Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 3

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 3
SVEITARSTJÓRNARMÁL 1 0. ÁRGANGUR 2. H E F T I TÍMARIT UM MÁLEFNI ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA ÚtGEFANDI : SAMBAND ÍSLENZKRA SVEITARFELAGA RlTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: EIRÍKUR PÁLSSON Ritnefnd: Jónas Guðmundsson, Ólafur B. Björnsson, Björn Guð- mundsson og Karl Kristjánsson. Utanáskrift: SVEITARSTJÓRNARMÁL, Pósthólf 1079, Reykjavík. KARL KRISTJÁNSSON, bœjctrstjóri: Húsavíkurkaupstaður. Húsavík er við austanverðan Skjálf- L,cs,a . andaflóa, innarleea á Tjörnesi. Vík- in hefur borið þetta nafn frá upp- hafi landnámssagna, og byggðin við víkina verið samnefnd henni. Norðan víkurinnar er Húsavíkurhöfði, sem skýlir allvel fyrir norðan gjósti. Af honum tekur við Húsavíkurleiti og hæðadrög þaðan að Húsavíkurfjalli (417 m. hátt), sem er aust- anskjól og bakvörður kaupstaðarins, er stend- ur á flatlendi milli fjallsins og fjörunnar og í rótum hæðanna, sem að flatlendi þessu Jiggja- Sunnan við Húsavíkurfjall kemur Reykja- heiði, og fer landið frá henni lækkandi að sjávarbökkum suðvestan kaupstaðarins. Byggðin er þannig á þrjá vegu í mjúklegu afdrepi höfðans, fjallsins og heiðarinnar. í vestanátt er Skjálfandaflói, hvikull svo sem nafn hans bendir til, enda allbreiður og undir sterkum áhrifum úthafsins. Vestan flóans eru Víknafjöll, tilkomu- mikil og litbrigðarík. Á björtum blíðviðris- Karl Kristjánsson, bæjarstjóri. dögum koma oft margbreytilegar spegilmynd- ir fjallanna fram í vestur-gluggum í Húsavík, eins og fögur málverk eftir Ásgrím og Kjar- val.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.