Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Blaðsíða 49

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Blaðsíða 49
SVEITARSTJÖRNARMÁL 45 Landsþing sambands ísl. sveitarfélaga Stjórn Sambands íslenzkra sveitarfélaga hefir nú ákeðið að næsta landsþing sam- bandsins og hið þriðja í röðinni, verði haldið á Akureyri dagana 25. og 26. júli n. k. Ennþá hefir ekki verið gengið að fullu frá dagskrá þingsins en auk venjulegra þingstarfa munu verða flutt þar erindi og hafa sum þeirra þegar verið ráðin. Það er samkvæmt ákvörðun síðasta landsþings, að þingið í ár verði haldið á Akureyri. Nú í ár munu í fyrsta sinn mæta erlendir gestir á landsþingi sambandsins, en sú er venja sveitarstjórnarsambanda á Norðurlöndiun, að gestir mæti til skiptis á þingum þeirra. Stjórn sambandsins hafa nú þegar borizt tilkynningar um það frá samböndunum í Danmörku og Noregi að fulltrúar þaðan muni mæta, og væntan- lega koma einnig fultrúar sænsku sam- bandanna. Þess er nú að vænta, að mörg þau sveit- arfélög sem enn eru utan Sambands ísl. sveitarféalaga, gerist félagar nú í sumar því þótt flestallir kaupstaðir og flestöll kauptún landsins séu nú þegar gengin í sambandið skortir mjög á að svo sé um önnur sveitarfélög. Eitt af aðalhlutverkum Sambands ísl. sveitarfélaga er að auka kynni milli þeirra manna, er með sveitar- stjórnarmál fara, eyði misskilningi, sveit- arríg og hvers konar misklíð, sem þrá- faldlega hefir sett svip sinn á viðskipti íslenzkra sveitarstjórna. A þessu þingi, sem væntanlega verður fjölmennasta þing þessara samtaka til þessa, mun verða hreyft ýmsum mikil- vægum nýmælum er sveitarfélögin varða. /. G. Um 26.—27. gr. (áður 30.—31. gr.). Óbreyttar. Um 28. gr (áður 32. gr.). Hér er bætt við fyrirmælum, er leiðir beinlínis af upptöku nýrra ákvæða í öðr- um greinum laganna um gjaldársútsvör. Virðist óhjákvæmilegt að setja tilteknar reglur, er kaupgreiðendur slíkra gjaldþegna mættu beita við að halda eftir af vinnu- laumrni þeirra, til tryggingar útsvarsgreiðslu, sem á kynni að falla. Er þetta í sam- svörun við ákvæði laga nr. 96 9. des. 1946, um skatt- og útsvarsgreiðslu útlend- inga, enda hefur nefndin og að öðru leyti fellt útsvarsákvæði þeirra laga inn í þetta frumvarp. Um 29.—30. gr. (áður 33. og 34. gr.). Óbreyttar. Um 31. gr. Hér er fært í sérstaka grein niðurlagsákvæði 5. gr. núgildandi laga um hækkun tilgreindra fjárhæða samkvæmt vísitölu kauplagsnefndar á hverjum tíma. Um 32. gr. Þarf ekki skýringa. Um ákvæði til bráðabirgða. Hér er orðalag núgildandi laga einungis fært í það horf, að ákvæðið fellur sjálfkrafa úr gildi án lagabreytingar, ef lagafyrirmæli þau, er það miðast við, eru afnumin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.