Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Síða 17

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Síða 17
SVEITARSTJÓRNARMÁL 15 Unglingaskólinn i Sörumsand. Næsta dag, mánudaginn 18. júlí, liófst fundur með því, að Arne Wáhlstrand, docent við Socialinstitutet í Gautaborg flutti fyrirlestur. Kallaði hann erindi sitt: „Likheter och olikheter i de nordiske lándernes komunal- fön'altning." Lýsti hann tilhögun þessara mála í hverju af Norðurlöndunum fvrir sig, vitnaði til laga, sem sett höfðu verið í hverju landi, og gat um bækur, sem út hafa komið um þau efni. Var þessi fvrirlestur merkilegur og þær ályktanir, sem fyrirlestarinn dró af efninu, hinar athyglisverðustu. Skipti hann fyrirlestr- inum í tvennt, flutti fvrri hlutann þennan dag og síðari hlutann daginn eftir. Seinni hluta mánudagsins flutti Fylkes- mann Carl Platon fyrirlestur sem hann nefndi:„Fylkesmandens stilling og oppgaver i lokalforvaltning.“ Þriðjudaginn 19. júlí flutti docent Ame Wáhlstrand síðari hlutann af sínum fvrir- lestri og síðan flutti Ekspedisjonsjef, Káre Kvisli, fyrirlestur um skattamálin í Noregi. Umræður fóm ávallt fram eftir hvern fyrir- lestur. Kl. 8 að kvöldi þessa dags var skemmti- samkoma, danskt-finnskt kvöld. Skemmtu menn sér vel við kýmnisögur Dananna og galdrasýningar Finnanna. Þessu hófi lauk á miðnætti. Miðvikudaginn 20. júlí var farið í kynnis- för um nágrennið. Var þátttakendum skipt i t\'o hópa. Fór annar til Sörum-, Eidsvolle- og Lilleström-kommuner, en hinn til Bærum- konnnune. Fór Skúli fclagi minn með fyrr- talda leiðangrinum, en ég með hinum síð- arnefnda. Ókum við af stað í 30 manna bifreið, sem leið lá til Oslo og þaðan til Bærum. Er það bær skammt frá Oslo og liggur í samnefndu héraði. Þar tóku á móti okkur starfsmenn bæjarins. Sýndu þeir okkur helztu byggingar og önnur mannvirki bæjarins. Komum við m. a. í bæjarskrifstofurnar og fundarsal bæj- arstjórnarinnar. Á neðstu hæð hússins er kvikmyndasalur, sem bærinn á og rekur. Eftir að við höfðum skoðað okkur um þarna, var enn ekið af stað, og fylgdu okkur nú þeir fulltrúar bæjarins, sem tekið höfðu á móti okkur. Var ekið um blómlega sveit niður að Oslofirði og numið staðar á hóteli

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.