Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Side 19
SVEITARST J ÓRNARMÁL
17
II. Oddvitafundur í Rangárþingi.
Árið 1949, sunnudaginn 25. sept., var
fundur haldinn í Hvolskóla á Rangárvöll-
um. Til fundarins hafði boðað Sigfús Sig-
urðsson, oddviti Hvolhrepps, alla oddvita
Rangán'allasýslu. Mættir voru auk fundar-
boðandans, fulltrúar frá eftirtöldum hrepp-
um: Erlendur Árnason, oddviti Austur-Land-
eyjahrepps; Ólafur Sveinsson, oddviti Vestur-
Eyjafjallahrepps; Jón Gíslason, oddviti Vest-
ur-Landeyjahrepps; Sigurþór Ólafsson, odd-
viti Fljótshlíðarhrepps og Sigurbjartur Guð-
jónsson, oddviti Djúpárhrepps. Sýslumaður
Rangárvallasýslu mætti og á fundinum.
Fundinn setti Sigfús Sigurðsson og fór
nokkrum orðum urn tildrög að fundi þess-
um. Taldi hann, að líta mætti svo á, að hér
væri urn framhald að ræða á fundi þeim,
sem oddvitar í Rangárþingi hefðu haldið með
sér á s. 1. ári, og væri markmið hans að stuðla
að frekari kynningu milli oddvitanna ásamt
því, að þeir gætu frekar komið fram, sem
ein heild í þeim málefnum, sem þeir sam-
eiginlega þyrftu að sinna. Þá tilnefndi Sig-
fús sem fundarstjóra Sigþór Ólafsson.
Tók nú Sigþór við fundarstjórn og valdi
hann Sigurbjart Guðjónsson til ritarastarfa.
Þessu næst las fundarstjóri upp að nokkru
fundargerð síðasta oddvitafundar og skýrði
fyrir þeim fundarmönnum, er ekki höfðu
setið þann fund. Tók hann sérstaklega fram,
að útsvarslögin hefðu verið eitt veigamesta
málið, sem fyrri fundurinn hefði haft til
meðferðar. í tilefni af þeim umræðum og
álvktunum er þar voru gerðar, hafði Sigur-
þór skrifað stjóm Sambands ísl. sveitarfélaga
svo og framkvæmdarstjóra sambandsins Ei-
ríki Pálssyni. Las fundarstjórinn upp bréf
þau, er hann hafði sent, og ennfremur las
hann upp langt og ýtarlegt bréf, er honum
hafði borizt frá Eiríki Pálssyni varðandi út-
svarslögin og ýmis önnur mál, er snerti
sveitarstjórnir.
Sigfús Sigurðsson þakkaði Sigurþóri vinnu
þá, er hann hefði lagt fram fyrir þetta mál-
efni. Bar hann síðan fram fyrirspurn um út-
svarsskiptikröfur til sýslumannsins. En sýslu-
maður svaraði. Þessu næst ræddi Sigfús um
útsvarslögin almennt og flutti eftirfarandi
tillögu:
„Fundurinn skorar á Alþingi að breyta
útsvarslögunum þannig, að skipting útsvara
milli sveitarfélaga falli niður, nema um
búferlaflutning sé að ræða.“
Nokkrar 'umræður urðu um tillögu þessa,
Erlendur Árnason taldi að nokkur vand-
kvæði kynnu að verða á um framkvæmd
slíkrar tillögu. Ólafur Sveinsson lýsti sig
samþykkan tillögunni og gerði jafnframt
grein fyrir ýmsum þeim misfellum, er hanrt
taldi að kæmu fram í útsvarslögunum og
nefndi dærni til skýringar. Sigurbjartur Guð-
jónsson lagði til, að útsvörum kaupfélaganna
væri skipt á milli þeirra hreppa, sem að verzl-
un þeirra stæðu. Sýslumaðurinn ræddi nokk-
uð ýmis atriði útsvarslaganna og skýrði þau..
Þá greindi hann og frá tillögu, er sýslu-
mannafundur hefði samþykkt, um að út-
svarsskipti yrðu felld niður.
Ofangreind tillaga Sigfúsar var síðan bor-
in undir atkvæði og var hún samþykkt með
samhljóða atkvæðum.