Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Page 42

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Page 42
tilkynna hlutaðeigandi sveitarstjórnum, að framlag til þeirra frá Jöfnunarsjóði yrði ekki greitt fyrr en gerð heíðu verið skil vantandi ársreikninga 1979 og/ eða 1980. Fengu hlutaðeigandi sveitarstjórnir þann- ig um 3ja vikna frest til að bæta úr vanskilum sínum, áður en stöðvun framlags úr Jöfnunarsjóði kæmi til framkvæmda. Síðan í byrjun þessa mánað- ar hefur Hagstofunni borizt ársrcikningur frá 8 svcitarfclögum, og eru það jtá 44 sveitaríelög, sem nú verða að sæta því, að tekið sé fyrir greiðslu framlags úr Jöfnunarsjóði til þeirra. í fyrrnefndu bréíi Hagstofunnar til félagsmála- ráðuncytis var tekið fram, að eigi sé um að ræða gild skil ársreiknings sveitarfélags, nema hann sé á hinu lögskipaða formi og að öðru leyti rétt frá genginn. Þegar til kom, var ákveðið að halda þessari kröfu ekki til streitu í byrjun, og er því nú, að svo stöddu, ekki um að ræða stöðvun á greiðslu framlags úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélaga, sem hafa skilað árs- reikningi 1979 og/eða 1980 í öðru formi en hinu lögskipaða. Verður þeim veittur frestur til að skila ársreikningi á eyðublaði Hagstofunnar, og stöðvun á greiðslu framlags úr Jöfnunarsjóði kemur ekki til framkvæmda, ef þeir nota sér settan frest. Sveitarfélög, sem hafa ekki staðið skil á 1981- ársrcikningi, fá og frest til að senda hann Hagstof- unni. Frestir [ieir, er hér hefur verið gcrð grein fyrir, verða ákvcðnir af félagsmálaráðuneyti í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga og Hagstofuna. Það skal tekið fram, að Hagstofan telur þvingunaraðgerðir af þessu tagi, og í formi dagsekta o.þ.h., hrein neyðarúrræði, sem eigi aðeins að bcita þegar það er talið óhjákvæmilegt. Gögnum til hag- skýrslugerðar ber að ná inn með fortölum og sið- ferðilegum þrýstingi. í ýmsum lögum eru heimildir til handa Hagstofunni til að beita sérstökum viður- lögum gagnvart skýrslugefendum í sambandi við þjóðskrá og önnur starfssvið, cn þær hafa aldrei — ekki í eitt skipti — verið notaðar, nema hvað orðið hefur að kæra fólk þúsundum saman fyrir að vanrækja tilkynningar aðsetursskipta. Ef það hefði ckki vcrið gert, væri hér engin þjóðskrá. Og nú er fyrirsjáanlegt, að hér verður engin skýrslugerð með niðurstöðum sveitarsjóðareikninga eftir 1978, nema 104 þær aðgcrðir, sem nú hafa verið ákveðnar til inn- heimtu sveitarsjóðareikninga, nái tilgangi sínum. Það er þannig óhjákvæmilegt að halda fast við það, að öll sveitarfélög skili ársreikningi á hinu lögskipaða reikningsformi. Og þess er einnig kraf- izt, að farið sé cftir uppsetningu formsins, þar á meðal að fylgt sé sundurgreiningu tekna og gjalda á því, og að látin sé í té þrískipting gjalda á rekstur, gjaldfærða íjárfestingu og eignfærða fjárfestingu, eins og rcikningsformið gerir ráð fyrir. Þctta hefur í för mcð sér allmikla fyrirhöfn fyrir sveitarfélög, sem nota ekki hinn nýja bókhaldslykil Sambands ísl. sveitarfélaga, en hjá því verður ekki komizt. Þegar litið er til þeirrar slæmu reynslu, sem hingað til hefur fengizt af frágangi ársreikninga stærri sveitar- félaga hvað þetta snertir, virðist Hagstofan hér eiga mjög undir högg að sækja. En ef til vill lofar góðu eitt, sem nú liggur fyrir: Aðalbókari Reykjavíkur- borgar tjáði mér að fyrra bragði, að borgin mundi láta ársreikninga sína 1979-81 og framvcgis í té á hinu nýja reikningsformi. Reykjavíkurborg fylgir í reikningsskilum sínum hinum nýja bókhaldslykli að miklu leyti, en hefur ekki þá þrískiptingu útgjalda, sem er í honum, heldur eignabreytingareikning. Er því mikið verk fyrir bókhald Reykjavíkurborgar að fella ársreikninga hennar inn í hið nýja reiknings- form. Vonandi fylgja öll stærri sveitarfélög vandræðalaust fordæmi Reykjavíkur í þessu efni. Um fyrirætlanir Hagstofunnar varðandi útgáfu hagskýrsluhefta með niðurstöðum sveitarsjóða- reikninga er þetta að segja: Ársreikningar 1978 — hinir síðustu fyrir upptöku nýs reikningsforms — verða gefnir út í sérstöku hefti, vonandi snemma á næsta ári. Ef innheimtuaðgerðir vegna ársreikninga 1979, 1980 og 1981, sem nú eru hafnar, bera tilætlaðan árangur, ætti hagskýrsluhefti með niðurstöðum árs- reikninga þessara ára að geta komið út á prenti á síðari hluta næsta árs, e.t.v. ekki löngu eftir mitt ár. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.