Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Qupperneq 50
46
SVEITARSTJÖRNARMÁL
Leiðrétting.
Þau leiðu mistök urðu i sambandi við
niðurlag greinar Gísla Jónassonar tun
Sauðárkrók, í síðasta hefti „Sveitarstjórn-
armála,“ að mestur hluti síðasta kafla er
litt skiljanlegur vegna línuruglings og
fleiri prentunarmistaka.
Um leið og ritið biður höfundinn og
kaupendur ritsins afsökunar á þessum leið-
inlegu mistökum, er prentaður upp hér á
eftir allur síðasti kafli greinarinnar.
K AUPST AÐ ARRÉTTINDI
Óskir um kaupstaðarréttindi fyrir Sauð-
árkrók munu fyrst koma opinberlega fram
í bréfi hreppsnefndar Sauðárkrókshrepps,
er lagt var fram á aðalfundi sýslunefndar
Skagafjarðar, 27. marz 1940. I útdrætti úr
sýslufundargerð segir svo um þetta:
„Allsherjarnefnd lagði fram, — viðvíkj-
andi beiðni hreppsnefndar Sauðárkróks-
hrepps um kaupstaðarréttindi og til vara
um fastan starfsmann, sem hefði á hendi
framkvæmdarstjórn fyrir hreppinn —
svofellda tillögu til ályktunar:
1. Sýslunefndin samþykkir, að hrepps-
nefnd Sauðárkróks megi, ef nauðsyn-
legt þykir, ráða sérstakan fram-
kvæmdarstjóra, sem vinni að fram-
kvæmd sveitarmálefna, annist skrif-
stofuhald og innheimtu eftir þvi, sem
hreppsnefnd ákveður og á hennar
ábyrgð. Greiðist kaup hans úr sveit-
arsjóði eftir ákvæðum hreppsnefndar.
2. Sýslunefndin vill fallast á, að Sauð-
árkrókshreppur verði sérstakt bæjar-
félag,ef kauptúnsbúar telja sér það
hagfelldara en vera áfram hrepps-
félag innan sýslufélagsins, enda er
þá gengið út frá, að viðunandi lausn
fáist um fjárskipti hreppsfélagsins og
sýslunnar.
Jafnframt vill sýslunefndin brýna fyrir
Sauðárkróksbúum, að þeir athugi þetta
mál vandlega og geri þessa breytingu því
aðeins, að rannsókn sýni, að hún sé til
hagsbóta fyrir kauptúnið.
Samþykkt með 13 samhljóða atkvæðum.
Svohljóðandi viðaukatillaga kom fram
í þessu máli:
„Sýslunefndin ályktar að kjósa 3 menn
utan Sauðárkrókshrepps til þess, ásamt
mönnum kjörnum af hreppsnefnd Sauð-
árkrókshrepps, að rannsaka hver skilyrði
eru fyrir hendi til þess, að Sauðárkróks-
kauptún verði gert að sérstöku bæjarfé-
lagi, svo að hag kauptúnsins og sýslufé-
lagsins sé þrátt fyrir það vel borgið. Leggi
nefndin skýrslu sína fyrir næsta aðalfund
sýslunefndarinnar."
Samþykkt með 13 samhljóða atkvæðum.
1 nefndina voru kosnir:
Hermann Jónsson, Yzta-Mó.
Jón Sigurðsson, Reynistað.
Haraldur Jónasson, Völlum.
Allir með 13 atkvæðum.“
Á Alþingi 1946—47 fluttu þingmenn
Skagfirðinga, þeir Steingrímur Steinþórs-
son og Jón Sigurðsson, frumvarp til laga
um bæjarstjórn á Sauðárkróki. I greinar-
gerð fyrir frumvarpinu segir meðal ann-
ars:
„Hreppsnefnd Sauðárkrókshrepps hefur
sent okkur þingmönnum Skagfirðinga
meðfylgjandi frumvarp með tilmælum
um, að við gerðumst flutningsmenn þess.“
Frumvarp þetta var 13. maí 1947 sam-
þykkt og afgreitt sem lög. Voru þessi lög
staðfest 24. mai (1. nr. 57, 24. maí 1947).
6. júlí s. 1. fóru svo fram fyrstu bæjar-
stjórnarkosningar á Sauðárkróki. Kosnir
7 bæjarfulltrúar. Bæjarstjóri var kosinn,
af bæjarstjórn, Björgvin Bjarnason, lög-
fræðingur. Forseti bæjarstjórnar var kos-
inn Eysteinn Bjarnason kaupmaður, en
hann var áður oddviti hreppsins.
Samkvæmt búnaðarskýrslum Hagstof-
unnar fyrir árið 1943, var þá túnrækt á
Sauðárkróki 98 ha. og töðufengur 3013
þurrheyshestar. Matjurtagarður 4 ha. og
garðávextir 589 tunnur. Mótekja 1100
hestburðir.
Búpeningseign sama ár: Nautgripir 77,
hross 182, sauðfé 756, alifuglar 310 og
loðdýr 153.