Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 16
AFMÆLI
Eitt af því frumlegasta sem efnt var til á afmælisárinu var heims-
meistaramót í Hornafjaröarmanna. Hér er Albert Eymundsson,
skólastjóri og forsvarsmaöur mótsins, aö heiöra tvo syni sr. Ei-
ríks heitins Helgasonar í Bjarnanesi, þá Helga og Oddberg. Séra
Eiríkur er talinn höfundur þessa afbrigöis af hinu vinsæla spili.
„Og allir komu þeir aftur...“ Mjög margir brottfluttir Hornfiröing-
ar heimsóttu Höfn hátíöisdagana sem og fjöldi annarra gesta.
Mikla athygli vakti sýning Fornbilaklúbbs íslands og þá ekki síö-
ur þessi gamli Ford, árgerö 1930, meö einkennisstafina SF 19.
Petta var einn af fyrstu bílum í Austur-Skaftafellssýslu og var nú
sýndur nýuppgeröur á aldarafmæli byggöar á Höfn. Eigandi
bílsins er Óskar Alfreösson. Allar myndirnar eru teknar af Jóh.
Valg., Ijósmyndara á Höfn.
Víkingahátíð í Hafnarfirði og skildu báta sína eftir á
Höfn á meðan. Þessir gestir komu með minnisvarða um
Ingólf Arnarson landnámsmann, sem þeir reistu við
Homafjarðarhöfn.
Seinni hluta júlímánaðar var haldinn fyrsti landsleikur
í knattspymu á Homafirði. Áttust þar við landslið Fær-
eyinga og íslendinga og lauk leiknum ineð því að ís-
lenska liðið skoraði eitt mark en það færeyska ekkert.
Ágústmánuð notuðu Homfirðingar í sumarleyfi.
Á haustdögum var þráðurinn tekinn upp að nýju.
Meðal þess sem verið hefur á dagskrá er briddsmót,
hagyrðingakvöld og loks uppskeruhátíð þar sem fólk
fagnaði vel heppnuðu afmælisári.
Þegar þetta er skrifað er hátíðarhöldum á afmælisári
Hafnar að ljúka. Ljóst er að undirbúningur og fram-
kvæmd afmælishaldsins hefur þjappað Homfirðingum
saman og ýmislegt sem bryddað var upp á er komið til
að vera. Því er það trú þess sem hér ritar endurminningar
afmælisárs á Höfn í Homafirði að afmælishaldið marki
nokkur kaflaskil í menningar- og félagslífi byggðarlags-
ins þegar fram líða stundir.
Að lokum er þetta tækifæri notað til þess að þakka
fjölmörgum gestum og velunnurum byggðarlagsins fyrir
heimsóknir, kveðjur og annan hlýhug á aldarafmælinu.
VERKASKIPTING RÍKIS OG SVEITARFÉ LAGA
Yfirfærslunni frestað
Félagsmálaráðherra hefur ákveðið
að fresta yfirfærslu málefna fatlaðra
sem stefnt hefur verið að fyrir I.
janúar 1999 samkvæmt lögum nr.
161/1996.
„Ráðuneytið leggur mikla áherslu
á að áfram verði unnið markvisst að
undirbúningi yfirfærslunnar og
væntir góðrar samvinnu við sveitar-
félögin í því efni,“ segir í bréfi fé-
lagsmálaráðuneytisins þar sem það
tilkynnir sanibandinu ákvörðun
sína. Þar segir ennfremur að frestun-
in sé gerð að beiðni borgarstjórans í
Reykjavík og að höfðu samráði við
formann Sambands íslenskra sveit-
arfélaga og verkefnisstjómina, sem
hefur yfirumsjón með yfirfærslu
málefna fatlaðra til sveitarfélaga.
FJÁRMÁL
Frestun á greiðslu
fasteignagjalda aldraðra?
Stjórn Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni samþykkti
eftirfarandi tillögu hinn 13. janúar:
„Stjórn Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni beinir þeim
tilmælum til sveitarstjórna og Al-
þingis, að ellilífeyrisþegar geti greitt
fasteignagjöld til sveitarfélags síns
og eignarskatt til ríkissjóðs með
skuldfærslum á húseignir sínar gegn
veði í eigninni, sem greiðist, þegar
viðkomandi þarf ekki lengur á íbúð-
inni að halda. Þetta myndi létta
mjög greiðslubyrði eldri borgara og
rýmka ráðstöfunartekjur þeirra.
Þessi lán þurfa að vera með mjög
láguni vöxtum, enda trygg greiðsla
fyrir skuldinni.“
1 0