Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Qupperneq 5
SVEITARST J ÓRNARMÁL
3
Rúningsréttun i Húsavik.
Þorp myndaðist í Húsavík fvrst
staSudrm °§ fremst a^ þv’ þar var verzl-
að. Þetta er einn af elztu verzlun-
arstöðum landsins, enda eina höfnin, er til
greina gat komið, sem verzlunarhöfn við
Skjálfanda.
Verzlunarsvæðið var stórt. Langan aldur
voru engar kaupskipakomur nær en við
Eyjafjörð vestanverðan á aðra hlið og Vopna-
fjörð á hina.
Selstöðuverzlun hófst þar snemma og var
nálega einráð fram um 1870. Þá fóru lausa-
kaupmenn að sigla þangað. Verzluðu þeir
í skipum sínum og voru viðskiptamenn ferj-
aðir milli lands og skips. Ekki dvöldust lausa-
kaupmenn í Húsavík, nema um hásumarið,
stuttan tíma.
Árið 1882 var Kaupfélag Þingeyinga stofn-
að af bændum á verzlunarsvæði Húsavíkur,
en verzlunarsvæði hennar var þá aðallega
orðið byggðirnar milli Kinnarfjalla og Jökuls-
ár á Fjöllum.
Kaupfélag Þingeyinga var — eins og kunn-
ugt er — fyrsta kaupfélag landsins. Gerðist
um þetta leyti í Húsavík og aðsóknarhéraði
hennar merkileg baráttusaga í verzlunarmál-
um. Áttust þar við: Annarsvegar húsbónda-
hollur fulltrúi hinnar fornu, erlendu selstöðu-
verzlunar, Örum & Wulffs, skapsterkur
manndómsmaður, greindur vel, með kraft
peninga að bakhjarli og gamlar fótfestur.
Hinsvegar bjartsýnir umbótamenn, fátæk-
ir að vísu, en hertir í þrautum lífsbaráttu,
sjálfmenntaðir af bóklestri og heitir af hug-
sjónum.
Þeir sigruðu. Selstöðuverzlunin missti mátt
sinn.
Kaupfélagið er aðalverzlun staðarins og
stærsti atvinnurekandi hans.
Aðalatvinnuvegir í Húsavík eru —
auk verzlunar — sjávarútvegur,
landbúnaður og iðnaður.
Sjávarúh'egurinn er það þó, sem bærinn á
Atvinnu-
hættir.