Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Qupperneq 18

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Qupperneq 18
14 SVEITARSTJÖRNARMÁL mundi séð fyrir endurbyggingu borga Evrópu, og megin áherzla á það lögð, að láta ekkert of gott þykja, nema hið full- komnasta í tæknilegum og listrænum efnum svo sem beztur árangur næðist. Eins og ég gat um að framan, í sam- bandi við sýningarskála Belgíu, þá skaraði hann fram úr um ýmsa hluti, er varða sýningartækni á skipulagsuppdráttum og varðandi skipulagsframkvæmdir. Einn liður i þeirri deild skála þeirra, hafði hlot- ið nafnið „Sköpun bæjar.“ Á þrem upp- hleyptum skipulagskortum var sýnt bygg- ingarhverfi hjá Liége, sem heitir Flémoll- Haute, þar sem byggður er nýr borgar- hluti. Á fyrsta kortinu voru sýndar helztu markalínur hins fyrirhugaða bygginga- lands, og gerð grein fyrir því, hversvegna bærinn var þar settur. Er frekari upplýs- inga var þörf, var ýtt á hnapp í veggnum. Birtust þá ljósræmur hingað og þangað um kortið með all ítarlegum upplýsingum um hvert einstakt atriði og þróun málsins, en um leið birtust ljósmyndir í réttri nið- urröðun, til skýringar á texta, næst ofan við sjálft kortið. Á öðru korti voru eingöngu sýndar að- albrautir, þjóðbrautir og vegakerfi innan- bæjar, en skýringar gefnar af grammó- fónplötum úr ósýnilegum hátalara. Þriðja kortið sýndi allt er laut að ibúðar- byggingum, opinberum byggingum, iðn- aðarhverfum og staðsetningu þeirra, en skýringar með sama fyrirkomulagi og á fyrsta korti. Gaf sýning þessi glöggt yfir- lit um öll frumatriði og framkvæmd skipu- lagsuppdráttarins. Ennfremur áætlanir um kostnað og ýms tæknileg atriði. Okkur íslenzku þátttakendunum á Par- ísarsýningunni gafst kostur á því, að heim- sækja skipulagsmálaráðuneytið franska, þar sem ráðherrann stofnaði til fyrirlestra- halds fyrir okkur, og nokkra erlenda gesti. Var gerð grein fyrir framkvæmd bygg- ingarmála þar í landi, og nokkrir nýir skipulagsuppdrættir sýndir, en hlutaðeig- andi arkitektar gáfu á þeim skýringar. Fundur þessi var mjög fróðlegur og sýndi ljóslega hversu föstum tökum Frakkar taka á skipulags- og byggingarmálum sínum. Nokkrum dögum síðar var okkur boðið til smábæjar utan Parísar, þar sem franska byggingarmálaráðuneytið hefur á sinn kostnað byggt tilraunabæ, eingöngu með verksmiðjuunnum smáhúsum frá Frakk- landi, og þeim þjóðum öðrum, er slík hús framleiða. Gengum við ítarlega í gegnum bæ þenna og skoðuðum hverja húsagerð fyrir sig, en fjarri fer því, að við mundum vilja telja hús þau, er við sáum þar, með- mælaverð til innflutnings hingað til lands, enda hefur nú þegar fengizt reynsla hér í þeim efnum, með innflutningi sænsku timburhúsanna, sem einnig voru sýnd á þessum stað. Ekkert þessarra svokölluðu „prefabrica- ted“ húsa gætu komið til mála á íslandi, svo svara myndi kostnaði, í samanburði við hérlenda byggingarstarfsemi, þótt þau kunni máske að vera heppilegt úrlausnar- atriði fyrir bæi, sem eiga í erfiðleikum vegna húsnæðisvandræða, en þá eingöngu sem bráðabyrgðalausn, og meðan verið er að byggja varanlega mannabústaði á rúst- um þess, sem eyðilagt hefur verið í styrj- öldinni. Hin franska sýningarstjórn, og hlutað- eigandi stjórnarvöld, sýndu okkur fslend- ingunum hina mestu vináttu og gestrisni. Vildu þeir í hvívetna greiða veg okkar og uppfylla óskir í þeim efnum, sem við hefðum hug á að kynna okkur í byggingar- málum, utan þess, sem sýningin hafði upp á að bjóða. Létu þeir okkur í té farartæki og örugga leiðsögu kunnáttumanna, til þeirra staða, innanbæjar og utan, sem eitthvað fróðlegt var að sjá í byggingar- málum. Áður en ég lýk máli mínu vil ég enn á ný koma nokkrum orðum að þátttöku fs- lendinga í Parísarsýningunni. Eins og gef- ur að skilja, og að framan getur, höfðum við ekkert það fram að færa, sem kalla mætti nýjung í sýningartækni eða stór- viðburði í byggingarframkvæmdum. En i heild var þátttaka okkar smekklegt lítið nafnspjald, til þess að minna á hið unga

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.