Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 24

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 24
22 SVEITARST J ÓRNARMÁL lands, fyrst til ársloka 1933, en síðan var frestinum jafnan framlengd til 1942. Þetta tíu ára tímabil féllu því niður allar greiðslur til sjóðsins, bæði af hálfu ríkissjóðs og sveitarfélaga. Þessi ár voru því tekjur sjóðs- ins ekki aðrar en vaxtatekjur lians. Árið 1941, fyrsta janúar, voru innlánsvext- ir í sparisjóðum lækkaðir úr 4% í 3 °/o, og fyrsta janúar 1942 voru sparisjóðsvextir enn lækkaðir úr 3% í 2%, og stóð svo til 1. jan- úar 1948. Þessar ráðstafanir allar urðu til þess að draga rnjög úr vexti sjóðsins. Verður því ekki sagt, að af hálfu hins opin- bera hafi mikið verið gert til að afla sjóð þennan eða hlynna að honum á annan hátt. Reglur um útlán úr bjargráðasjóðnum eru allstrangar samkv. lögum sjóðsins, og hefur það orðið til þess, þótt tekjur lians væru frekar rýrar, að nokkurt fé hefur safnazt, og eru eignir sjóðsins nú í peningum og verð- bréfum röskar tvær milljónir króna. Það er að vísu ekki rnikið fé á þann mælikvarða, sem nú er lagður á fjármuni, en þegar tillit er tekið til þess, að bæði hafa verið felldar nið- ur svo til allar tekjur sjóðsins urn tíu ára skeið og að hann hefur tapað allmiklu fé bæði vegna mæðiveikiráðstafana og þegar sveitar- félög landsins voru gerð upp í Kreppulána- sjóði, og þegar það enn fremur er athugað, að gleymzt hefur að ákveða að greiða tillög sjóðs- ins með verðlagsuppbót, eins og þó hefði mátt ætlazt til, er ekki hægt að vænta þess, að hagur hans sé betri en raun ber vitni. Á undanförnum veltiárum hefur sama og ekkert verið leitað til bjargráðasjóðs, og hafa því tekjur hans síðustu árin nær allar lagzt fyrir í peningum og verðbréfum. Tekjur sjóðsins árið 1948 voru þessar: 1. Bjargráðasjóðsgjald sveitarfé- laganna .................. kr. 34.063.50 2. Tillag úr ríkissjóði......... — 33.000.00 3. Vaxtatekjur.................. — 68.233.47 Á s. 1. hausti hafa bjargráðasjóði borizt lánbeiðnir, er nema samtals 345 þús. krón- um, og þó er vitað, að nokkur sveitarfélög hafa ekki enn sent lánbeiðnir til Bjargráða- sjósins vegna þess, að nokkrir þingmenn þeirra héraða, sem harðast urðu úti í vorharð- indunum s. 1. vor, hafa borið fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um sérstaka hjálp úr ríkissjóði til þessara héraða. Mjög verður að telja það vafasamt, að vorharðindi þau, sem urðu 1949 og ollu talsverðum erfiðleik- um hjá bændum í ýmsum sveitum austan, norðan og vestan lands, geti talizt þess eðlis, að þau falli undir verksvið Bjargráðasjóðs, eins og starfsreglum hans er nú háttað. Eins og lögum hans og starfsháttum er nú fyrir- komið, eru þess engin tök að veita lán eða styrk til þess að greiða fram úr þessum erfið- leikum, nema sveitarfélög þau eða sýslufé- lög, sem í hlut eiga, sæki um lán úr sjóðnum, ábyrgist þau og annist greiðslu afborgana af þeirn, þegar þar að kemur. Það verður að telja, að sá stakkur, sem bjargráðasjóði er skorinn með lögunum frá 1913 og 1925, sé nú orðinn svo þröngur, að sjóðurinn raunverulega fái ekki notið sín, nema reglum hans verði breytt í verulegum atriðum og starfshættir hans færðir meira til samræmis við þær venjur, sem nú má telja ríkjandi orðnar um lánveitingar, styrktarstarf- semi og önnur slík viðskipti. Af framangreindum ástæðum hefur þótt rétt að leggja til, að nokkrar breytingar yrðu gerðar á lögum um Bjargráðasjóð íslands, til að gera hann starfliæfari miðað við aðstæður í þjóðfélaginu á yfirstandandi tírna. Þessar breytingar er að finna í frumvarpi því, er hér liggur fyrir og samið er af fyrirsvarsmönnum bjargráðasjóðsins. Réttara þótti að semja lög- in upp en að flytja breytingartillögur við nú- gildandi lög sjóðsins, sérstaklega þar sem þau eru tvenn, en hagkvæmara þykir að hafa lög- in ein. Samtals kr. 135.296.97

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.