Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Síða 47
FRA Q
ÓLAFSVÍKURHREPPUR
íþróttahús
með sundlaug
Nýtt íþróttahús með sundlaug
var vígt laugardaginn 25. júlí s.l.,
að viðstöddum 166 boðsgestum.
Meðal gesta var íþróttafulltrúi rík-
isins, Þorsteinn Einarsson, og allir
þingmenn Vesturlandskjördæmis.
Alexander Stefánsson, oddviti,
rakti sögu byggingarinnar og lýsti
húsinu, en þetta íþróttamannvirki
er hið fyrsta sinnar tegundar á fs-
landi, sem byggt er með sundlaug
í íþróttasal með færanlegu gólfi.
Verður húsið notað sem sundlaug
vor og sumar, en sem fimleikahús
haust og vetur.
Elúsið er 4430 rúmmetrar og 450
ferm að stærð. Húsið er sérstak-
lega fullkomið í byggingu, einangr-
un er bæði venjuleg svo og fyrir
liljóð og raka. Áhorfendasvalir eru
fyrir 150—200 manns, í búnings-
klefum eru sérskápar fyrir 60 bað-
gesti og körfur að auki fyrir 60.
I kjallara hússins eru geymslur
fyrir gólffleka, sérstök snyrtiher-
bergi, böð og búningsherbergi fyrir
íþróttafólk í beinu sambandi við
íþróttavöllinn, svo sem knatt-
spyrnumenn, ennfremur aðstaða
fyrir handavinnukennslu drengja.
Á efri hæð yfir hluta hússins er
aðstaða fyrir bókasafn og kennslu-
stofur.
Hús þetta var upphaflega teikn-
af af Guðmundi Guðjónssyni,
arkitekt hjá Húsameistara ríkisins,
en eftir lát lians tók við Jes Einar
Þorsteinsson, arkitekt, og teiknaði
hann og réði allri innri gerð húss-
ins. Framkvæmdir hófust við bygg-
ingu hússins árið 1963. Aðalbygg-
ingameistari liefur verið Vigfús
Vigfússon, Ólafsvík. Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen s.f. gerði
teikningar af vatns-, holræsa- og
miðstöðvarkerfi hússins ásamt ein-
angrun. Geir Agnar Zoéga, verk-
fræðingur, teiknaði allt hita- og
loftræstikerfi. Ólafur Gíslason raf-
tæknifræðingur, gerði allar raf-
magnsteikningar. Hilmar Sigurðs-
son, verkfræðingur, hreinsikerfið.
Hurðir eru frá trésmiðju Guð-
mundar Magnússonar, Akranesi,
Nýja blikksmiðjan h.f., Reykjavík,
sá um smíði og uppsetningu loft-
rastikerfis, blásturstæki og stjórn-
tæki eru frá Honeywell, en loft-
ristar frá Barber Colman. Hreinsi-
tækin eru frá Collonggan-kísilgúr-
hreinsun, gegnumstreymið fer
fimnt sinnum á sólarhring gegnum
ltreinsinn. Ennfremur eru sérstakir
fleytarar, sem hreinsa brák á yfir-
borði vatnsins. Rörlagnirs.f., Kefla-
vík, sáu um uppsetningu hreinsi-
kerfis.
Við vígsluathöfnina voru margar
ræður fluttar, og kveðjur bárust írá
fjölmörgum aðilum. Þorsteinn Ein-
arsson, íþróttafulltrúi, tilkynnti, að
hann hefði ákveðið að gefa sér-
stakan bikar til keppni í sundi, sem
bera á nafnið „Kjærnested“-bikar í
minningu um einn fyrsta frum-
herja sundíþróttar á íslandi, en
Kjærnested var jarðsettur að Fróðá,
en um liann orti Jónas Hallgríms-
son eitt sinna fegurstu erfiljóða,
„Á gömlu leiði“.
SVEITARSTJÓ RNARMÁL