Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 16

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 16
14 SVEITARSTJÓRNARMÁL SIGURÐUR Ó. ÓLAFSSON, oddviti. Norrænt nám- skeið í sveitarstjórnarmálum. Síðast liðið sumar efndu bæjar- og sveita- stjórnasambönd Noregs, eða nánar til tekið: Norges By- og Herredskassererforbund,Nor- ges Herredsforbund og Norges Komune- revisorforbund, til námsskeiðs í Noregi urn sveitarstjórnarmál og buðu hinum Norður- löndunum þátttöku. Sambandi íslenzkra sveitarfclaga var boðið að senda 3 fulltrúa. Aðeins tvæir íslendingar réðust til þessarar ferðar, Skúli Tómason, fulltrúi, Reykjavík og undirritaður. Á miðnætti 14. júlí 1949 lögðum við af stað með Gullfaxa. Veður var gott en þoka á fjöllum. Hvarf land brátt sýn vegna skýja og var flogið yfir þeim alla leið til Noregs- stranda. Þegar þar kom birti. Skýin greiddust sundur, sólin skein og stafaði geislum sín- um á sund og sker, skógi vaxna hólrna, hæð- ir og bæi. Var tilkomumikil sjón að sjá Nor- egsströnd, úr hálofti í slíku veðri. Gullfaxi lenti á Gardermoven-flugvellin- um kl. 6V2 f. h. 15. júlí. Þaðan fórurn við til Oslo. Námskeiðið átti að hefjast sunnudaginn 17. júlí í Sörumsand, en það er bær um 30 krn frá Oslo. Við höfðum því tvo daga til að skoða borgina. Dvöldum við ásamt konu minni, sem var með í förinni, í Holmenkollen Turisthotel, rneðan við vorum í Oslo. Strax þegar við komum til borgarinnar, höfðum við tal af framkvæmdarstjóra námsskeiðsins, hr. direktör K. T. Evers. Bauð hann okkur til miðdegisverðar. Dvöldum við með hon- um fram á kvöld í bezta yfirlæti. Næsta dag, sem var laugardagur, gengurn við urn í Oslo og skoðuðum ýrnsa merka staði. Væri hægt að segja margt um það, sem fyrir augun bar þenna laugardag, en því mun sleppt hér. Daginn eftir fórum við með járnbraut til Sörumsand. Komum þangað urn kl. 4 s. d. Námskeiðið var haldið í unglingaheimavist- arskóla. Gistu þátttakendur allir í skólanum, og þar var einnig borðað. Fundirnir voru haldnir í samkomusal skólans. Hafði allt verið undirbúið af mestu prýði og allt gert til þess, að þátttakendur gætu verið eins og heima hjá sér. Eftir að matazt hafði verið var námskeiðið sett, kl. 7. Voru þá flest allir þátttakendur rnættir, en það voru: 9 Danir, 7 Finnar, 2 íslendingar, 10 Svíar og 30 Norð- menn. Framkvæmdarstjóri Norsk Herredsfor- bund, K. T. Evers, setti mótið, lýsti tilhög- un þess og tilgangi og bauð þátttakendur velkomna. Eftir setningarfundinn dreifðu menn sér og notuðu kvöldið til að kynnast persónulegra og ræðast við.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.