Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Blaðsíða 18
16
SVEITARSTJÓRNARMÁL
nokkru. Var þar setzt að snæðingi í boði
bæjarstjórnarinnar.
Bauð „viceordföreren“ gesti velkomna
með nokkrum orðurn. Undir borðum flutti
einn maður frá hverju landi ræðu. Fyrst
Norðmaður, þá Svíi, Finni, íslendingur og
Dani.
Að öllu þessu loknu var enn haldið af
stað, staðnæmzt í Oslo og þar skoðaður m. a.
Vigelandsgarðurinn. Heim til Sörumsand var
kornið kl. 7V2 um kvöldið eftir ánægjulegan
dag.
21. júlí voru fyrirlestrar.
Ekspedisjonssjef Arnold Dybsjord talaði
um: „Valgordningen i de nordiske lande.“
Viceháradshövding Esko Rekola, finnskur,
flutti erindi urn: „Om erfarenheter i for-
bindelse med skatt ved kallan.“ Konsulent
Harry Tömquist ræddi um: „Erfarenheter
frán kursverksamhet for kommunale förtro-
endemán i Sverige.“
Kl. 8 að kvöldi þessa dags var sænskt-ís-
lenzkt kvöld. Skyldu þá Svíar og íslendingar
annast skemmtiatriðin. Mæddi þar rnest á
Svíum, enda voru þeir margir og fjörugir.
Að loknum skemmtiatriðum var dansað.
Voru margir þátttakendur með konur sínar
með sér, og með þeirra hjálp og starfsstúlkna
á skólanum var dansað af mesta fjöri til
kl. 1 um nóttina.
Föstudaginn 22. júlí hélt Bvrásjef Helge
Brustad fyrirlestur, sem hann nefndi: „For-
delingen af forveltningsoppgavene mellom
stat, fylke og konnnuner og utgiftsforde-
lingen mellorn disse.“
Kl. 2 þennan dag var farið til Eiðsvalla.
Var Eiðsvallabyggingin skoðuð undir leið-
sögn húsvarðarins þar. Hélt hann ræðu í hin-
um forna þingsal og lýsti m. a. ánægju sinni
yfir því að fá að sjá fulltrúa frá fimm Norður-
löndum samankomna á þessum stað.
Frá Eiðsvelli var haldið heimleiðis kl. 4
og komið til Sörumsand kl. 6.
Kl. 8 hófst svo lokasamkoma. Voru þar
ræður fluttar og mótinu síðan slitið. Hafði
það þá staðið frá mánudeginum 18. júlí,
eða rétta viku. 8 fyrirlestrar voru fluttir,
farnar þrjár kynnisferðir um nágrennið, liald-
in tvö skemmtikvöld 0. fl. 0. fl. Var rnótið
að öllu hið ánægjulegasta. Hjálpaðist þar
allt að: ágætur undirbúningur af Norðmanna
hálfu, viðurgerningur í bezta lagi og síðazt
en ekki sízt, staðurinn, þar sem mótið var
haldið, Unglingaskólinn í Sörumsand.
Sigurður Ó. Ólaísson, Selfossi.
Sveitarst/órnarkosningar
fóru fram 25. júní 1950 í öllum sveitarfélög-
um landsins, sem ekki var kosið í 29. jan. s. 1.
Sveitarstjómarmál sendu sveitarfélögum þess-
urn eyðublöð til útfyllingar með áþekku sniði
og við kosningarnar í vetur, Svör hafa borizt
frá mörgum þeirra nú þegar, en ekki þykir
ástæða til að prenta þau fyrr en kosningar-
úrslit úr öllum sveitarfélögum hafa borizt.
í ráði er að gefa út með haustinu kosningar-
handbók, áþekka þeirri, er félagsmálaráðu-
neytið gaf út eftir alþingis- og sveitarstjórnar-
kosningar 1946. Með þeirn hætti verður til
á einum stað nöfn allra þeirra, sem fara með
stjórn í sveitarfélögum landsins.
Þess er því, hér með farið á leit, að þau
sveitarfélög sem enn hafa ekki tilkynnt úr-
slit kosninganna hjá sér, geri það svo fljótt
senr kostur er. Þeir oddvitar, sem ekki hafa
fengið skýrslu til útfyllingar eru vinsamlega
beðnir að tilkynna það skrifstofu Sveitar-
stjórnarmála hið fvrsta og mun þeim þá verða
sent eyðublað um hæl. En spurningar þær,
sem svara ber, eru þær sömu og kemur fram í
frásögninni um sveitarstjórnarkosningarnar
í síðasta hefti, nema heimilisfang ber einnig
að tilgreina. Ennfrenmr er sá munur, að kosn-
ingarnar 25. júní nrnnu vfirleitt hafa verið
óhlutbundar og koma því flokks- eða lista-
heiti yfirleitt ekki til greina.