Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Page 11
SVEITARST JÓRNARMÁL
9
Bæjarstjórn Húsavikur á fundi.
lirejarstjórnarmenn talið frá vinstri: Ingólfur Helgason, Jóhann Hermannsson, Páll Kristjáns-
son, Karl Kristjánsson, Helena Lindal, Þórir Friðgeirsson, Axel Benediktsson.
Þá tók við oddvitastörfum Karl Kristjáns-
son, sem þessar línur skrifar. Gegndi hann
starfanum þangað til hin fyrsta bæjarstjórn
var kosin.
Hún var kosin, eins og áður
Fyrsta segir, 29. janúar 1950.
Hana skipa ettir stafrotsroð
Husavikur. 1
talið:
Axel Benediktsson, skólastjóri.
Helena Líndal, frú.
Ingólfur Helgason, trésmíðameistari.
Jóhann Hermannsson, sjómaður.
Karl Kristjánsson, alþingismaður.
Páll Kristjánsson, skrifstofumaður.
Þórir Friðgeirsson, gjaldkeri.
Bæjarstjórnin hélt fyrsta fund sinn 31. janú-
ar. Hann var haldinn í Samkomuhúsi bæjar-
ins. Húsið var þéttskipað áhevrendum. Fund-
urinn fór virðulega fram. Aðsend heillaóska-
skeyti til hins nýja bæjarfélags voru lesin, og
þessara tímamóta í sögu byggðarinnar minnzt
með ræðum.
Bæjarfógetinn, Júlíus Havsteen, sem einnig
er sýslumaður Þingeyjarsýslu, flutti bæjar-
stjóm og bæjarfélaginu árnaðaróskir sýslu-
nefndar og sýslufélags.
Forseti bæjarstjórnar var kosinn Karl
Kristjánsson.
Varaforseti Axel Benediktsson.
Á þessurn fundi tók Karl Kristjánsson, sam-
kvæmt ósk fundarins, einnig að sér bæjar-
stjórastarfið, „a. m. k. til 1. október n. k.“
Hvað segja
gestir um
Húsavík?
Það heyrast oft vingjarnleg orð
urn Húsavík frá fólki, sem þar
hefur átt leið urn.
Margir ferðamenn dást að hinni
„nóttlausu voraldarveröld" þar, þegar mið-
nætursólin skín.