrarformi notendum þjónustunnar til góða. Í viðtali hér á opnunni við Guðbjörgu Vignisdóttur, sem stundar sérnám í heim- ilislækningum í Svíþjóð, kemur fram að kerfið þar sé hannað þannig að allir hafi sömu möguleika á góðri heilbrigðisþjónustu og að vel fylgst með því að allir sinni sínum verkefnum. Kristján Þór Júlíusson heil- brigðisráðherra segir þjón- ustustýringu koma til fram- kvæmda að fullu þegar heilsugæslan verði í stakk búin til að taka á móti þeim fjölda sem henni er ætlað. Ekki sé þó hægt að svara hvort það verði á þessu ári heldur þurfi verk- efnið að komast lengra áður en slíkt er metið. Hann er bjart- sýnn á að breytingarnar leiði til þess að fleiri heimilislækn- ar fáist til starfa en leggur þó áherslu á að gera þurfi töluleg- an grunn um þörf á mannafla til framtíðar. „Það gengur ákveðin mantra hér um það vanti lækna og að við séum að tapa fólki úr landi og svo fram- vegis, án þess að það liggi nein tölfræði að baki þeim fullyrð- ingum eða þeirri umræðu. Ég er ekki að draga úr mikilvægi þess að við sjáum hér fjölgun í tilteknum starfsgreinum en heilt yfir held ég að ástandið sé ekki með þeim hætti að hér sé allt að fara til fjandans.“ Nú eru til tölur, til dæmis um hækkandi meðalaldur heimilis- lækna? Já, já, mikil ósköp en á sama tíma bendi ég á að höfum við aldrei verið að mennta jafn marga í heimilislækningum og um þessar mundir eða um 100 manns hér og erlendis. Það eru bæði plúsar og mínusar í þessu en það er eins og eng- inn treysti sér til þess að ræða það á þann veg að við séum í þokkalegum málum. Ég held að flesta hafi rekið í rogastans, í ljósi umræðunnar síðastliðið haust, þegar 25 sóttu um 12 stöður deildarlækna á Land- spítalanum. Miðað um um- ræðuna eins og hún var hefði enginn átt að sækja um. Fólk ræðir þetta oft meira af tilfinn- ingu en staðreyndum. Verður ekki erfitt að fara í þess- ar breytingar í niðurskurði? Nei, ég held að á þessum tíma sé það beinlínis nauðsynlegt að ræða skipulagsbreytingar í þjónustu sem hefur verið skorin mjög hart niður. Fá við- spyrnu og tækifæri til að auka framleiðni og fá meira fyrir hverja krónu. Þarf ekki að setja meiri fjár- muni í heilsugæsluna til að þetta gangi upp? Ég væri ekki í neinum vand- ræðum með að eyða fleiri krón- um í heilbrigðisþjónustuna en fjárlög leyfa en eftir þeim þarf að fara í hvívetna. Þetta eru verkefni sem allir eru sammála um að takast verði á við. Það er búið að sitja yfir þessu í mörg ár og skrifa ýmsar skýrslur og úttektir. Nóg er komið af slíku og tími til að taka það besta úr þeim tillögum og framkvæma. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra Nauðsynlegar breytingar þrátt fyrir niðurskurð Réttur allra að hafa heimilislækni Þórarinn Ingólfsson er formaður Félags íslenskra heimilislækna. Hann segir að bæta þurfi kjör heimilislækna hressilega til að þeir sem vinni í útlöndum vilji flytja aftur til Íslands. Ljósmynd/Hari.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.