Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 20

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 20
18 SVEITARST J ÓRNARMÁL Þá las fundarstjóri upp svohljóðandi til- lögu: „Fundurinn telur hagkvæmara, að sveitar- félög séu sanreinuð en þeim sé skipt eins og víða hefur átt sér stað að undanförnu. Hins vegar er það ljóst, að sveitarfélög eru frá fornu fari svo fast-mótaðar félagsheildir, að miklir erfiðleikar eru á sameiningu þeirra. Fundurinn lítur svo á, að æskilegast væri að sameina sveitarfélög um framkvæmd ein- stakra mála, t. d. skólamála, fjallskila o. fl. Ef þá kæmi í ljós, að samvinna um þessi mál væri hagkvæmari yrði að sjálfsögðu lengra haldið á þeirri braut.“ Sigfús fylgdi tillögunni úr hlaði með nokkrum orðum. Erlendur Árnason mælti heldur á móti tillögunni hvað barnafræðslu viðvék. Sigfús upplýsti að tillaga þessi miðaði að því, að unglingafræðsla vrði sameiginleg, þar eð flest sveitarfélög mundu nú þegar eiga skólahús fyrir barnafræðsluna. Sýslumaður greindi frá því, að Skógaskól- inn mundi geta séð fyrir húsnæði til unglinga- fræðslu samkv. nýju fræðslulögunum, en það vrði ekki til langframa. Taldi hann tímabært, að skipa nefnd odd- vita um skólamálin, sem síðan skilaði áliti til næsta oddvitafundar. Einnig athugi nefnd- in fjallskilamál og önnur mál, sem sam- vinna gæti orðið urn. í nefndina voru skipaðir: Sigfús Sigurðs- son, Kjartan Stefánsson og Þórður Bjarnason. Þá kom frarn tillaga frá Sigfúsi Sigurðs- svni svohljóðandi: „Fundurinn skorar á Alþingi að setja lög um manntal, er framkvæmt sé samtímis um land allt. Flvtji fólk milli sveita sé því skylt að fá vottorð manntalsstjóra um flutning- inn. Mætti þannig koma í veg-fyrir eða tor- velda að sarni maður eigi heimilisfang á tveim stöðum samtímis." Tillagan samþykkt samhljóða. Þá tók til máls sýslumaður. Talaði hann um stjómarskrármálið á víð og dreif. Las hann upp og skýrði tillögur Austfirðinga og Norðlendinga. Bar hann að lokum frarn svo- hljóðandi tillögu: „Fundur hreppsnefndaroddvita í Rangár- vallasýslu haldinn að Stórólfshvoli sunnu- daginn 25. sept. lýsir því yfir, að hann er í öllum meginatriðum fylgjandi framkomnum tillögum frá Norðlendingum og Austfirðing- um um nýja stjórnarskrá og skorar á Sunn- lendinga að vinna skipulega að framgangi stjómarskrármálsins á grundvelli þessara til- lagna.“ Var tillagan samþykkt samhljóða. Þá las sýslumaður upp ný lög um eyð- ingu refa og minka, til glöggvunar fy rir odd- vita þar sem nokkur nýmæli eru athugaverð. Einnig gat hann þess að framkvæmdir í Þorlákshöfn væru fjárfrekar og mæltist til, að hrepparnir hlypu undir högg og keyptu hlutabréf í h. f. „Meitli“, sem stofnað var nú í sumar. Höfðu sýslurnar forgöngu um stofnun útgerðarfyrirtækis þessa. Bjóst liann við að hlutaðeigandi sýslur yrðu að bera hita og þunga framkvæmdanna að sinni. Fleiri mál voru ekki tekin til meðferðar. Sýslumaður þakkaði oddvitum konruna. Sigfús Sigurðsson ávarpaði og fundinn og flutti honurn þakkir. Fundarstjórinn, Sigurþór Ólafsson þakk- aði að síðustu fundarsókn og samstarfsvilja og sagði fundi slitið. Sigurþór ÓJafsson. Sigurb/arfur Guðjónsson. Nýr bæjarstjóii. í apríl s. 1. var B/arni Þórðarson, bæjarfull- trúi, kosinn bæjarstjóri Neskaupstaðar, í stað Hjálmars Jónssonar, er flutti til Reykjavíkur.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.