Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Side 50
Stærsta framkvæmd,
sem sveitarfélag
hefur staðið að
á Islandi
Virkjun Þjórsár við Búrfell er stærsta framkvæmd, sem
sveitarfélag hefur staðið að á [slandi. Það er í senn
mesta mannvirkjagerð, sem Isiendingar hafa tekizt á
hendur.
Landsvirkjun reisir orkuverið. En það er sameignar-
félag ríkisins og Reykjavíkurborgar, stofnað með lög-
um árið 1965. Hvor aðili á helmings hlut. Stjórn þess
skipa sjö menn. Alþingi kýs þrjá, borgarstjórn þrjá, en
formaður skipaður sameiginlega.
Landsvirkjun tók við Sogsvirkjun með öllum vatnsrétt-
indum og gufuaflstöð Reykjavíkurborgar við Elliðaár.
Meginverkefni félagsins er að framleiða og selja raf-
magn í heildsölu til almenningsnota og iðnaðar. Með
samningi við (slenzka álfélagið árið 1966 tók Lands-
virkjun að sér að reisa við Búrfell 210 000 kW orkuver,
sem yrði fullgert árið 1972, en helmingur orkuversins
hefur nú verið tekinn f notkun. Samanlagt afl stöðvanna,
sem fyrir voru í Sogi, við írafoss, Ljósafoss og Stein-
grímsvirkjun er 89 000 kW. Afl Þjórsárvirkjunar er því
ríflega tvöfalt meira en samanlögð orkuvinnsla þeirra
allra, sem fyrir eru.
Nýlega hefur Landsvirkjun leitað eftir lagaheimild írá
Alþingi til að mega reisa tvö orkuver til viðbótar, við
Hrauneyjarfoss og við Sigöldu í Tungnaá, hvort um sig
170 000 kW, samtals 340 000 kW. Með tilkomu þeirra
myndi orkuvinnsla þá tvöfaldast á ný, miðað við saman-
lagt afl orkuveranna við Sog og Þjórsá. Undirbúningur
að þessum nýju orkuverum er hafinn með gerð miðl-
unarmannvirkja á vatnasvæði Tungnaár.
Hér fer á eftir ávarp, sem borgarstjórinn í Reykjavík,
Geir Hallgrímsson, flutti við vígsluathöfnina.
956 Úr 12 m háum turni fylgjast gæzlumenn með sérstakri ísrennu við stíflu.
SVEITARSTJÓRNAKMÁL