Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Qupperneq 10

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Qupperneq 10
8 SVEITARSTJÓRNARMÁL tvö næstliggjandi býli norðan við sig, Bakka og Tröllakot, og fékk þau innlimuð í hrepp- inn litlu síðar. Árið 1949 keypti hreppurinn einnig jörð- ina Kaldbak í Reykjahreppi. Er hún næsta jörð sunnan við Húsavík. Árið 1950 gerðist Húsavík kaupstaður. Fékk hún lög um bæjarréttindi sín sam- þykkt á Alþingi í desember 1949, en þau komu ekki til framkvæmda fyrr en með bæjarstjórnarkosningunum, er fóru fram í Húsavík — eins og annarsstaðar í kaupstöð- um landsins — 29. jan. 1950. Tólf bæjarfélög voru fyrir í landinu, þrjú þcirra fólksfærri en Húsavík. Samningar um skiptingu eigna o. fl. rnilli Suður-Þingeyjarsýslu annarsvegar og Húsa- víkurkaupstaðar hiusvegar fóru franr 6. júní 1950. Varð þar sem fyrr í samskiptum Húsa- víkur og sýslufélagsins ekkert að ágreiningi. Ákveðin var samvinna framvegis milli kaup- staðarins og sýslunnar urn margt, svo sem: Húsmæðraskólann að Laugum, Bókasafnið í Húsavík og Sjúkrahúsið í Húsavík. Jónas Sigurðssoji, oddviti. Benedikt Björnsson, oddviti. Oddvitar hreppsnefndar Húsavíkur. Þegar Húsavík varð sérstakur hreppur 1912, var Jónas Sig- urðsson, sparisjóðsstjóri, (f. 1853 d. 1929) kosinn odd- viti fyrstu hreppsnefndariimar. Hafði hann síðustu árin verið oddviti í garnla Húsavíkur- hreppi. Jónas var greindur vel, fastlyndur og örugg- ur fjárgæzlumaður. Hann var oddviti til árs- ins 1919. Næstur á eftir Jónasi varð oddviti Bene- dikt Björnsson, skólastjóri, (f. 1873 d. 1941), gáfaður hugsjónamaður. Hann hafði stofn- að Unglingaskóla Húsavíkur, sem áður er um getið og stýrði um þessar mundir bæði þeirn skóla og barnaskóla hreppsins. Benedikt hvatti mjög til ræktunar og ým- issa framfara. Hann kom á þeirri skipun landleigu i Húsa- vík, sem þar er nú og þótt hefur fullkomnara fyrirkomulag en það, sem tíðkazt víðast hvar annarsstaðar í þéttbýli landsins. Benedikt lét af oddvitastörfum vegna van- heilsu 1937.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.