Fjárfesting 1945-1989 - 01.06.1991, Page 5

Fjárfesting 1945-1989 - 01.06.1991, Page 5
Formáli Þessi skýrsla fjallar um fjárfestingu í hartnær hálfa öld, eða frá 1945-1989. Áður hafa birst í þessari ritröð um þjóðhagsreikninga sérstakar skýrslur um einkaneyslu og búskap hins opinbera yfir langt árabil og nú kemur út í fyrsta sinn hliðstæð skýrsla-þjóðhagsreikningaskýrsla nr. 9- um þriðja meginþátt þjóðarútgjalda, fjárfestinguna. Tölur um fjárfestingu hafa hins vegar verið birtar reglulega í ritum stofnunarinnar og forvera hennar. Þannig má nefna að þjóðhagsreikningaskýrsla nr. 4 fjallar að hluta um fjárfestingu. Þá er í 6. skýrslunni Húsbyggingar og mannvirkjagerð 1945-1986, sem kom út árið 1988, fjallað um einn hluta fjárfestingarinnar, þ.e. húsbyggingar. En sem dæmi um mikilvægi húsbygginga má nefna að á árunum 1980-1989 námu húsbyggingar um 46% fjárfestingarinnar. Af eldra efni má vísa í ýmsar greinar í tímariti Framkvæmdabankans Úr þjóðarbúskapnum og greinar í Fjármálatíðindum: 2. hefti 1965, 1. hefti 1968, 3. hefti 1969 og3. hefti 1971. Greinarnar í Fjármálatíðindum fjölluðu um fjárfestingu áranna 1963-1970 og voru ritaðar í Efnahagsstofnuninni af Eyjólfi Björgvinssyni. Fjárfestingin er sá þáttur þjóðarútgjalda sem fyrst var farið að safna skipulega upplýsingum um. Með lögum frá 24. desember 1953 var Fram- kvæmdabanka íslands falið að fylgjast með fjárfestingu í landinu og birti bankinn niðurstöður sínar í riti sínu Úrþjóðarbúskapnum. í 12. hefti ritsins, sem út kom í júní 1962, var birt skýrsla Framkvæmdabankans um fjárfestingu áranna 1945-1960. Fjárfestingin 1945-1989 hefur verið mjög breytileg eftir árum og tímabilum; oftast þó á bilinu 20-30% af landsframleiðslu. í aðalatriðum má segja að hún hafi verið mest um miðbik tímabilsins, eða frá 1960-1975, en minni til beggja enda ef undan eru skilin nýsköpunarárin eftir stríð. Pannig var fjárfestingin minni en 20% af landsframleiðslu bæði í upphafi og lok tímabilsins. Skýrslan skiptist í 6 kafla, auk töfluhluta og viðauka. Fyrsti kafli fjallar almennt um þjóðhagsreikningagerð, samhengi fjárfestingar og annarra þjóðhagsstærða og sögulega þróun skýrslugerðar um fjárfestingu. í öðrum kafla er fjárfestingin skilgreind og fjallað um samhengi fjárfestingar og þjóðarauðs. Priðji kafli fjallar um almennalýsinguaðferða. Þarerm.a. greint frá verðlagningu bygginga og umreikningi fjárfestingar til fasts verðlags. Fjórði kafli greinir frá heimildum og aðferðum við mat á einstökum fjárfestingarliðum. í fimmta kafla er fjallað um þróun fjárfestingarinnar 1945-1989. Loks er í sjötta kafla fjallað um hagmælingar. 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fjárfesting 1945-1989

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjárfesting 1945-1989
https://timarit.is/publication/1062

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.