Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Page 14

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Page 14
12 SVEITARSTJÓRNARMÁL að kveða upp rétta dórna og úrskurði um þau mál, sem undir þau eru borin, en ekki til þess að leita að annmörkum, er leitt gætu til frávísunar málsins. Ríkisskattanefnd hefur og viðurkennt skyldu sína til að taka mál til úrskurðar að nýju að fengnum betri upplýsingar, og er allt gott urn slíkt að segja, en flestum mun þannig farið, að er þeim liefur borizt úrskurður ríkis- skattanefndar jafnvel um mál, sem þeir höfðu ekki haft grun um, að áfrýjað hefði verið, þá sjá þeir ekki ástæðu til að gera frekari reka að málinu, enda þótt þeim virðist niður- staðan hæpin og nánast röng. En um rétt- rnæti þess geta þeir þó vart dæmt, þar sem for- sendur vantar. Oddviti einn hafði gert kröfu um hluta af útsvari manns nokkurs, er heima átti í hreppi fjarliggjandi. Oddviti í heimilissveit mannsins sendi kröfuna rétta boðleið til for- manns yfirskattanefndar. Verulegur dráttur varð á uppkvaðningu á úrskurði um útsvars- skiptin. Þar kom þó, að úrskurður var kveð- inn upp, og var þar synjað um útsvarsskipti. Tilkynningin um úrskurðinn var eigi send fyrr en löngu eftir uppkvaðningu lians. Við- komandi oddviti áfrýjaði úrskurðinum innan hálfsmánaðar frá þvi, að honum barst bréfið um hann. Ríkisskattanefnd leit á dagsetn- ingu úrskurðarins og sá, að tveggja mánaða kærufresturinn var löngu liðinn, og kvað því upp úrskurð um, að kæra væri of seint frarn komin og væri því rnálinu vísað frá. Oddviti atvinnusveitar vildi ekki una úr- skurðinum.- Hann skrifaði því ríkisskatta- nefnd og gerði grein fyrir því, að drátturinn á kærunni væri ekki sín sök, heldur viðkom- andi yfirskattanefndar, en löggjöfin mundi hafa ætlazt til þess, að sá, sem kæruréttinn ætti, fengi sæmilegan tíma til umhugsunar, og væri því í þessu tilfelli eðlilegast að miða við dagsetningu bréfsins, er fól í sér tilkvnn- ingu um úrskurðinn, og miða við tveggja mánaða tírna frá henni. Ríkisskattanefnd féllst á, að ekki væri sanngjamt, að gáleysi yfirskattanefndarinnar útilokaði möguleika til kæru. Tók hún því málið fyrir að nýju og breytti úrskurði vfir- skattanefndar. I þessu tilfelli var það dugnaður og ör- Vggi oddvitans, sem knúði frarn rétta niður- stöðu, en mörgum mundi hafa orðið það á að sætta sig við orðinn hlut. Ekki er fjarri að ætla, að ríkisskattanefnd sæi ástæðu til að brevta niðurstöðum oftar, ef báðurn aðilurn gæfist kostur á að skýra mál sitt, áður en hún kvæði upp endanlega úrskurði. An efa er það miklurn vandkvæðum bund- ið að láta fara frarn nokkurn málflutning um öll þau mál, sem koma til úrskurðar ríkis- skattanefndar. Hins vegar fer ekki vel á því, að þar fari fram rnjög einhliða málefnalýsing. En skylda um rökstuðning af hálfu nefndar- innar fý'rir úrskurðum hennar kynni að tn ggja málinu rækilegri og nákvæmari athugun og þar með réttari niðurstöðu. Sveitarstjórnarmálum hefur fyrir nokkru borizt bréf frá tveimur oddvitum í Rangár- þingi, þar sem inn á þetta mál er komið og bent á dæmi um úrskurð hjá ríkisskattanefnd, er þeim virðist í fremsta rnáta hæpinn: Bréfið er svohljóðandi: „í framhaldi af ályktun oddvitafundar í Rangáwallasý'slu, hinn 25. sept. 1949, við- víkjandi útsvarsskiptingum nrilli sveita, vilja undirritaðir oddvitar úr Fljótshlíðarhreppi og Hvolhreppi árétta, að ríkisskattanefnin láti framvegis forsendur eða rökstuðning fylgja úrskurðum sínurn og sérstaklega, þegar hún úrskurðar hækkun á útsvörum, sem í mörgunr tilfellum eru innheimt samkvæmt álagningu hreppsnefndanna, þegar úrskurðimir berast frá ríkisskattanefnd.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.