Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Side 9
SAMTALIÐ
Hofsós. Vesturfarasetrið á Hofsósi.
mætar, og ég tel það mikilvægt að þær nái að eflast enn
frekar og liður í því er einmitt samstarf þeirra á milli.
Farskólinn hefur mikinn styrk af Fjölbrautaskólanum
bæði hvað húsnæði varðar og kennara. Samstarf Hóla-
skóla og Fjölbrautar er einnig að eflast og hafa kennarar
frá Fjölbraut kennt á Hólum. Þess má einnig geta að
reiðmennska, sem er ný námsgrein í Fjölbraut, verður
kennd af kennurum Hólaskóla, og er sú námsgrein
einnig tengd hinni nýju hestamiðstöð.“
- Eru miklar vonir bundnar vió Hestamiðstöð íslands
sem stofnuó hefur verið í Skagafirði og reióhöil sem reist
liefur verið á Sauðárkróki?
„Hugmyndin að Hestamiðstöð Islands vaknaði þegar
við fórum að skoða hvemig hægt væri að styrkja dreif-
býlið, það er atvinnu í sveitinni. I stað þess að fínna upp
eitthvað nýtt þá var spurt að því hvað Skagfirðingar
kynnu vel sem mætti efla og þá kom hestamennskan
fljótt upp á borð. I stuttu máli má segja að um er að
ræða fimm ára átak til eflingar fagmennsku í hrossarækt,
hestamennsku, hestaíþróttum og hestatengdri ferðaþjón-
ustu. Auk sveitarfélagsins koma að þessu fjögur ráðu-
neyti, þ.e. ráðuneyti landbúnaðarmála, samgöngumála,
menntamála og byggðamála. Við vonum að Hestamið-
stöð Islands nái markmiðum sínum. Nú hafa tveir starfs-
menn verið ráðnir til verkefhisins og auk þess er sam-
starf við starfsfólk Hólaskóla. Þau verkefni sem nú er
aðallega unnið að eru t.d. gæðaátak á hrossaræktarbúum
og hestatengdri ferðaþjónustu, sögusetur íslenska hests-
ins, vefsíður, nám í hestaíþróttum á framhaldsskólastigi
og betrumbætur á reiðleiðum. Vonandi verður Hestamið-
stöð Islands búin að sanna sig þegar Landsmót hesta-
manna verður á Vindheimamelum árið 2002. Um reið-
höllina var stofnað sérstakt hlutafélag, Fluga hf., og
vissulega er þess vænst að sú aðstaða muni nýtast vel og
verða hrossarækt og hestamennsku til framdráttar.“
- Er unnið að gerð reiðvega íhéraðinu?
„Töluverð vinna hefúr verið lögð í gerð reiðvega og þá
aðallega í nánd við þjóðvegi héraðsins. Nú er verið að
skoða aðra möguleika og kanna hvort ekki sé hægt að
leggja reiðvegi um héraðið fjarri þjóðvegum. í því sam-
bandi þarf að semja við landeigendur, en vissulega væri
mun skemmtilegra t.d. að þeysa um eylendið beint af
augum laus við bílaumferð og hávaða þjóðvegarins. Við
viljum gjaman sjá Skagafjörð sem útivistarparadís hesta-
mannsins og að fólk geti komið hingað með hesta sína
og dvalið hér um lengri eða skemmri tíma og ferðast um
héraðið bæði í byggð þess og óbyggðum."
- A Vesturfarasetrið á Hofsósi eftir að gegna miklu hlut-
verki íferðamálum i héraóinu?
„Það tel ég alveg fúllvíst. Þar hefúr orðið mikil upp-
bygging og ánægjulegt hvað einkaframtakið hefúr komið
miklu þar í verk. Vesturfarasetrið er í góðum tengslum
við Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ og á síðustu
árum hafa orðið miklar framfarir í safna- og sýningar-
málum okkar, ekki síst þeim sem tengjast ferðaþjónust-
unni. Vesturfarasetrið og Byggðasafhið hafa einnig gert
samstarfssamning við New Iceland Heritage Museum í