Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 35

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 35
A UGLÝSING NR. 14/1950 frá sliömmtunarstjóra. Samkvæmt heimild í 3. gr. reglugerðar frá 23. sept. 1947, um vöruskömmtun, tak- mörkutl á sölu, dreifingu og afhendingu vara, hefir verið ákveðið að úthluta skuli nýjum skömmtutiarseðli, er gildir frá 1. júlí 1950. Nefnist hann „þriðji skömmtunarseðill 1950“ prentaður á hvítatl pappír, í brúnum og fjólubláum lit, og gildir hann samkvæmt því sem hér segir: REITIRNIR: Sykur nr. 21-30 (báðir meðtaldir) gildi fyrir 500 grömmum af sykri hver reitur. Reitir Jjessir gilda til og með 30. september 1950, [jó Jjannig að í júlí mánuði 1950, er óheimilt að afgreiða sykur út á aðra af Jiessum nýju sykurreitum en þá, sem bera númerið 21, 22 og 23. REITIRNIR: Smjörliki nr. 11-13. (báðir meðtaldir) gildi fyrir 500 grömmum af smjör- líki hver reitur. Reitir þessir gilda til og með 30. september 1950. „briðji skömmtunarseðill 1950“ afhendist aðeins gegn Jjví, að úthlutunarstjórum sé samtímis skilað stofni af „Öðruni skömmtunarseðli 1950“, með áletruðu nafni og heimilis- fangi, svo og fæðingardegi og ári, eins og form hans segir til um. Jafnframt hefir verið ákveðið að „skammtur 7“ af „Fyrsta skömmtunarseðli 1950“ skuli halda gildi sínu fyrir 250 grömmum af smjöri til og með 31. júlí 1950. Neðantaldir skömmtunarreitir halda gildi sínu eins og hér segir: „Skammtar 7 og 8“ (rauður litur) af „Fyrsta skömmtunarscðli 1950“ gildir hvor fyrir 250 grömmum at smjöri til og með 31. júlí 1950. „Skammtur 9" (fjólublár litur) af „Öðrum skömmtunarseðli 1950“ gildir fyrir einu kílógrammi af sykri til sultugerðar, til og með 30. september 1950. „Skammtar 10 og 11“ (fjólublár litur) af öðrum skömmtunarseðli 1950“ gilda hvor fyrir einu kílói af rúsínttm til og með 31. júlí 1950. • Fólki skal bent á að geyma vandlega „skammta 12-17“ aí þessum „Jjriðja skömmtunar- seðli 1950,“ ef til kænti, að Jjeim yrði gefið gildi síðar. Reykjavík 30. júní 1950. Skömmtunarstjóri.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.