Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 34

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 34
32 SVEITARST J ÓRNARMÁL TILKYNNING um uppbótargreiðslur til ellilifeyrisþega og öryrkja fyrir bótatímabilið 1. júli 1949 til 30. júní 1950. Tryggingaráð hefur ákveðið að neyta heimildar þeirrar, er síðasta Alþingi veitti því, til þess að greiða uppbætur á ellilífeyri, örorkulífeyri, örorkustyrk og makabætur fyrir bótatímabilið frá 1. júlí 1949 til 30. júní 1950. Uppbætur þessar nema 10% af framangreindum bótagreiðslum, og hefur Tryggingastofnun ríkisins lagt fyrir umboðsmenn sína að greiða uppbœtur þessar i einu lagi fyrir yiefnt timabil, um leið og júnígreiðsla fer fram, þ. e. lokagreiðsla fyrir yfir- standandi bótaár. Uppbæturnar greiðast bótaþegum á venjulegan hátt eða þeim, sem hefur löglegt umboð til að taka á móti bótunum. Hafi bótaþegi látizt á tímabilinu, greiðast uppbætur til eftirlifandi maka. Um greiðslu vísitöluuppbótar samkvæmt lögum um gengisskráningu o. fl. verður tilkynnt síðar. Reykjavík, 7. júní 1950. Tryggingastofnun rikisins. niilííeyrisérei&slttr til danskra, finnskra, noskra og scenskra rikisborgara, sem búsettir eru hér á landi. Hinn 1. desember 1949 kom til framkvæmda milliríkjasamningur, Norður- landanna um gagnkvæmar greiðslur ellilífeyris. Samkvæmt þessu eiga danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar, sem dvalizt hafa samfleytt á íslandi 5 síðastliðin ár og orðnir eru fullra 67 ára, rétt til ellilífeyris á sama hátt og íslenzkir ríkisborgarar. Þeir eiga og rétt til lífeyris fyrir börn sín undir 16 ára aldri, sem hjá þeim dvelja á þeirra framfæri, og koma til greina við ákvörðun uppbótar á lífeyrisgreiðslur, til jafns við íslenzka ríkisborgara. Þeir erlendis ríkisborgarar, sem samningurinn tekur til, og vilja njóta þessara réttinda, eru hér með áminntir um að snúa sér með umsóknir sínar til umboðs manns Tryggingastofnunar ríkisins og leggja fram sönnunargögn fyrir óslitinni dvöl hér á landi 5 síðustu ár. Þeir, sem áður hafa lagt fram umsókn og fengið úrskurðaðan lífeyri, þurfa þó ekki að endurnýja umsókn sína fyrir næsta bótatímabil, 1. júlí 1950 til 30. júní 1951. Reykjavík, 22. júní 1950. Tryggingastofnun ríkissins. Prentsmiðjan ODDl h.f, Reykjavík

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.