Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Page 30

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Page 30
236 Hin nýja Sundahöfn á ísafirði í byggingu, bætir aðstöðu til útgerðar þaðan. Hreppurinn og kaupstaðurinn eru í reynd eitt og sama at- vinnusvæði — úr skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðs- sonar á ísafirði. Menntamál Vegna tvískiptingar Eyrarhrepps hafa til skamms tíma verið reknir tveir barnaskólar í hér- aðinu. Á síðast liðnu hausti var barnaskólinn i Skutulsfirði lagður niður. Börn úr Arnardal og Skutulsfirði fá alla kennslu við skólana á ísafirði. Er þetta eitt dæmi um nána samvinnu sveitar- félaganna. Kostnaður við akstur barnanna, sem skóla sækja á ísafjörð, er greiddur úr ríkissjóði, og er ekki ástæða til að ætla, að svo verði ekki, þó að sameining fari fram. í Hnífsdal er rekinn barnaskóli með framhalds- deild fyrir börn á skólaskyldualdri. Verði sveitar- félögin sameinuð, er líklegt, að í Hnífsdal verði aðeins kennt til barnaprófs, en eldri nemendur sæki Gagnfræðaskólann á ísafirði. Sú ráðstöfun gæti valdið því, að nauðsynlegt yrði að skipta nemendum 1. og 2 bekkjar í þrjár deildir. Það hefði nokkurn kostnaðarauka í för með sér við rekstur Gagnfræðaskólans. Á hinn bóginn ligg- ur Ijóst fyrir, að stærð þessara deilda nú er mjög óhagkvæm. Ber því brýna nauðsyn til að skipta þessum árgöngum í þrjár deildir, jafnvel þó að sameining sé ekki höfð í huga. Vegna kennslu unglingadeildar við skólann í Hnífsdal hefur ríkið greitt einum kennara laun. Væri því ekki fráleitt að ætla, að Gagnfræða- skólinn fengi ráðinn einn fastan kennara til við- bótar, vegna fjölgunar nemenda. Heilbrigðismál Þar sem heilbrigðisþjónusta er engin í Eyrar- hreppi, hafa íbúarnir orðið að leita með alla læknishjálp og sjúkrahúsvist til ísafjarðar, auk þess sem sjúkrabifreið ísafjarðar hefur annazt nauðsynlega þjónustu við lireppinn. Mun því lítil breyting verða í þessum efnum við samein- ingu. Sjúkrasamlag ísafjarðar og Sjúkrasamlag Eyr- arhrepps sameinast, að sjálfsögðu, ef sveitarfélög- in verða sameinuð, og er slíkt æskileg þróun, sem hlýtur að verða sameiginlegu sjúkrasamlagi til eflingar. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.